Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Sonur minn er klámfíkill

Móð­ir ung­lings­drengs, sem þró­aði með sér klámfíkn þeg­ar hann var 13 ára, er þakk­lát stúlku sem sagði frá því að hann hefði dreift kyn­ferð­is­leg­um mynd­um af henni. Hún seg­ir ómögu­legt að segja til um hvernig hegð­un­in hefði þró­ast hefði stúlk­an ekki lát­ið vita. Eyj­ólf­ur Örn Jóns­son sál­fræð­ing­ur hef­ur haft níu ára göm­ul börn til með­ferð­ar vegna klámá­horfs.

Sonur minn er klámfíkill
Fékk stuðning Drengurinn kemur ekki fram undir nafni og myndir eru sviðsettar. Hann fékk stuðning barnaverndar til að taka á vandanum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er þakklát stúlkunni sem sagði frá því að hann hefði dreift myndum af henni. Það hefur örugglega ekki verið auðvelt fyrir hana.“ Þetta segir móðir unglingsdrengs, sem þróaði með sér klámfíkn þegar hann var 13 ára og dreifði kynferðislegum myndum af jafnöldrum sínum. Hún segir ómögulegt að segja til um hvernig þessi hegðun hefði þróast hefði stúlkan ekki látið vita. Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur segir klámfíkn ungmenna falið vandamál og hann hefur haft níu ára gömul börn til meðferðar vegna klámáhorfs.

„Við foreldrarnir höfðum haft áhyggjur af honum í nokkurn tíma. Hann var kominn í nýjan félagsskap stráka sem við þekktum ekki, einkunnum hans hafði hrakað, hann var orðinn hortugur og lyginn og komst ítrekað upp á kant við fjölskyldu, vini og kennara. Í þokkabót var hann gripinn við að veipa. Við höfðum rætt við sálfræðing skólans, sem gerði mat á honum þar sem ekkert athugavert kom fram. Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár