Nýtt efni
Lífið breyttist þegar ég eignaðist litla systur
Kristín var að dimmitera þegar blaðamaður náði tali af henni. Hún segir að líf sitt hafi breyst mest við það að hafa eignast litla systur, þá hafi hún lært að elska.
Framboð Viktors úrskurðað gilt
Framboð Viktors Traustasonar til embættis forseta Íslands hefur verið úrskurðað gilt. Tólf eru því í framboði.
Fjármálaráð segir nýja fjármálaáætlun reiða sig um of á búhnykki og óútfærðar útgjaldalækkanir
Lítið má út af bregða til þess að markmið ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum nái fram að ganga. Í nýlegri álitsgerð sem Fjármálaráð lagði fyrir þingið er ný fjármálaáætlun gagnrýnd fyrir ógagnsæi og fyrir að reiða sig um of á óútfærðar lausnir til þess að lækka útgjöld og auka tekjur ríkisins.
Dagur Hjartarson
Stórkostlegar fréttir
Dagur Hjartarson skrifar um gervi-viðburði, viðburði sem eru sviðsettir svo hægt sé að flytja af þeim fréttir.
„Mér hefur ekki verið nauðgað“
„... þó að fjórar ríkisstjórnir hafi gengið úr skugga um að flokka, bæla niður og jafnvel þurrka út eiginlega öll mest afgerandi sönnunargögnin tókst þeim ekki að halda lokinu á samráði og misferli sínu,“ skrifar prófessor Nils Melzer sem rannsakaði mál Julian Assange sem sérstakur skýrslugjafi fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Skýrslan kom út sem bók.
Gerður G. Óskarsdóttir og Þuríður Jóna Jóhannsdóttir
Stytting framhaldsskólans í ljósi þróunar grunnskólans og leikskólans
Umræðan um styttingu framhaldsskólanáms hefur einkum snúist um undirbúning fyrir háskólanám. fyrrverandi fræðslustjóri Reykjavíkur og prófessor emerita við Menntavísindasvið HÍ segja að það þurfi að horfa á málið frá fleiri hliðum.
Gunnar Hansson
Eru þetta mistök?
Gunnar Hansson leikari hefur lært það af lífinu hversu mikilvægt er að hlusta og það dýrmætasta sem hann hefur lært er að hræðast ekki mistök því þau eru tækifæri til þess að læra af þeim.
Lára Guðrún Jóhönnudóttir
Að komast yfir ládeyðuna
Þetta er fallegt samfélag sem við búum í, en ógeðslegt stjórnarsamstarf. Engin prinsipp, engar hugsjónir, bara tækifærismennska og valdabarátta.
Sú eina á Íslandi sem framleiðir og selur náttúrulegar ilmkjarnaolíur
Hraundís Guðmundsdóttir segir ekki hægt að selja náttúrulegar ilmkjarnaolíur ódýrt. Það sé mikið ferli að búa þær til. „Það er mikið drasl á markaðnum og fólk þarf að passa sig á að kaupa náttúrulega vöru. Það sést oft á verðinu.“
Geirdís Hanna Kristjánsdóttir
Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk
Fatlað fólk er líka fólk og vil bara fá að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra á sínum forsendum en ekki skerðingum og takmörkunum, líkt og um fangabúðir væri að ræða.
Halla Tómasdóttir
Með mennskuna að leiðarljósi
„Ég hvet íslensk fyrirtæki til að velta fyrir sér hvernig þau geti lagst á árar um að gefa fólki tilgang og tækifæri, þeim og samfélaginu til góðs,“ skrifar Halla Tómasdóttir, forsetaframbjóðandi. Hún skrifar stuttlega um sögu Hamdi Ulukaya sem er tyrkneskur smali sem flúði til Bandaríkjanna til að læra ensku. Hann stofnaði stór fyrirtækið Chobani sem er í dag stærsti framleiðandi grísks jógúrts í Bandaríkjunum og hvernig hann. Þar ræður hann helst inn innflytjendur og flóttafólk til vinnu.
Telur að rótgrónum fjölmiðlum hætti til samvaldstilfinningar með valdinu
Mega staðreyndir sín einhvers gagnvart ímynd? Hvað gerist þegar rótgrónir fjölmiðlar finna til samvaldstilfinningar með valdinu? Nokkuð sem virðist hafa verið raunin í umfjöllun um Julian Assange, að mati Kristins Hrafnssonar.
Toves Værelse
Stormasamt samband listahjónanna Tove og Victor í kvikmyndinni Toves Værelse er til umræðu í nýjasta þætti af Paradísarheimt. Þátturinn er í boði Lamb Street Food.
Hættur að elta frægð og vill „bara fá að leika“
Andri Freyr Sigurpálsson vissi ungur að hann vildi vera leikari. Það hefur þó reynst þolinmæðisverk að ná því markmiði og hann hefur þurft að sýna seiglu til að halda áfram að elta drauminn. Í október verður fyrsta kvikmyndin sem hann fer með aðalhlutverkið í frumsýnd.
Eurovision í skugga mótmæla – veisluhöld og vígbúnaður í Malmö
Það er ekki tekið út með sældinni að efna til Eurovisionhátíðar. Þessu eru íbúar Malmö að átta sig á nú þegar hátíðarhöldin eru að hefjast. Emil B. Karlsson hefur fylgst með fréttaflutningi sænskra fjölmiðla af áhyggjum sem fylgja gleðihátíðinni.
Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið
Alþingi samþykkti rétt í þessu að skipa rannsóknarnefnd vegna snjóflóðsins sem féll á Súðavík í janúar 1995. Fjölmörgum spurningum er ósvarað um það hvernig yfirvöld brugðust við í aðdraganda og eftirleik flóðanna. Fjórtán létust í flóðinu þar af átta börn. Aðstandendur hinna látnu hafa farið fram á slíka rannsókn síðan flóðið varð. Nýjar upplýsingar í málinu komu fram í rannsókn Heimildarinnar fyrir ári.