Áhyggjur hafa vaknað hjá mörgum Íslendingum við fréttir af uppkaupum stórefnaðra manna á bújörðum og landi. Ráðamenn eru í vafa hvort eða hvernig skuli bregðast við en virðast almennt fagna því að útlendir aðilar fjárfesti hér með þessum hætti og að land gangi kaupum og sölum. Skiptir þá litlu máli hvort innlendir eða erlendir aðilar eiga í hlut eða jafnvel aflandsfélög sem engar upplýsingar fást um.
Í þessu sambandi væri ef til vill ekki úr vegi að spóla 10 ár aftur í tímann og rifja upp viðbrögð þáverandi ráðamanna í aðdraganda bankahrunsins. Þá létu þeir eins og ekkert væri að óttast þó svo að þeir sjálfir og fjölskyldur þeirra væru á fullu að selja hlutabréf í bönkunum og koma eigum sínum í erlenda gjaldmiðla. Þannig komst hópur fólks í yfirburðastöðu þegar haldin var brunaútsala á fyrirtækjum, fasteignum og landi eftir hrun. Að vísu er ekki um sambærilega hluti að ræða …
Athugasemdir