Pressa
Pressa #15

Pressa #15: Man­sals­mál­ið, Kristrún og Bash­ar

Grím­ur Gríms­son, yf­ir­mað­ur hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Jenný Krist­ín Val­berg, teym­is­stjóri Bjarka­hlíð­ar og Sigrún Skafta­dótt­ir, deild­ar­stjóri hjá Vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur koma í Pressu og ræða um man­sals­mál­ið. Í þætt­in­um verð­ur líka rætt við Kristrúnu Frosta­dótt­ur, formann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og Bashar Murad, tón­list­ar­mann frá Palestínu.
· Umsjón: Helgi Seljan, Margrét Marteinsdóttir

Aðgerðir lögreglu í vikunni sem gerðar voru í samstarfi við ýmsar stofnanir og samtök voru með þeim umfangsmestu sem ráðist hefur verið í hér á landi.

Rætt verður um aðgerðirnar og það sem er framundan í málinu við Grím Grímsson, Jenný Kristínu Valberg og Sigrúnu Skaftadóttur í Pressu en Jenný Kristín segir í samtali við Heimildina að þau sem hafi komið að málinu ætli sér að halda þétt utan um fólkið sem grunur leikur á að sé fórnarlömb mansalsins. 

Hún segir að ekki hafi enn tekist að ná tali af öllum sem talið er að séu þolendur í málinu. Í næstu viku verði fólkinu sem þá verði búið að ná tali af boðið að hitta fulltrúa frá samtökum og stofnunum sem hafi staðið að aðgerðunum í vikunni. „Við stefnum að því að geta svarað spurningum þeirra og hlúð að þeim eftir fremsta megni.“

Jenný Kristín segir að grunur leiki á að fólkið hafi unnið tólf klukkustunda vinnudaga sex daga vikunnar og ekki fengið greitt í samræmi við það. „Starfsfólk ASÍ mun skoða launaseðlana og hugsanlega er tilefni til að gera launakröfur á eigendur fyrirtækjanna.“ 

Í þættinum ræðir Helgi Seljan, rannsóknaritstjóri Heimildarinnar  við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar og sýnt verður brot úr viðtali Ölmu Mjallar Ólafsdóttir, blaðakonu á Heimildinni við Bashar Murad sem keppti í söngvakeppninni um síðustu helgi.

Pressa er send út í beinu streymi í hádeginu alla föstudaga á vef Heimildarinnar. Útsending hefst klukkan 12.00.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Days of Gray
    Bíó Tvíó #250

    Days of Gray

    Eldsvoði aldarinnar
    Eitt og annað

    Elds­voði ald­ar­inn­ar

    Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
    Pressa

    Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

    Það sem ég á Bjarna Ben að þakka
    Sif

    Það sem ég á Bjarna Ben að þakka