Á Norðurbugt í Reykjavíkurhöfn ganga Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Úa Bragadóttir niður flotbryggjuna í átt að skútustæði merkt skútunni Valkyrju. Maðurinn hennar Bergþóru og pabbi hennar Úu, Bragi Páll Sigurðarson, er á siglingu rétt við Íslandsstrendur og á að koma í höfn hvað úr hverju. Bragi hefur ásamt áhöfn siglt skútunni alla leið frá Sikiley.
Margrét Arnarsdóttir harmonikkuleikari gengur niður á bryggju, hún ætlar að taka á móti Valkyrju og vinum sínum með hátíðlegum harmonikkuleik. Á einum bátanna á flotbryggjunni situr maður sem spyr nærstadda út í þessa ævintýraferð Valkyrjumanna á meðan hann dittar að bátnum sínum. Oddur Ástráðsson, lögfræðingur og vinur Valkyrjumanna gengur næst niður flotbryggjuna. Hann á erfitt með að fela hvað hann er spenntur að taka á móti þeim, brosið hans brýst út við hvert tækifæri. Oddur hitti þá seinast á Spáni en þar urðu þeir strandaglópar þegar vélin í Valkyrju gaf …
Athugasemdir