Á árunum 2021–23 var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um stuld á 1.660 reiðhjólum. Tvö hverfi í Reykjavík skera sig úr hvað varðar fjölda stolinna hjóla, miðborgin og Laugardalur. Um 63% allra brota sem tilkynnt var um áttu sér stað á vaktsvæði lögreglustöðvar 1, sem sinnir miðborg, Laugardal, Háaleiti, Hlíðum, Vesturbæ og Seltjarnarnesi.
Þá voru um 37% sambærilegra brota tilkynnt á öðrum vaktsvæðum lögreglunnar innan höfuðborgarsvæðisins. „Þessi tölfræði er í samræmi við það sem almennt þekkist, að þjófnaður hjóla er gjarnan mestur í þéttbýli og við miðsvæði borga“, segir í nýrri skýrslu starfshóps um aðgerðir til að draga úr hjólaþjófnaði. Samkvæmt gögnum lögreglu er flestum hjólum stolið við heimili, stofnanir, fyrirtæki og verslanir.
Athugasemdir