Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en ári.

Varaþingkona Framsóknar spyr spurninga um laxeldi: „Þetta er mín skoðun“

Brynja Dan Gunn­ars­dótt­ir, vara­þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, sett­ist tíma­bund­ið á þing nú í sept­em­ber og lagði þá fram fyr­ir­spurn til mat­væla­ráð­herra, Svandís­ar Svavars­dótt­ur, um lax­eldi. Hún seg­ir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi hing­að til kannski ekki ver­ið gagn­rýn­inn á lax­eldi en að það fal­lega við stjórn­mál sé að all­ir megi hafa sína skoð­un.

Varaþingkona Framsóknar spyr spurninga um laxeldi:  „Þetta er mín skoðun“
Spyr gagnrýnna spurninga Varaþingkona Framsóknarflokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, spyr gagnrýnna spurninga um laxeldi í sjókvíum á Íslandi. Mynd: Framsókn

Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingkona Framsóknarflokksins, spurði matvælaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, gagnrýnna spurninga um laxeldi í sjókvíum í síðustu viku. Varaþingkonan settist á þing í sex daga fyrir Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, frá 16. til 22. september og lagði fram fyrirspurn til ráðherra um laxeldi á þessum tíma.

Inntakið í spurningum Brynju var meðal annars að inna ráðherra eftir viðbrögðum hennar við hættunni á erfðablöndun milli norsku eldislaxanna í sjókvíum við Ísland og villtra íslenskra laxa. Þá vill Brynja einnig að matvælaráðherra beiti sér fyrir að setja upprunamerkingu á þann eldislax sem seldur er á Íslandi. 

„En það er kannski bjútíið við það að fá inn nýtt og ferskt fólk og við megum vera með alls konar skoðanir“
Brynja Dan Gunnarsdóttir,
varaþingkona Framsóknarflokksins

Eitt af því sem er áhugavert við þessa fyrirspurn Brynju Dan er að hún kemur frá varaþingmanni Framsóknarflokksins, flokks sem situr í ríkisstjórn með flokki matvælaráðherra, Vinstri grænum.  Aðspurð um hvernig þessa fyrirspurn bar að segir Brynja Dan að um sé að ræða persónulegt hugðarefni hennar og að hún hafi sjálf ákveðið að leggja fyrirspurnina fram. „Þetta er bara ég. Ég hef alltaf haft áhuga á dýravelferð og hef beitt mér í þeim málaflokki.

Þingflokkurinn upplýstur

Fyrirspurnin kemur því beint frá Brynju sjálfri en ekki frá þingflokknum. Stundum er það þannig að fyrirspurnir eru unnar inni í þingflokkum sameiginlega og svo setur einhver þingmaður þær fram. Svo var ekki í þessu tilfelli.

Brynja segir að fyrispurn hennar hafi samt verið til umræðu í þingflokknum áður en hún var sett fram. „Það voru engin átök inni í flokknum og allir upplýstir. Flokkurinn minn hefur ekki verið þarna. En það er kannski bjútíið við það að fá inn nýtt og ferskt fólk og við megum vera með alls konar skoðanir. Þetta er mín skoðun. Ég átti í góðu samtali við Ásmund Einar [Daðason] og það var búið að láta Sigurð Inga [Jóhannsson] vita og það voru allir meðvitaðir um stöðu mála,“ segir Brynja. 

Aðspurð um hvort fyrirspurnin endurspegli líka skoðanir Ásmundar Einars á laxeldi segir Brynja. „Ég get ekki tjáð mig fyrir hans hönd en hann styður mig bara í einu og öllu veit ég.

Spurningar Brynju Dan

Spurningarnar sem Brynja Dan spyr matvælaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur að, fylgja hér á eftir. 

„1.      Hyggst ráðherra setja reglur um tilgreiningu á upprunalandi eða upprunastað eldislax sem seldur er á Íslandi? Ef ekki, hver eru rökin fyrir því að gera það ekki?
     2.      Telur ráðherra stöðu laxeldis á Íslandi ásættanlega með tilliti til heilbrigðis og dýravelferðar? Ef ekki, hvað telur ráðherra að hægt sé að bæta og mun hann beita sér fyrir því?
     3.      Telur ráðherra þörf á að bæta reglur um losun lífræns úrgangs eða frárennslisvatns í laxeldi?
     4.      Telur ráðherra þörf á að bregðast frekar við með einhverjum hætti vegna vísbendinga um erfðablöndun milli eldislaxa sem sloppið hafa úr sjókvíum og villtra laxastofna?

Ráðherra hefur 15 virka daga til að svara fyrirspurninni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið

„Mér hefur ekki verið nauðgað“
1
Fréttir

„Mér hef­ur ekki ver­ið nauðg­að“

„... þó að fjór­ar rík­is­stjórn­ir hafi geng­ið úr skugga um að flokka, bæla nið­ur og jafn­vel þurrka út eig­in­lega öll mest af­ger­andi sönn­un­ar­gögn­in tókst þeim ekki að halda lok­inu á sam­ráði og mis­ferli sínu,“ skrif­ar pró­fess­or Nils Melzer sem rann­sak­aði mál Ju­li­an Assange sem sér­stak­ur skýrslu­gjafi fyr­ir Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar. Skýrsl­an kom út sem bók.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
9
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár