Hann er einn frægasti leikari Norðurlanda og hefur unnið með Lars von Trier að myndum eins og Breaking the Waves, Dancer in the Dark, Melancholia og Nymphomaniac, auk þess að leika hlutverk í Hollywood-myndum á borð við Good Will Hunting og Pirates of the Caribbean sem og Marvel-myndum á borð við Thor og Avengers.
„Ég lék einn eða tvo rússneska skúrka – og gott ef ekki eitt rússneskt góðmenni. En svo lauk kalda stríðinu og þar með lauk eftirspurn eftir rússneskum skúrkum. En þeir eru að koma sterkir inn aftur,“ segir Stellan Skarsgård aðspurður um hvort hann hafi lent í því að leika alltaf sama hlutverkið aftur og aftur. „En ég held ég hafi sloppið við að festast í sömu hlutverkunum, ég hef alltaf fundið mér eitthvað nýtt fyrir næsta hlutverk,“ segir hann og þessar þrjár myndir sem við ræðum í dag eru ágætis dæmi um það; framhald af geysivinsælum …
Athugasemdir