Þann 5. apríl árið 2016, einum degi eftir að rúmlega 20 þúsund manns mótmæltu á Austurvelli í Reykjavík eftir opinberanir um eignarhald ráðherranna Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar á félögum í Panamaskjölunum, hætti íslenska lögfræðiskrifstofan Logos í London að þjónusta breskt félag með eignarhaldi sem endaði í skattaskjólinu Seychelles-eyjum.
Nú liggur fyrir að þetta fyrirtækjanet var í eigu hvítrússneska kaupsýslumannsins Alexanders Moshensky, sem er náinn samverkamaður einræðisherrans í Hvíta-Rússlandi, Alexanders Lukaschenko. Þetta fyrirtækjanet hefur meðal annars verið notað til að kaupa uppsjávarfisk eins og makríl, loðnu og gulllax af íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.
Logos er stærsta lögmannsstofa landsins. Fyrirtækið er með aðsetur á Íslandi og í London. Logos hafði stofnað umrætt fyrirtæki, Max Credit Investments, árið 2008. Í stofnskjölum félagsins kemur fram að það hafi verið stofnað „fyrir og fyrir hönd MP banka“. Max Credit Investments var í eigu fyrirtækjanets, sem teygir sig til áðurnefndra Seychelles-eyja þar til fyrir tveimur árum. …
Athugasemdir