Kynlífsmenning getur verið alls konar, í margs konar myndum í mismunandi menningarheimum og -kimum. Á swing-klúbbi í þýskri borg þrífst kannski öðruvísi kynlífsmenning en hjá framhaldsskólanemum á Ísafirði eða heima hjá ráðsettum hjónum í Hlíðunum – og samt ekki!
Aldrei er að vita hvaða mynd kynlífsmenning tekur á sig hjá hverjum og einum. Í þeim efnum hættir okkur til að vera með fyrir fram gefnar hugmyndir.
Um daginn rakst undirrituð á netfrétt í DV þar sem fjallað var um nýlega rannsókn í Bretlandi sem sögð var benda til þess að ákjósanlegur fjöldi fyrrum bólfélaga – að mati maka – megi helst ekki vera fleiri en þrír.
Er aðlaðandi að hafa sofið hjá sex?
Háskólarnir í Nottingham, Bristol og Swansea báru veg og vanda af rannsókninni og niðurstöðurnar birtust í „Journal of Sex Research“.
Í rannsókn þessari kom víst í ljós að konum fannst ekki aðlaðandi ef karlmaður hefði sofið …
Athugasemdir