Ég var búinn að setja 192 birkigræðlinga niður í hrjóstruga sandöxl skammt frá Heklurótum og brá mér inn í bíl til að fá mér vatnssopa. Sólin skein en það var nokkuð hvasst og ekki hlýtt í veðri. Ég fæ stundum svolítið samviskubit yfir því að vera að setja birkið niður þegar svo langt er komið fram á haust en af fenginni reynslu sýnist mér að haustbirkið lifi ekkert síður en það sem sett er niður á vorin eða sumrin.
Og þær plöntur sem eftir voru færu því óhikað niður í sandöxlina innan um hinar.
Ég kveikti á útvarpinu í bílnum meðan ég þjóraði vatn úr flösku, það voru fréttir og fréttamaðurinn las orðið „stjórnarmyndunarviðræður“. Nú, eitthvað að frétta af því? hugsaði ég annars hugar. Ég hef rekið mig á að þegar ég er að gróðursetja tré upp við Heklu finnst mér nýjustu fréttir skipta minna máli en ella.
En fréttir …
Athugasemdir