Háskóli Íslands hefur á þessu ári afgreitt fjórtán beiðnir frá Útlendingastofnun um aldursgreiningu á fylgdarlausum hælisleitendum með tanngreiningum. Þetta kemur fram í svari frá Andra Ólafssyni, aðstoðarmanni Jóns Atla Benedikssyni, rektors HÍ, við fyrirspurn Stundarinnar. Þar kemur jafnframt fram að inni í þeirri tölu séu beiðnir sem voru í biðstöðu meðan gengið var frá samningnum, frá síðari hluta ársins 2018 fram að undirritun.
Tanngreiningarnar hafa verið afar umdeildar bæði innan og utan veggja háskólans. Rauði kross Íslands hefur til að mynda ítrekað gagnrýnt aðferðafræðina að baki þeim. Þann 30. nóvember síðastliðinn sendi Stúdentaráð HÍ formlega áskorun á háskólaráð um að endurnýja ekki samninginn við Útlendingastofnun og ítrekaði þannig afstöðu sína gegn tanngreiningunum. Í áskoruninni segir meðal annars: „Telur Stúdentaráð rétt að ítreka afstöðu sína, sem hefur hlotið stuðning Landssamtaka íslenskra stúdenta, European Student’s Union ásamt fulltrúum starfsfólks og nýdoktora …
Athugasemdir