Árið 2014 var það heitasta á plánetunni síðan mælingar hófust. Það hélt metinu alveg þangað til mælingarnar fyrir árið 2015 komu í hús. Janúar 2016 var heitasti janúarmánuður sem mælst hefur, hitinn þá var á heimsvísu 1,15 gráðum hærri að meðaltali en hann var fyrir tíma iðnbyltingar. Febrúar var miklu, miklu heitari, heilum 1,35 gráðum yfir meðaltali á heimsvísu. Á sumum svæðum á Norðurskautinu var hitinn sextán gráðum hærri en á meðalári.
Loftslagsvísindamenn segja að nú ríki neyðarástand í loftslagsmálum. Almennt er talið að fari hitastig yfir tvær gráður að meðaltali verði breytingarnar á lífríkinu óafturkræfar og hættan á því að hitabreytingin valdi keðjuverkun sem veldur enn meiri hita eykst til muna. Það veit enginn nákvæmlega hvar hættumörkin liggja, en við vitum að það er stórhættulegt að fara yfir þau.
Loftslagið hefur áhrif á veðurfar. Veðurfar getur raskað matvælaframleiðslu.
Neyðarástand í loftslagsmálum þýðir neyðarástand á nær öllum sviðum sem snerta daglegt líf okkar. Breytingarnar af mannavöldum eru það hraðar að margar tegundir munu ekki geta lagað sig að þeim og munu því deyja út. Loftslagið hefur áhrif á veðurfar. Veðurfar getur raskað matvælaframleiðslu. Fæðuskortur veldur deilum og getur leitt til styrjalda. Styrjaldir leiða til þess að fólk leggur á flótta. Loftslagið hefur áhrif á hafstrauma. Breytingar á þeim geta til dæmis þýtt að þeir fiskistofnar sem við nýtum missi lífsviðurværi sitt eða færi sig um set. Loftslagið hefur áhrif á jöklana sem sjá okkur fyrir vatni til rafmagnsframleiðslu. Og þegar jöklar heimsins bráðna hækkar sjávarborð. Gríðarlega fjölbýl svæði, stórar borgir og ræktarlönd fara undir vatn. Afleiðingarnar verða matvælaskortur og stórfelldir fólksflutningar. Þegar hitastig hækkar fjölgar moskítóflugum. Það getur leitt til aukinnar útbreiðslu sjúkdóma. Sumir vilja jafnvel rekja Zika-faraldurinn í latnesku Ameríku til loftslagsbreytinga.
Það ríkir neyðarástand. Við vitum hvað við þurfum að gera en við höfum skamman tíma til að bregðast við. Jafnvel enn skemmri en áður var talið, ef síðustu mánuðir gefa forsmekkinn af því sem koma skal.
Nú er tíminn til að gera þetta af alvöru. Það mun kosta fórnir, en trúið mér, það mun verða þess virði. Nennir einhver að hringja í ríkisstjórnina og athuga hvort hún sé ekki örugglega on it?
Athugasemdir