Hillbilly gekk upp um það bil 1.000 tröppur til að komast á vinnustofu Jónu Hlífar myndlistarmanns. Það var þess virði. Jóna Hlíf er vel að sér í öllu sem við kemur listasenunni á Íslandi og hefur einnig sinnt hagsmunamálum myndlistarmanna í áraraðir.
„Ég er svolítill faðmari,“ segir Jóna Hlíf þegar hún byrjar að útskýra verkið Annáll sem er grafíkverk, prentað með dúkristu, „að faðma góðan vin, á því er hægt að lifa í nokkra daga“. Jónu Hlíf segist hafa þótt erfitt að fá ekki að faðma þetta árið og hræðist að ástandið eigi eftir að hafa áhrif á faðmlagið, „ég er hrædd um að fólk eigi eftir að snertast minna“. Hillbilly deilir þessari hræðslu og hugsar að kannski verði ekki jafn náttúrulegt að fallast í faðma eins og var. „Svo á ég vini sem eru bara ánægðir með að loksins sé ekki alltaf verið að faðma þá, loksins skilur þá …
Athugasemdir