Þessi færsla er meira en 6 ára gömul.

Hvenær tekur maður pokann sinn

Hvenær tekur maður pokann sinn

Að taka pokan sinn er svona jákvæðari athöfn en að vera sparkað jafnvel leggja á flótta. Knattspyrnuþjálfarar taka frekar pokann sinn en vera sparkað. Sársaukaminna.

Held ekki að stjórnmálaflokkar reki fólk úr flokkum hér á landi. Ég var einu sinni beðinn að taka pokann [minn] úr stjórnmálaflokki. Sjá síðar.

En hvenær er nóg, nóg? 

Pæling mín kviknaði vegna þeirra sem nú segja sig úr Vinstri grænum, af þeirri ástæðu að farið er í formlegar viðræður við höfuðandstæðinginn. Viðræður sem alls ekki er víst að leiði til niðurstöðu.

Í grunnnámi kennum við börnunum að tala sig niður að niðurstöðu.

-"Ég vil EKKI leika við Bjaddna hann er svoooo frekur!"- Slík samskipti reynum við að bæta.

Í alvörulandi er þetta að gerast.

Samt skil ég fólk sem tekur pokann sinn. Það er prinsipp fólk en ekki heypokar.

Vonandi skilst þetta.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni