Fyrir nokkrum árum varð þrítug móðir frá litlu þorpi í Afríku fyrir því óláni að missa eiginmann sinn af slysförum. Saman áttu þau ungan son, konan var atvinnulaus og möguleikar hennar til að tryggja sjálfri sér og syni sínum öruggt líf voru mjög takmarkaðir. Konan, sem hér er kölluð Lindah, hafði tengsl við Ísland í gegnum fjölskyldumeðlim og ákvað með sjálfri sér að leggja allt í sölurnar til að flytja þangað. „Ég átti ekkert líf í Afríku. Það var engin framtíð fyrir okkur þar.“
Lindah fór krókaleiðir til að fá lánaða peninga fyrir flugmiðanum til Íslands, hún seldi allar eigur sínar, kom syni sínum fyrir hjá fjölskyldu sinni og hugsaði með sér að hún myndi fá hann til sín eftir nokkra mánuði, kannski í eitt ár í mesta lagi. Hún hafði fengið vegabréfsáritun sem gilti í tvo mánuði en hafði hins vegar ekki í hyggju að snúa aftur. Á Íslandi …
Athugasemdir