Þessi grein birtist fyrir rúmlega 5 mánuðum.

Dreymir um að koma íslenskum æðardúnssængum á alþjóðamarkað

Frá blauti barns­beini hef­ur Hilm­ar Jón Krist­ins­son tínt og verk­að æð­ar­d­ún. Hann seg­ir for­rétt­indi að fá að um­gang­ast æð­ar­varp og dún­sæng­ur sem hann fram­leið­ir eru seld­ar und­ir nafn­inu Royal Ei­der­down.

Dreymir um að koma íslenskum æðardúnssængum á alþjóðamarkað
Lúxusvara Æðardúnssængur eru ein sjálfbærasta lúxusvara í heimi. Mynd: ÚR VÖR

Hilmar Jón Kristinsson á ættir að rekja til Skarðs á Skarðsströnd í Dalasýslu. Frá blautu barnsbeini hefur hann tínt og verkað æðardún og dreymir nú um að koma æðardúnssængum sínum á markað erlendis. Undir Skarð heyra hvorki meira né minna en 63 eyjar og því eru hæg heimatökin að nýta dún á þeim slóðum. Hilmar fundar þessa daga með ýmsum aðilum um að koma einni sjálfbærustu lúxusvöru í heimi á markað, en dúnsængurnar hefur hann framleitt og selt undir nafninu Royal Eiderdown

„Formóðir mín, hún Ólöf ríka, var fyrst allra til að selja út æðardúnssængur á 15. öld. Þannig að við erum svolítið að feta í fótspor forfeðranna að því leytinu til, þ.e. að halda við viðskiptum í þessu nafni. Ég er alinn upp við meðferð æðardúns og tínslu hans úr eyjunum okkar og þekki það ferli út og inn, alveg frá hreiðri í sæng. Fyrstu árin og alveg fram undir fermingu var vorið undirlagt varðandi þetta og selveiðar og annað. Þetta er vorferli sem hefur lifað alla tíð frá minni æsku og til dagsins í dag,“ segir Hilmar.

Fór til Japans og lærði að þvo dúninn

Hilmar segir að tímabilið byrji í kringum 20. maí ár hvert og er út júní og um heilmikið ferli er að ræða. Dúnninn er tíndur úr hreiðrunum, honum safnað saman og verkaður. Svo fer hann í þurrk og svo í grófhreinsun. Í framhaldi af því er hann fínhreinsaður, reykhreinsaður og fíberhreinsaður. Úr því ferli fer hann í svokallaða fjaðratínsluvél, látinn snúast þar og fer svo í svokallaða handfjaðratínslu. Þar situr fólk við borð og fer í gegnum hvert einasta gramm á dúninum og handtínir úr honum það sem vélar hafa ekki náð. 

Stund milli stríðaHilmar, sem er lengst til hægri á myndinni, gæðir sér á nesti með félögum sínum í pásu frá æðardúnstínslu.

„Þá er hann yfirleitt tilbúinn til útflutnings, en við höfum breytt þessu aðeins, við fórum í að fullvinna hann meira hér á landi. Ég fór til Japans og lærði að þvo dúninn og verka hann til fullnustu, það ferli kunni ég ekki, en lærði sem sagt að verka dúninn alla leið til sængurgerðar. Við erum mestmegnis hætt að flytja hann út sem hráefni frá okkur, en við vorum með í 20 ár hreinsunarstöð þar sem við hreinsuðum dúninn fyrir bændur hvarvetna af landinu og sendum út á Japansmarkað. Við hættum svo öllum þannig rekstri árið 2013, þá hættum við hrávinnslu og vinnslu fyrir bændur, það var komin samkeppni og lítið úr þessu að hafa, bara kostnaður. Það var því sjálfhætt og við lögðum þann rekstur niður í kjölfarið,“ segir Hilmar.

Heimurinn orðinn opnari

Að sögn Hilmars byrjaði hann að framleiða sínar fyrstu sængur í kringum árið 1992 og var þá að búa til sængur fyrir bændur sem áttu dún hjá honum. Bændurnir voru að gefa börnum og barnabörnum þessar sængur í fermingargjöf og segir Hilmar að starfið hafi þróast í gegnum árin úr því að framleiða æðardúnssængur úr skítugum æðardún í að fullvinna hann og búa til lúxusvöru úr honum. 

Þetta er náttúrlega ein elsta sjálfbæra lúxusvara í heimi

„Planið er að selja vörur á erlendan markað, það er verið að leggja drög að því að færa út kvíarnar og reyna að gera eitthvað af viti úr þessu. Það eru vangaveltur og fundir varðandi þetta, verið að þreifa á ákveðnum aðilum og sjá hvort þetta gangi upp. Japaninn er mjög stór og sterkur í þessu og það er erfitt að keppa við hann, hann er með þetta um allan heim. Tíminn leiðir í ljós hvernig þetta fer og hvort það borgi sig að eiga við þetta, það er mjög kostnaðarsamt að fara út í þetta af fullum þunga, maður þarf að gera þetta í einhverjum hænuskrefum. Það eru ekki heldur margir í þessu hér á landi, ég veit um einn annan aðila sem er eitthvað að brasa við þetta,“ segir Hilmar.

Hilmar segir að þróunin sé þannig að heimurinn er orðinn opnari núna gagnvart aðgengi að fólki og mörkuðum, það er auðveldara viðviks í dag heldur en var bara fyrir 10 árum síðan bæði að kynna vöruna og selja hana. Að sögn Hilmars skiptir máli að ná í viðskiptavininn og finna þá, sem tekur tíma og er vandasamt verk.

„Maður bara tæmir hausinn“

„Eins og staðan er núna þá brosi ég út í annað, ég er ekki farinn að brosa út í bæði, en þetta lítur ágætlega út. Þetta er náttúrlega ein elsta sjálfbæra lúxusvara í heimi, það liggur í augum uppi, þetta var einu sinni kóngavara. Fuglinn er ekki drepinn eða reyttur lifandi á nokkurn hátt, hann kemur alltaf á sama stað að verpa ef hann finnur frið til þess. Svo eru auðvitað ákveðin forréttindi að fá að umgangast æðarvarp, þetta er útivist og útivera almennt. Maður er að vinna með höndunum og líka hausnum og er að lifa og njóta í leiðinni. Maður bara tæmir hausinn, hlustar á fuglasönginn umhverfis mann og svo er best ef síminn þagnar alveg!“ segir Hilmar hlæjandi að lokum.

Efnið er unnið í tengslum við vefritið ÚR VÖR.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég væri til í að kaupa úlpu og sæng búna til úr ísl. dún. Það er svo falleg búgrein með virðingu fyrir náttúrunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ójöfnuður kemur okkur öllum við
2
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“
Missti göngugetuna níu ára og missir „himnaríki“ ellefu ára
4
FréttirFlóttamenn

Missti göngu­get­una níu ára og miss­ir „himna­ríki“ ell­efu ára

Þó að lækn­ar telji mik­il­vægt að hinn ell­efu ára gamli Yaz­an, sem er með ágeng­an vöðvarýrn­un­ar­sjúk­dóm, haldi áfram í lækn­is­með­ferð tel­ur Kær­u­nefnd út­lend­inga­mála ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að vísa hon­um til lands sem hann hef­ur sem stend­ur eng­in rétt­indi í. „Ég hef unn­ið við þetta í næst­um 8 ár og aldrei séð svona af­ger­andi lækn­is­vott­orð,“ seg­ir tals­mað­ur fjöl­skyld­unn­ar. Sex sam­tök og fjöl­marg­ir Ís­lend­ing­ar hafa mót­mælt fyr­ir­hug­aðri brott­vís­un.
Umhverfistofnun telur bæði ótímabundinn kvóta og veðsetningu hans umdeilanlegar breytingar
6
FréttirLaxeldi

Um­hverfi­stofn­un tel­ur bæði ótíma­bund­inn kvóta og veð­setn­ingu hans um­deil­an­leg­ar breyt­ing­ar

Rík­is­stofn­un­in Um­hverf­is­stofn­un ger­ir at­huga­semd­ir við tíma­lengd rekstr­ar­leyfa í sjókvía­eldi hér á landi. Nu þeg­ar hafa borist 54 um­sagn­ir við frum­varp­ið um lagar­eldi eft­ir að það var lagt fram á Al­þingi í lok apríl. Frum­varp­ið er af­ar um­deilt og hef­ur um­ræða um það ver­ið hluti af kosn­inga­bar­átt­unni til embætt­is for­seta Ís­lands.
Popúlísk aðferð til að ná eyrum óöruggra karla
10
Greining

Po­púlí­sk að­ferð til að ná eyr­um óör­uggra karla

Po­púl­ist­ar karl­mennsk­unn­ar njóta sí­vax­andi vin­sælda. Í spjalli Skoð­ana­bræðra við Pat­rik Atla­son virt­ist ljóst að kon­ur eigi að til­heyra hlut­verki hefð­bund­inn­ar hús­móð­ur á með­an að karl­inn sér fyr­ir tekj­um heim­il­is­ins. Ung­ir karl­menn eru stöð­ugt áreitt­ir af al­gór­yþm­um sam­fé­lags­miðla með pre­dik­ur­um goð­sagna­kenndr­ar karl­mennsku, enda­lausu klámi og óraun­hæf­um mark­mið­um sem grafa und­an sjálfs­vit­und þeirra.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Þórður Snær Júlíusson
10
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
2
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár