Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

178. spurningaþraut: Þrír íslenskir firðir, dans, filmstjarna, en engin spurning úr algebru!

178. spurningaþraut: Þrír íslenskir firðir, dans, filmstjarna, en engin spurning úr algebru!

Hlekkur gærdagsins!

***

Fyrri aukaspurning:

Myndin hér að ofan er tekin árið 1987 í Moskvu. Ungi maðurinn á myndinni virðast hafa eitthvað til saka unnið. Hvað gæti það verið?

***

Aðalspurningar:

1.   Hvað heitir fjörðurinn milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar?

2.   „Bolero“ merkir ýmist tónverk, eiginlega dans, sem á uppruna sinn á Spáni, eða tiltekin sönglög sem runnin eru frá Kúbu. En tiltekið tónverk sem heitir einfaldlega Bolero er langfrægast allra tónverka sem þetta heiti á við. Eftir hvaða tónskáld er það?

3.   Alfreð Gíslason er einn sigursælasti handboltaþjálfari okkar Íslendinga. Hvaða lið þjálfar hann núna?

4.   Flatey heitir eyja ein sem lengi hefur verið í byggð, og eitt frægasta fornrit okkar Íslendinga er kennt við hana. Í hvaða firði er þessi Flatey?

5.   En svo er til önnur Flatey sem á vísu ekki jafn mikla sögu en er þó myndarlegasta eyja. Í hvaða firði er hún?

6.   Frá hvaða landi er filmstjarnan Charlize Theron?

7.   Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn heita þrjár frægar skáldsögur fyrir börn og ungt fólk eftir Philip Pullman. Þar segir frá stúlku einni sem lendir í ótrúlegum ævintýrum. Hvað heitir stúlkan? Þess má geta að fyrsta bókin hét í sumum enskumælandi löndum Northern Lights, en víðar – og þar á meðal á Íslandi – nefnist hún Gyllti áttavitinn.

8.   Selefkus, Ptolemeus, Antigonus og fleiri voru helstu hjálparkokks frægs herforingja hér á árum áður. Eftir að hann hvarf úr heimi börðust þeir innbyrðis um arfleifð hans. Hvað hét þessi frægi herforingi?

9.   Hversu margir eru dómararnir við fullskipaðan Hæstarétt Bandaríkjanna?

10.   Í hvaða landi var Gamal Abel Nasser lengi æðsti leiðtogi?

 ***

Seinni aukaspurning:

Hvað nefnist þessi sérkennilegi fiskur:

***

Svör við aðalspurningum:

1.   Héðinsfjörður.

2.   Ravel. Hér er hlekkur á snotra útgáfu af þessu verki, Gustavo Dudamel stjórnar Berlínarfílaharmóníunni.

3.   Þýska karlalandsliðið.

4.   Breiðafirði.

5.   Skjálfanda.

6.   Suður-Afríku.

7.   Lýra.

8.   Alexander, kallaður mikli.

9.   Níu.

10.   Egiftalandi.

***

Svör við aukaspurningum:

Maðurinn (Matthias Rust) hafði flogið á lítilli einkaflugvél inn yfir landamæri Sovétríkjanna og lent henni skammt frá Rauða torginu. Ekki er nauðsynlegt að muna nafn hans.

Fiskurinn heitir sleggjuháfur á íslensku, en ef einhver veit að hann kallast hammerhead shark á ensku má líka fá rétt fyrir það.

***

Og hlekkur gærdagsins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Bankasýslan getur ekki gert grein fyrir tug milljóna kaupum á þjónustu
2
Viðskipti

Banka­sýsl­an get­ur ekki gert grein fyr­ir tug millj­óna kaup­um á þjón­ustu

Frá því að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Hún get­ur ekki svar­að því nema að hluta af hverj­um hún keypti þessa þjón­ustu. Mest af því sem stofn­un­in get­ur gert grein fyr­ir fór til Logos, eða alls 15,3 millj­ón­ir króna á átta mán­uð­um í fyrra.
Erum eiginlega að byrja upp á nýtt
4
FréttirRaunir Grindvíkinga

Er­um eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­laus­ar áhyggj­ur af fötl­uð­um syni og aldr­aðri móð­ur hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðn­ir eru síð­an hár­greiðslu­meist­ar­inn Guð­rún Kristjana Jóns­dótt­ir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyld­an ætl­ar ekki að flytja þang­að aft­ur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þeg­ar mað­ur­inn féll of­an í sprung­una,“ seg­ir hún. Sprung­an sem klauf svo íþrótta­hús­ið, ann­að heim­ili sona henn­ar, gerði að end­ingu út­slag­ið.
Segist ekki samþykkja kaup Landsbankans á TM nema bankinn verði einkavæddur
7
Greining

Seg­ist ekki sam­þykkja kaup Lands­bank­ans á TM nema bank­inn verði einka­vædd­ur

Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra seg­ir að rík­is­fyr­ir­tæki eigi ekki að kaupa trygg­inga­fé­lag. Hún ætl­ar að óska skýr­inga frá Banka­sýslu rík­is­ins, stofn­un sem var sett á fót til að koma í veg fyr­ir að stjórn­mála­menn skiptu sér af rekstri rík­is­banka, á kaup­um Lands­bank­ans á TM. Sam­kvæmt eig­enda­stefnu má ekki selja hluti í Lands­bank­an­um fyrr en allt hluta­fé í Ís­lands­banka hef­ur ver­ið selt.
Ríkið ætlar að útvista liðskiptaaðgerðum til einkafyrirtækja í allt að fimm ár
9
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Rík­ið ætl­ar að út­vista lið­skipta­að­gerð­um til einka­fyr­ir­tækja í allt að fimm ár

Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands ætla að út­vista lið­skipta­að­gerð­um, að­gerð­um vegna en­dómetríósu og brjósk­losi með samn­ing­um til allt að fimm ára. Samn­ing­arn­ir gagn­ast einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni sér­stak­lega vel þar sem það fram­kvæm­ir all­ar þess­ar að­gerð­ir. For­stjóri Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri lýs­ir áhyggj­um af auk­inni út­vist­un skurða­gerða til einka­fyr­ir­tækja.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiðslubyrði mun brátt tvöfaldast á fjölmörgum íbúðalánum
2
Neytendur

Greiðslu­byrði mun brátt tvö­fald­ast á fjöl­mörg­um íbúðalán­um

Í nýj­asta hefti Fjár­mála­stöðu­leika Seðla­banka Ís­lands er tal­ið að mið­að við nú­ver­andi efna­hags­að­stæð­ur megi gera ráð fyr­ir því að lán­tak­end­ur haldi áfram að færa sig í yf­ir verð­tryggð lán. Á þessu ári munu fast­ir vext­ir á óverð­tryggð­um lán­um fyr­ir sam­an­lagt 254 millj­arða króna losna. Seðla­bank­inn hvet­ur bank­ana til þess að und­ir­búa sig fyr­ir endu­fjár­mögn­un­ar­áhættu sem gæti skap­ast á næstu miss­er­um.
Bankasýslan getur ekki gert grein fyrir tug milljóna kaupum á þjónustu
6
Viðskipti

Banka­sýsl­an get­ur ekki gert grein fyr­ir tug millj­óna kaup­um á þjón­ustu

Frá því að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Hún get­ur ekki svar­að því nema að hluta af hverj­um hún keypti þessa þjón­ustu. Mest af því sem stofn­un­in get­ur gert grein fyr­ir fór til Logos, eða alls 15,3 millj­ón­ir króna á átta mán­uð­um í fyrra.

Mest lesið í mánuðinum

Aðstandendur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskraði mér gjörsamlega“
4
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Að­stand­end­ur íbúa á Sól­túni beðn­ir um að þrífa: „Þarna blöskr­aði mér gjör­sam­lega“

Stjórn­end­ur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sól­túns báðu að­stand­end­ur íbúa að hjálpa til við þrif með eig­in tusk­um og hreinsi­efn­um ár­ið 2022. Það var eft­ir að eig­end­urn­ir seldu fast­eign hjúkr­un­ar­fé­lags­ins fyr­ir 3,8 millj­arða, leigðu hús­næð­ið af kaup­and­an­um, greiddu sér 2 millj­arða út úr fé­lag­inu og fóru svo í nið­ur­skurð á þjón­ust­unni. Að­stand­end­ur og starfs­fólk lýsa reynslu sinni af starf­sem­inni og þjón­ustu við gamla fólk­ið.
Unglingsstúlku í strætó hótað nauðgun og morði - „Allir heyrðu og sáu en enginn gerði neitt“
5
Fréttir

Ung­lings­stúlku í strætó hót­að nauðg­un og morði - „All­ir heyrðu og sáu en eng­inn gerði neitt“

Sex strák­ar sögðu við 14 ára stúlku í strætó að þeir ætl­uðu að nauðga henni og mömmu henn­ar og síð­an myndu þeir drepa þær báð­ar. Stúlk­an varð dauð­hrædd og þor­ir ekki aft­ur í strætó. Fram­kvæmda­stjóri Strætó seg­ir vagn­stjóra hafa átt að bregð­ast harð­ar við. Móð­ir­in kall­ar eft­ir því að al­menn­ing­ur láti sig ör­yggi sam­ferða­manna sinna varða.
Heilbrigðiseftirlitið lét henda gömlum rækjum á WokOn - „Okkur blöskrar“
6
FréttirRannsóknin á Davíð og Pho Vietnam

Heil­brigðis­eft­ir­lit­ið lét henda göml­um rækj­um á Wo­kOn - „Okk­ur blöskr­ar“

Heil­brigðis­eft­ir­lit Reykja­vík­ur lét henda núðl­um, hrís­grjón­um og rækj­um á veit­inga­stað Wok On í Krón­unni á Fiskislóð í des­em­ber. Stað­ur­inn fékk fall­ein­kunn hjá eft­ir­lit­inu í byrj­un des­em­ber og var starf­sem­in stöðv­uð að hluta. „Við tök­um þetta mjög al­var­lega,“ seg­ir fram­kvæmda­stjóri Krón­unn­ar. Henni finnst að nið­ur­stöð­ur eft­ir­lits­ins ættu að vera að­gengi­legri.
Ferðasagan: Frá sprengjuregni á Gaza í hljóðlátan Hafnarfjörð
8
Viðtal

Ferða­sag­an: Frá sprengjuregni á Gaza í hljóð­lát­an Hafn­ar­fjörð

Fyr­ir ör­fá­um vik­um bjuggu Abeer Herzallah og dæt­ur henn­ar þrjár í tjaldi í Rafah. Há­vað­inn í sprengj­um var orð­inn al­vana­leg­ur og þeim fannst dauð­inn nálg­ast. Svo breytt­ist allt við skila­boð­in: „Þið er­uð komn­ar með leyfi til að fara héð­an.“ Það var kom­inn tími á ferða­lag til Ís­lands, til eig­in­manns­ins sem Abeer hafði ekki hitt í tvö ár.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár