Nýtt efni
Baldur segist persónulega vera á móti íslenskum her
Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi fullyrðir að hann sé á móti því að stofnaður sé her á Íslandi. „Við erum herlaus þjóð og við eigum að vera það,“ segir hann í nýjasta þætti Pressu. En Baldur hafði áður viðrað hugmyndina um varnarlið áður en hann fór í framboð.
„Mjög skrítið að sjá andlitið á sér alls staðar“
Þegar Heimildin ræddi við Sigríði Hrund Pétursdóttur hafði hún ekki náð tilskildum fjölda meðmælenda til að geta boðið sig fram í komandi forsetakosningum. Hún dró framboð sitt til baka daginn sem forsetaframbjóðendurnir skiluðu undirskriftalistanum. Sigríður svaraði ekki hversu miklum fjárhæðum hún eyddi í framboðið.
„Illmenni eru bara alltaf erfið“
Jón Gnarr var ekki reiðubúinn að svara með afgerandi hætti hvaða stjórnmálamenn eða þjóðarleiðtoga hann átti við þegar hann sagði, í viðtali við Heimildina, ekki munu kinka kolli í átt að illmennum verði hann kjörinn forseti Íslands.
Hver fannst þér standa sig best í kappræðunum?
Í nýjasta þætti Pressu í morgun mættu fjórir frambjóðendur til forseta Íslands í kappræður – þau Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir. Hver stóð sig best að þínu mati?
Fylgið á hreyfingu og Halla Hrund á skriði
Nú, líkt og síðast þegar nýr forseti var kosinn, eru fjórir frambjóðendur að mælast með tveggja stafa fylgi. Árið 2016 var hins vegar sá sem vann á endanum að mælast með langmest fylgi allan tímann. Í dag er ekki marktækur munur milli efstu frambjóðenda.
„Ég hef orðið fyrir blæstri úr ólíkum áttum“
Halla Hrund Logadóttir vék sér undan því í Pressu að svara spurningum um hvort hún hefði orðið fyrir þrýstingi frá ráðherra eða stjórnvöldum í starfi sínu sem orkumálastjóri þar sem áherslur hennar voru gjarnan á skjön við áherslur ríkisstjórnarinnar. Endurtekið sagðist hún tala fyrir almannahagsmunum.
„Forsætisráðherrann Katrín er náttúrulega bara manneskjan Katrín“
Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra var meðal viðmælenda í Pressu í dag. Hún var spurð hvort hefði tekið nógu vel á ummælum þáverandi utanríkisráðherra um tjaldbúðirnar svokölluðu á Austurvelli fyrr á árinu. „Ég ætla bara að tala fyrir mín ummæli en ekki ummæli annarra,“ svaraði Katrín, líkt og áður.
Þórður Snær Júlíusson
Elsku ráðherrar, hættið að gefa Ísland
Nú stendur til að gefa norskum laxeldisfyrirtækjum íslenska firði til eignar. Þegar er búið að gefa örfáum útgerðarfjölskyldum hundruð milljarða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa farið í samfélagslega uppbyggingu. Vilji er til þess að gefa einkaaðilum vindorku en enginn vilji til þess að rukka ferðaþjónustu fyrir nýtingu á almannagæðum. Hvað gengur íslenskum ráðamönnum eiginlega til?
Fjögur fræknustu í Pressu
Katrín, Baldur, Jón Gnarr og Halla Hrund mætast í fyrsta sinn í kappræðum í Pressu.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Starfsmenn Alvotech lýsa vinnuálaginu sem ómanneskjulegu og hafa leitað til stéttarfélaga út af ógreiddri yfirvinnu og fleiri málum. Vinnuaðstæðurnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá markaðsleyfi fyrir samheitalyf Humira í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dregist saman og samheitalyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Bandaríkjunum og reiknað var með.
Ég drap mig næstum á vinnu
Martyna Daniel lærði það þrítug að sama hversu áhugaverð og skemmtileg vinna er þá má hún ekki taka yfir alla hluta lífsins. Hún fór í kulnun og veikindaleyfi en fór svo að starfa á Borgarbókasafninu og vinnur í dag sem sérfræðingur fjölmenningarmála þar enda kann hún frönsku, spænsku, pólsku, ensku og íslensku.
Spyr hvort tengsl flóttafólks við hryðjuverkasamtök verði rannsökuð
Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill fá að vita hvort til standi að rannsaka bakgrunn flóttafólks út frá mögulegum tengslum við hryðjuverkasamtök. Tæpur áratugur er síðan að annar þingmaður flokksins velti fyrir sér bakgrunnsskoðun á flóttafólki og var fordæmdur fyrir af allri flokksforystunni.
Kristín Davíðsdóttir
Að sýna samhygð
Eitt það mikilvægasta sem lífið hefur kennt Kristínu Davíðsdóttur hjúkrunarfræðingi er að með því einu að vera til staðar og sýna samhygð getur maður gert ansi mikið. „Við þurfum ekki að hræðast það að taka upp mál eða ræða þótt við höfum ekki lausn – við getum alltaf sýnt samhygð.“
Sjálfstæðisflokkurinn mælst með minna en 20 prósent fylgi samfleytt í meira en ár
Vinstri græn hafa aldrei mælst með minna fylgi í könnun Maskínu og yrðu minnsti flokkurinn á þingi ef kosið yrði í dag, ef þau kæmust yfir höfuð inn. Samfylkingin mælist nú stærri en nokkru sinni áður á kjörtímabilinu og Miðflokkurinn er stöðugur í kjörfylgi sínu frá 2017.
„Við erum ekki í Amazon – við erum á Íslandi“
Stórtæk skógrækt á Íslandi gæti samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar skilað litlum ef nokkrum ávinningi fyrir loftslagið. „Það er ekki hægt að gróðursetja bara tré og ætla þannig að redda málunum og bjarga heiminum,“ segir Pawel Wasowicz, doktor í grasafræði. Náttúran sé ekki einföld og á hana ekki hægt að leika.