Hvergi finnur Amanda Riffo meiri stöðugleika í lífinu en í stúdíóinu sínu, sem hún lýsir sem akkeri lífs síns. „Ég segi þetta en samt er ákveðin mótsögn fólgin í því, vegna þess að ég gjörbreyti vinnustofunni minni mjög reglulega, skipti út húsgögnum og umturna henni algjörlega. Í hvert sinn sem ég vinn að nýju verki hef ég nefnilega þörf fyrir að breyta öllu,“ segir Amanda Riffo. Hún er með vinnustofu í húsnæði SÍM á Seljavegi og umgengst þar aðra listamenn sem einnig hafa vinnustofur þar. „Hér er góð orka en mér finnst líka gott að vera hérna til að vera í kringum aðra listamenn, af ýmsum kynslóðum, kannski af því að ég lærði ekki hér á Íslandi og þekkti því ekki áður aðra listamenn hér, að minnsta kosti ekki eins og vel og margir aðrir.“
Amanda hefur verið búsett í Reykjavík í bráðum áratug en hefur unnið víða að list …
Athugasemdir