Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Kolrangar fullyrðingar rötuðu í fréttatíma: „Þetta leit sérkennilega út“

Nem­andi við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri skil­aði loka­rit­gerð þar sem geng­ið var út frá því að tekj­ur af virð­is­auka­skatti væru að­eins ör­fá­ir millj­arð­ar. „Best hefði ver­ið ef mér hefði tek­ist að benda hon­um á að sækja til toll­stjóra það sem þar er,“ seg­ir leið­bein­andi nem­andans.

Kolrangar fullyrðingar rötuðu í fréttatíma: „Þetta leit sérkennilega út“

„Það verður örugglega farið yfir þetta hjá deildinni,“ segir Helgi Gestsson, lektor við Háskólann á Akureyri og leiðbeinandi Jóhanns Magnúsar Elíassonar, nýútskrifaðs viðskiptafræðings sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 um helgina og hélt því ranglega fram, með vísan til eigin rannsókna, að virðisaukaskattur skilaði nær engum tekjum í ríkissjóð. 

Í lokaritgerð Jóhanns er fullyrt að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti hafi einungis numið tæpum 19 milljörðum árið 2012. Með uppflettingu í ríkisreikningi má hins vegar sjá að tekjur af virðisaukaskatti námu samtals 142,4 milljörðum árið 2012 og voru 27,1 prósent af heildartekjum ríkissjóðs. Í ritgerðinni er einvörðungu byggt á Excel-skjali frá ríkisskattstjóra sem sýnir innskatt og útskatt hjá ýmsum atvinnugreinum en ekki þann virðisaukaskatt sem almennir neytendur greiða vegna kaupa á vöru og þjónustu. Fékk ritgerðin sérstaka vigt í fréttatíma Stöðvar 2 þar sem rætt var við Jóhann og niðurstöður hans kynntar með myndrænum hætti.

Jóhann þakkar Helga Gestssyni leiðbeinanda sínum sérstaklega fyrir gott samstarf fremst í ritgerðinni. „Leiðbeinanda mínum Helga Kristínarsyni Gestssyni þakka ég alveg sérstaklega fyrir að hafa aðstoðað mig og leitt mig áfram við þetta verkefni og þegar ég fór aðeins af réttri leið leiðrétti hann stefnuna jafnóðum,“ skrifar Jóhann Magnús. 

Stundin hafði samband við leiðbeinandann. „Í ritgerðinni koma fram fyrirvarar og í niðurstöðukaflanum segir að þarna sé notað gagnasafn frá ríkisskattstjóra um skattskylda veltu og undanþegna veltu. Það er út frá því sem ályktanirnar eru dregnar,“ segir Helgi Gestsson. „Því miður þá er ekki inn í þeim gögnum það sem innheimt er hjá tollstjóra, en allt annað er þarna. Ég reyndar hljóp inn í þetta á miðju tímabili og þá var hann búinn að vinna töluvert í þessari sundurliðun sem hann er með. Þá kemur í ljós að tölurnar eru dálítið skrítnar. Þess vegna eru settir þessir fyrirvarar, sú forsenda að niðurstöðurnar miðist við það gagnasafn sem hann notaði. Hann dregur svo ályktanir út frá þessu, en í viðtalinu alhæfir hann um virðisaukaskatt almennt.“ 

Helgi segist hafa haft samband við ríkisskattstjóra til að fá gögnin staðfest. „Því þetta leit sérkennilega út og þess vegna komu fyrirvararnir og út frá þeim forsendum vinnur hann verkefnið. Ekki skal ég þó sleppa því að viðurkenna að best hefði verið ef mér hefði tekist að benda honum á að sækja til tollstjóra það sem þar er.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Há­skóla Ís­lands seg­ir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Há­skóla Ís­lands, seg­ir að til­boð há­skóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi há­skóla vera um­fangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögn­un há­skóla­kerf­is­ins. Ekk­ert sam­ráð hafi ver­ið haft við stjórn­end­ur skól­ans en ljóst þyk­ir að breyt­ing­in muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þeg­ar erf­ið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja nið­ur náms­leið­ir.
Björgólfur Thor á stórhýsi á svæði háskólans í gegnum Lúxemborg
FréttirHáskólamál

Björgólf­ur Thor á stór­hýsi á svæði há­skól­ans í gegn­um Lúx­em­borg

Ekki ligg­ur end­an­lega fyr­ir hvaða starf­semi verð­ur í Grósku hug­mynda­húsi ann­að en að tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­ið CCP verð­ur þar til húsa. Bygg­ing­in er í eigu fé­laga Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar og við­skipta­fé­laga hans sem eru í Lúx­em­borg. Vís­inda­garð­ar Há­skóla Ís­lands eiga lóð­ina en ráða engu um hvað verð­ur í hús­inu.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Við­mið­um al­þjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi há­skól­ans og Út­lend­inga­stofn­un­ar um ald­urs­grein­ing­ar

Há­skóli Ís­lands hyggst festa í sessi um­deild­ar lík­ams­rann­sókn­ir á hæl­is­leit­end­um sem stand­ast ekki kröf­ur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefnd­ar SÞ og UNICEF um þverfag­legt mat á aldri og þroska. Tann­lækn­ar munu fá 100 þús­und krón­ur fyr­ir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drög­um að verk­samn­ingi sem Stund­in hef­ur und­ir hönd­um.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
3
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
7
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
5
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
8
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
9
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Brosir gegnum sárin
10
ViðtalHlaupablaðið 2024

Bros­ir gegn­um sár­in

Andrea Kol­beins­dótt­ir, marg­fald­ur Ís­lands­meist­ari í hlaup­um, ger­ir hlé á lækn­is­fræði til að reyna að verða at­vinnu­hlaup­ari. Hún deil­ir lær­dómi sín­um eft­ir hindr­an­ir og sigra síð­ustu ára. Fjöl­skyldu­með­lim­ir hafa áhyggj­ur af hlaup­un­um, en sjálf ætl­ar hún að læra meira á manns­lík­amann til að bæta sig og hjálpa öðr­um. Hlaup­in snú­ast um sig­ur hug­ans og stund­um bros­ir hún til að plata heil­ann.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár