„Og nú kveð ég Ísland, heimili mitt til tveggja og hálfs árs. Því miður þarf ég að fara í flýti, áður en öll flug hætta,“ segir Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Íslandi, sem er nú farinn úr landi vegna COVID-19 faraldursins og viðbragða við honum.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra greindi í gær frá yfirvofandi lokun allra flugleiða til Íslands. „Um mánaðamótin gætu allar flugleiðir hafa lokast,“ sagði hann í yfirlýsingu á Facebook.
Sendiherra ESB hefur brugðist við þeim möguleika með því að fara úr landi. Hann þakkar Íslandi fyrir, en hér eignaðist hann meðal annars barn. „Takk fyrir Ísland. Fallegt land og yndislegt fólk. Dóttir mín fæddist hér. Ég hef eignast góða vini hér og verið stoltur af því að vera fulltrúi ESB hér. Megi náið og hlýtt samband okkar við Ísland halda áfram,“ segir hann.
Mann segist að lokum munu snúa aftur til Íslands í framtíðinni, starfs síns vegna. Mann hefur tekið við nýrri stöðu í Brussel, sem snýr að heimskautasvæðunum. Hann kveðst hlakka til að sameinast fjölskyldu sinni.
Meðal þeirra sem kveðja Mann á Facebook eru Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, Óttarr Proppé, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar.
Athugasemdir