Íslenskur bankamaður, sem allt bendir til að hafi tekið að sér að leppa eignarhald á fjárfestingafélagi fyrir kjörræðismann Íslands í Belarús, var nýlega skráður eigandi að helmingshlut í úkraínsku orkufyrirtæki, sem áður var skráð á auðjöfurinn Moshensky. Yfirvofandi refsiaðgerðir yfirvalda og alþjóðastofnana vofðu yfir kjörræðismanninum í aðdraganda þess að eignarhaldið var flutt til Íslands, fyrir málamyndaverð.
Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá í Úkraínu er Íslendingurinn Karl Konráðsson nú skráður eigandi helmingshlutar í orkufyrirtækinu Ekotechnik Velyka Dobron (EVD), sem framleiðir og selur rafmagn sem aflað er í gegnum tvö stór sólarorkuver fyrirtækisins í Vestur-Úkraínu á samtals 50 hektara landsvæði.
Í sigti refsiaðgerða
EVD, sem stofnað var árið 2012, býr yfir getu til að framleiða allt að 30 megawött af rafmagni og er í hópi 20 stærstu sólarorkuframleiðenda landsins. Margir tugir slíkra fyrirtækja hófu starfsemi á síðastliðnum áratug, eftir að þarlend stjórnvöld gerðu endurnýjanlega orkuframleiðslu að forgangsmáli. Hluti af því voru loforð …
Athugasemdir (1)