Hér er hlekkur á þraut gærdagsins.
***
Aukaspurning, sú fyrri:
Ljósmyndina hér að ofan tók Joseph Nicéphore Niépce í bænum Le Gras í Frakklandi. Hvað þykir vera merkilegt við hana?
***
Aðalspurningar:
1. Hvað heitir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins? Í þessu sjaldgæfa tilfelli er föðurnafn hans ónauðsynlegt.
2. Hvað heitir formaður Stjórnarskrárfélagsins?
3. Hvað heitir höfuðborgin í Hvíta-Rússlandi?
4. Einn af patríörkum Gamla testamentisins hét Abraham og einu sinni tók guð upp á því að skipa honum að drepa son sinn. Abraham hugðist hlýða guði en guð aflýsti þá öllu saman. Hvað hét sonurinn?
5. Í hvaða hljómsveit heitir söngvarinn Till Lindemann?
6. Í Afríku er land eitt sem heitir Sierra Leone. Hvað þýðir þetta nafn?
7. Hvað var teiknimyndapersónan Flash Gordon kölluð á íslensku?
8. Hvert er embættisheiti skólastjórans við Háskóla Íslands?
9. Hver hefur spilað flesta landsleiki í handbolta karla fyrir Ísland?
10. Hvað heitir síðari eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrum forseta?
***
Aukaspurning, sú seinni:
Hvað heita þessir tveir menn? Nöfn þeirra beggja eru nauðsynleg, en eftirnöfnin duga alveg.

***
Svör við aðalspurningum:
1. Halldór Benjamín.
2. Katrín Oddsdóttir.
3. Minsk.
4. Ísak.
5. Rammstein.
6. Ljónafjöll.
7. Hvell-Geiri.
8. Rektor.
9. Guðmundur Hrafnkelsson.
10. Dorrit Moussaieff.
***
Svör við aukaspurningum:
Efri myndin er talin fyrsta ljósmyndin sem tekin var í sögunni, eða árið 1826.
Ekki er nauðsynlegt að vita ártalið.
Á neðri myndinni eru bandarísku blaðamennirnir Bernstein og Woodward, sem skrifuðu þær fréttir sem áttu mikinn þátt í að koma upp um Watergate-málið sem felldi Nixon Bandaríkjaforseta.
***
Og aftur, hlekkur á þraut gærdagsins.
Athugasemdir