Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Þögul skilaboð Elizu á fundi með Mike Pence

For­setafrú­in El­iza Reid tók á móti vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, klædd í hvíta dragt. Fyrr á ár­inu fjöl­menntu banda­rísk­ar þing­kon­ur á þing­pall­ana klædd­ar hvít­um drögt­um, til heið­urs kon­um sem hafa bar­ist fyr­ir kven­frelsi og jafn­rétti.

Þögul skilaboð Elizu á fundi með Mike Pence

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid tóku á móti Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í Höfða í dag. Þar lagði forseti Íslands áherslu á fjölbreytileikann og var með armband frá Krafti í regnbogalitum. Forsetafrúin var hins vegar klædd í hvíta buxnadragt og sendi með því þögul skilaboð um jafnrétti. 

Bandarískar þingkonur klæddust hvítu

Í byrjun árs vakti það athygli þegar bandaríska þingkonan Alexandra Ocasio-Cortez klæddist hvítri buxnadragt þegar hún sór embættiseið, yngst allra kvenna í bandarískri stjórnmálasögu. Klæddist hún hvítu til að heiðra baráttukonur fyrir jafnrétti, en klæðnaðurinn var vísun í bresku súffragretturnar sem hófu baráttu sína árið 1903 og beittu róttækum aðferðum til að berjast fyrir kosningarétti kvenna og jafnrétti. „Ég klæddist hvítu í dag til heiðurs öllum þeim konum sem komu á undan mér, og þeim sem á eftir fylgja,“ skrifaði hún á Instagram-reikning sinn við það tækifæri.

„Ég klæddist hvítu í dag til heiðurs öllum þeim konum sem komu á undan mér, og þeim sem á eftir fylgja“

Mánuði síðar, eða í febrúar, sýndu þingkonur Demókrataflokksins samstöðu þegar þær mættu allar í hvítum buxnadrögtum til að hlýða á árlegt ávarp forsetans um stöðu ríkjasambandsins. Með hvíta litnum, á móti dökkum jakkafötum karlanna, var ójafnvægið í salnum undirstrikað. Þrátt fyrir metfjölda kvenna voru þær aðeins um 23 prósent þingmanna. 

Áður hafði Hillary Clinton klæðst hvítum buxnadrögtum á lykilstundum í kosningabaráttunni um forsetaembættið, meðal annars þegar hún tók við útnefningu Demókrataflokksins, í þriðju og síðustu kappræðunum við Donald Trump fyrir kosningarnar og svo loks þegar hann var vígður til forseta.  

Með armband í regnbogalitunum 

Jafnréttismál hafa verið Elizu hugleikin og hefur hún verið ötull talsmaður þeirra frá því að eiginmaður hennar var kjörinn forseti. Aðeins eru tveir dagar liðnir síðan hún tjáði sig um viðhorf gagnvart eiginkonum þjóðarleiðtoga á Facebook. Þar sagðist hún ekki vera „hand­taska eigin­manns míns, sem á að grípa þegar hann hleypur út um hurðina og er stillt upp með þöglum hætti við hlið hans á opin­berum upp­á­komum.“ 

Það má því leiða að því líkum að skilaboð Elizu hafi verið skýr, þegar hún valdi að klæðast á þennan hátt á fundi með varaforseta Bandaríkjanna í dag; að leggja þurfi áherslu á jafnréttismál. Eins vakti athygli að Eliza bar regnbogaarmband, tilvísun í réttindabaráttu samkynhneigðra.

Forsetinn bar einnig litríkt armband frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Benti hann á að Ísland mæti góð samskipti við Bandaríkin mikils. „Ég vonast líka til að þú fáir tilfinningu fyrir þeim gildum sem okkur eru kær, frelsi, fjölbreytileika, alþjóðasamstarf og virðingu hverju fyrir öðru,“ sagði Guðni.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Guðni leggur áherslu á slík gildi gagnvart bandarískum stjórnvöldum. Þegar Donald Trump var kjörinn forseti árið 2016 óskaði Guðni honum til hamingju með þeim orðum að við Íslendingar styðjum „jafnrétti kynjanna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú.“

Forsætisráðherra ræddi jafnréttismál

Mike Pence hefur lýst sjálfum sér með þeim hætti að hann sé „krist­inn, íhalds­sam­ur og re­públi­kani, í þess­ari röð.“ Viðhorf hans gagnvart kvenfrelsi og réttindum samkynhneigðra eru vægast sagt íhaldssöm og á meðan hann var staddur í Höfða brugðust fjölmörg fyrirtæki og stofnanir við með því að draga fána í regnbogalitunum að húni, fána sem hefur orðið að táknmynd í réttindabaráttu samkynhneigðra. 

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, mætti Pence í Keflavík í kvöld þar sem þau áttu fund saman. Fyrir fundinn áttu þau samtal við fjölmiðla þar sem hún lagði áherslu á að þau myndu ekki aðeins ræða varnar- og utanríkismál, heldur myndu þau einnig ræða loftlagsmál og jafnréttismál. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
2
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.
Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
7
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Dav­íð kall­ar borg­ar­stjórn bjálfa fyr­ir að taka nið­ur stytt­una af Séra Frið­riki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ir upp­lýs­ing­ar um að Séra Frið­rik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og of­beldi vera „get­gát­ur eins manns“ eft­ir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eft­ir tæp 75 ár.“ Það að stytta af hon­um hafi ver­ið fjar­lægð sé merki um of­stæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en ann­að fólk.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
1
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
4
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
8
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
9
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár