Sósíalistaflokkurinn mælist stærri en Vinstri græn

Ný könn­un sýn­ir svip­aða stöðu í ís­lensk­um stjórn­mál­um og ver­ið hef­ur að birt­ast síð­ustu mán­uði. Tveir flokk­ar bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ing­um, þrír standa í stað en stjórn­ar­flokk­arn­ir tapa stórt.

Sósíalistaflokkurinn mælist stærri en Vinstri græn
Í mótvindi Guðmundur Ingi Guðbrandsson tók við formennsku í Vinstri grænum í síðasta mánuði eftir að Katrín Jakobsdóttir steig frá borði og fór í forsetaframboð. Kannanir benda til þess að flokkur hans geti þurrkast út í næstu kosningum. Mynd: Golli

Sósíalistaflokkur Íslands, sem fékk ekki nægilega mörg atkvæði í kosningunum 2021 til að komast inn á þing, mælist nú með meira fylgi en Vinstri græn. Fyrrnefndi flokkurinn nýtur stuðnings 4,4 prósent kjósenda samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á meðan að 4,3 prósent ætla sér að kjósa þann síðarnefnda, sem situr í ríkisstjórn og hefur gert það samfleytt frá árinu 2017. 

Fylgi flokka samkvæmt könnun Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands

Félagsvísindastofnun gerir ekki reglulega kannanir og sú sem birt var í gær mældi einnig fylgi forsetaframbjóðenda. Það sem gerir hana frábrugðna öðrum könnunum sem gerðar hafa verið á fylgi slíkra frambjóðenda og fylgi flokka undanfarnar vikur og mánuði er þar eru fleiri svarendur, eða alls 2.638. Gögnin voru svo vigtuð til að endurspegla þýðið sem best. 

Breiðu línurnar í könnuninni eru svipaðar þeim og birtast annarsstaðar. Samfylkingin mælist stærsti flokkur landsins með 25,4 prósent fylgi, sem er aðeins minna en hún hefur verið að mælast með í öðrum könnunum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 19 prósent fylgi og er á svipuðum slóðum og hann hefur verið undanfarna mánuði. Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn með 13,4 prósent og Framsóknarflokkurinn kemur þar á eftir með slétt tíu prósent. Píratar (8,1 prósent), Viðreisn (7,9 prósent) og Flokkur fólksins (7,3 prósent) eru svo öll á svipuðu reki líkt og verið hefur í síðustu könnunum annarra mælingarfyrirtækja. 

Tveir bæta við sig, þrír standa í stað en stjórnin tapar stórt

Allar vísbendingar í könnun Félagsvísindastofnunar eru því í takti við það sem hægt er að sjá út úr könnunum annarra síðustu mánuði. Samfylkingin og Miðflokkurinn eru þeir tveir stjórnmálaflokkar sem hafa bætt við sig fylgi á kjörtímabilinu, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólksins eru meira og minna á svipuðum slóðum og þeir flokkar voru í kosningunum 2021 en ríkisstjórnarflokkarnir þrír hafa allir tapað umtalsverðu fylgi, samtals um 20 prósentustigum frá því að kosið var síðast, og njóta nú stuðnings rétt um þriðjungs þjóðarinnar. 

Það sem er frábrugðið í könnun Félagsvísindastofnunar, og hefur ekki sést í öðrum könnunum, er að eini flokkurinn sem er með mælanlegt fylgi en án fulltrúa á Alþingi, Sósíalistaflokkur Íslands, mælist stærri en Vinstri græn, þótt ekki sé marktækur munur á fylginu ef tekið er tillit til skekkjumarka. Um er að ræða flokka sem sækja í sama kjósendahópinn lengst til vinstri í íslenskum stjórnmálum. 

Fylgið dreifist svipað

Miðað við stöðu mála í könnun Félagsvísindastofnunar þá er dreifing atkvæða milli þeirra níu flokka sem mælast með eitthvað fylgi ekki mjög frábrugðin því sem hún var í síðustu kosningum. Flokkarnir hafa hafa einfaldlega skipt um sæti á vinsældalistanum. Þannig er hefur Samfylkingin (25,4 prósent) tekið við forystusætinu af Sjálfstæðisflokknum, sem fékk 24,4 prósent í síðustu kosningum. Sá flokkur, sem mælist nú með 19 prósent, hefur tekið við hlutverki Framsóknarflokks sem fékk 17,3 prósent árið 2021.

Miðflokkurinn, sem rétt náði inn á þing í síðustu kosningum með 5,4 prósent hefur haft sætaskipti við Vinstri græn, sem fékk 12,6 prósent haustið 2021, en mælast nú minnsti flokkurinn á þingi með 4,3 prósent á meðan að Miðflokkurinn er sá þriðji stærsti með 13,4 prósent.  Framsóknarflokkurinn, sem mælist með tíu prósent, er svo kominn á þann stað sem Samfylkingin var fyrir tveimur og hálfu ári, þegar hún fékk 9,9 prósent atkvæða þegar talið var upp úr kjörkössunum. 

Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð var á tímabilinu 22.-30. apríl.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Katrín skilur Vg eftir vegalaust með brotthlaupi sínu, og ríkisstjórnarsamstarfið í meira uppnámi en áður. Skv. þessari könnum falla um 9% atkvæða dauð, sem gagnast mest Samfylkingunni sem stæsta flokknum.
    2
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Þó að ég sé í rauninni ekki hissa á gengi VG og þann þátt sem Katrín Jakobsdóttir á í þeirri vegferð er ég þó algerlega viss um að hún passar best í forsetembættið vegna reynslu sinnar af samskiptum við erlenda ráðamenn og konur en ég er ekki viss um að eg kjósi hana. En það eru þarna 11 aðrir frambjóðendur hver öðrum fýsilegri , frambæilegasta fólk en þau hafa frekar litla
    reynslu. En maður verður víst að nota úllin dúllin doff aðferðina eða ugla sat á kvisti.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
3
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
5
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Bjarni segir þetta ár það sterkasta í íslenskri efnahagssögu
8
Fréttir

Bjarni seg­ir þetta ár það sterk­asta í ís­lenskri efna­hags­sögu

„Þetta er sterk­asta ár Ís­lands í efna­hags­sög­unni,“ full­yrti Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og nú­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á Al­þingi. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formað­ur Við­reisn­ar, bað ráð­herra að „girða sig í brók“, skoða stóru mynd­ina og taka ut­an um alla hópa, ekki bara sína eig­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
1
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
7
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
10
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár