Þessi grein birtist fyrir rúmlega 7 mánuðum.

„Við hættum ekki fyrr en hann er kominn aftur til okkar“

Þó að vall­ar­stjóra Þrótt­ar hafi ver­ið vís­að úr landi eldsnemma í morg­un ætla fé­lag­ar hans í Þrótti ekki að leggja ár­ar í bát. Þeir líta á ferð vall­ar­stjór­ans sem frí sem hann muni koma aft­ur úr bráð­lega. „Allt snýst um að koma hon­um heim fyr­ir jól,“ seg­ir þjálf­ari hjá Þrótti.

„Við hættum ekki fyrr en hann er kominn aftur til okkar“
Isaac Kwateng Kom hingað til lands í janúarmánuði árið 2018 og hefur verið hér síðan. Hann hefur sótt um ríkisborgararétt sem verður væntanlega tekinn fyrir á Alþingi í desembermánuði. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Nóttin var löng fyrir Isaac Kwateng, vallarstjóra Þróttar, sem vissi að klukkan fimm um morguninn myndu lögreglumenn birtast og vísa honum úr landi. Fjórir af hans nánustu aðstandendum hér á landi voru með honum í nótt til þess að styðja hann þessar síðustu stundir á Íslandi – í bili. 

Stundvíslega klukkan fimm í morgun bönkuðu lögreglumenn svo upp á heimili framkvæmdastjóra Þróttar þar sem Isaac var með sínum nánustu. Þeir voru óeinkennisklæddir en vingjarnlegir. Lögreglumennirnir spjölluðu við Isaac og aðstandendur hans um stund og svo var komið að því. Isaac var fluttur á brott í bifreið þeirra og er nú í flugvél á leið til Hollands hvaðan hann flýgur svo í lögreglufylgd til Gana. 

Jón Hafsteinn Jóhannsson, þjálfari hjá Þrótti var með Isaac í nótt. 

„Maður var alveg fram á síðustu stundu með von um að þetta yrði ekki,“ segir Jón Hafsteinn. „Maður upplifir ákveðinn tómleika. Mér finnst fjara aðeins undan því að maður sé stoltur Íslendingur. Mér finnst það mjög miður.“

Er áfram starfsmaður Þróttar

Isaac kom til landsins í janúarmánuði árið 2018. Hann fékk neitun um alþjóðlega vernd síðar sama ár og árlega síðan fékk hann símtal um að vísa ætti honum úr landi. Honum var hafnað um alþjóðlega vernd árið 2018 en aftur og aftur endurtók sama atburðarásin sig. Enginn kom og færði hann með valdi úr landi. Ekki fyrr en í morgun. 

Fyrir tæpum tveimur árum var Isaac ráðinn sem vallarstjóri Þróttar og hefur síðan þá sinnt starfinu með mikilli prýði að sögn framkvæmdastjóra félagsins og annarra starfsmanna þess. 

„Við verðum bara handlama hérna án hans,“ sagði María Edwardsdóttir framkvæmdastjóri við Heimildina í byrjun mánaðar. „Þetta mun koma sér mjög illa fyrir okkur.“

Símtöl„Árlega hefur lögreglan hringt í mig,“ sagði Isaac í samtali við Heimildina fyrr í þessum mánuði.Heimildin / Davíð Þór

Þróttur hélt styrktarleik fyrir Isaac um helgina. Um 700 manns mættu og safnaðist nægt fé til þess að styðja við Isaac til að byrja með. Með sjóðnum hefur Þróttur keypt hótelgistingu fyrir Isaac í tvær vikur í Gana og mun starfsfólk hótelsins sækja Isaac á flugvöllinn þegar hann lendir þar í lögreglufylgd. 

Þróttarar eru bjartsýnir á framhaldið. Þrjár umsóknir sem gætu tryggt veru hans hér á landi eru opnar í kerfinu: Umsókn um dvalar og atvinnuleyfi, umsókn um ríkisborgararétt sem tekin verður fyrir í desember og umsókn um atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk, en Isaac spilar knattspyrnu með SR, varaliði Þróttar. 

„Nú er fókus okkar allra farinn á það að tryggja komu hans heim sem fyrst,“ segir Jón Hafsteinn og bætir við því að Þróttur horfi á fjarveru Isaacs eins og frí. 

„Við lítum enn á það þannig að hann sé starfsmaður félagsins. Nú ganga aðrir að einhverju leyti í hans störf á meðan hann er ekki við. Hann á auðvitað rétt á sínu fríi, við horfum á það þannig að hann sé í fríi og núna hjálpast aðrir starfsmenn félagsins að.“ 

ÞróttariIsaac sagði Þróttarana fjölskyldu sína.Heimildin / Davíð Þór

Og Isaac ætlar að nýta ferð sína til Gana, sem hann segist hafa yfirgefið í miklum flýti árið 2017 vegna árásar sem beindist að honum og vini hans, í að afla þeirra gagna sem hann þarf frá upprunalandinu. 

„Nú er hann með dagskrá til að fara að redda þessum gögnum sem hann þarf þegar hann verður Íslendingur,“ segir Jón Hafsteinn bjartsýnn. „Hér er hann að stefna á að eyða sínu lífi og við ætlum ekki að hætta fyrr en svo verður.“

Vill vera hér„Ég veit ekki hvert ég myndi fara í Gana,“ sagði Isaac sem á enga fjölskyldu í landinu lengur.Heimildin / Davíð Þór

Isaac vinningur fyrir Þrótt

Fjarvera Isaacs mun hafa þau áhrif að þjónustan hjá Þrótti skerðist að einhverju leyti þar sem stefnan er ekki að ráða nýjan vallarstjóra, alla vega ekki strax. 

„Það var náttúrulega algjör vinningur fyrir félagið að hafa fengið hann í starf fyrir félagið á sínum tíma. Auðvitað er gott fólk víða en ég efa það að það sé einhver eins og Isaac okkar,“ segir Jón Hafsteinn.  

„Ég hugsa að það verði ekki einhver á hverjum morgni sem einhvern labbar um og tekur upp dótið sem krakkarnir týndu daginn áður og kemur því á góðan stað svo foreldrar og fleiri þurfa kannski að byrja á að leita óskilamuna úti á velli.“ 

Ætlaði varla að treysta sér á styrktarleikinn

Isaac leið illa í aðdraganda brottvísunarinnar enda er hann nú sendur til lands þar sem hann á ekki lengur neinn að, að eigin sögn, og ætlaði hann varla að treysta sér að taka þátt í styrktarleiknum í gær. 

„Í upphafi dagsins var hann ekkert nema gráturinn en ég held að samt á endanum hafi það verið gott fyrir hann því þetta á endanum stappaði ákveðnu stáli í hann,“ segir Jón Hafsteinn. 

Hver króna sem þar safnaðist verður nýtt í að aðstoða Isaac við að komast aftur til Íslands.

„Við hættum ekki fyrr en hann er kominn aftur til okkar þar sem hann á heima,“ segir Jón Hafsteinn.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Það er við hæfi að hvetja Þróttara til þess að hætta að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, þá sem það enn gera, því að það er flokkurinn sem ber ábyrgð á hatursfullri útlendingastefnu á Íslandi.
    1
  • Steinar Harðarson skrifaði
    Stoltur af ykkur Þróttarar!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Flúði vændi en verður send út í annað sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“
FréttirFlóttamenn

Flúði vændi en verð­ur send út í ann­að sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“

Níg­er­ísk­ar kon­ur sem hing­að leita eft­ir dvöl á Ítal­íu hafa í mörg­um til­vik­um ver­ið neydd­ar út í vændi þar og vilja ekki snúa aft­ur, því þær vita hvað bíð­ur þeirra. Ein kvenn­anna kom aft­ur til Ís­lands ör­fá­um dög­um eft­ir að hún fékk end­ur­komu­bann til þriggja ára, því hún sá enga aðra leið út.
Segir taugaveiklun hafa gripið um sig í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar ummæla Kristrúnar
StjórnmálFlóttamenn

Seg­ir tauga­veiklun hafa grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um í kjöl­far um­mæla Kristrún­ar

Jó­hann Páll Jó­hanns­son, þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði að tauga­veiklun hafi grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um eft­ir að Kristrún Frosta­dótt­ir steig inn í um­ræð­una um út­lend­inga­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í kjöl­far­ið ákveð­ið að kenna Sam­fylk­ing­unni um allt sem hef­ur mis­far­ist í mál­efn­um út­lend­inga. Þing­menn Við­reisn­ar og Pírata hörm­uðu í ræð­um sín­um þær breyt­ing­ar sem hafa átt sér stað á við­horfi til flótta­fólks.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár