Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Lögmaður Uhunoma segir Áslaugu Örnu ekki átta sig á eðli mannréttindabaráttu

Magnús Norð­dahl, lög­mað­ur Uhunoma Osayomore sem senda á úr landi þrátt fyr­ir sögu um man­sal og kyn­ferð­isof­beldi, seg­ir seg­ir Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur skorta vilja til að breyta kerf­inu.

Lögmaður Uhunoma segir Áslaugu Örnu ekki átta sig á eðli mannréttindabaráttu
Ekki í hennar höndum Lögmaður Uhunoma segir dómsmálaráðherra skorta vilja til að tryggja betur réttindi Uhunoma og annarra í sömu stöðu Mynd: xd.is

Lögmaður Uhunome Osayomore, manns sem neitað var um dvalarleyfi og alþjóðlega vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna þess að stjórnvöld telja að hann sé öruggur í heimalandi sínu þrátt fyrir sögu hans um mansal og ofbeldi, gagnrýnir ummæli dómsmálaráðherra í viðtali við RÚV í kjölfar þess að henni voru afhentar 45.000 undirskriftir gegn brottvísun Uhunome.

Magnús Norðdahl, lögmaður hins 21 árs Uhunome, segir dómsmálaráðherra gefa það til kynna í viðtali við RÚV fyrr í dag að bagalegt sé að umræða í hælismálum skuli alltaf snúast um einstök mál en ekki kerfið í heild. „ Orð dómsmálaráðherra verði ekki skilin öðruvísi en svo að hún átti sig ekki á eðli og inntaki mannréttindabaráttu,“ sagði Magnús í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér rétt í þessu. 

„Eina sem þarf er vilji“

Mannréttindabarátta fer að sögn Magnúsar iðulega þannig fram að ljósi sé varpað á einstök mál þar sem ekki hefur verið gætt að mannréttindum þeirra sem í hlut eiga. Með þeim hætti telur hann að oftar en ekki verði breytingar á regluverki sem leiðir til umbóta fyrir ekki bara einstaklinginn heldur stóran hóp fólks í sömu stöðu sem sæti sömu skerðingum á mannréttindum sínum. „Nærtækt dæmi í sögulegu samhengi er mál Brown v. Board of Education sem fór fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna sem var stórt skref í þá átt að banna aðskilnað svarta og hvítra í skólakerfinu þar í landi,“ sagði Magnús. 

Eiga að hlúa vel að fórnarlömbum mansals

Íslensk stjórnvöld eiga að mati Magnúsar að hlúa vel að fórnarlömbum mansals en þegar þau hafa brugðist skyldum sýnum sé rétt að geta veitt þeim aðald. „Þegar stjórnvöld bregðast skyldum sínum er gott að geta veitt þeim aðhald en það hafa 45.000 aðilar gert með því að rita undir undirskriftasöfnun fyrir Uhunoma Osayomore. Jákvæð niðurstaða í hans máli myndi leiða til breytinga fyrir stóran hóp mansalsfórnarlamba, bæði þeirra sem eru stödd hér á landi í dag og eins þeirra sem hingað munu leita í framtíðinni,“ sagði hann. 

Þá vekur furðu Magnúsar að dómsmálaráðherra vísi til þess að mál Uhunoma sé ekki í hennar höndum. „Þetta er því miður kunnulegt stef að ráðherra skuli ekki þekkja eða vilja beita valdheimildum sínum. Þó dómsmálaráðherra hafi ekki boðvald yfir nefndarmönnum í kærunefnd útlendingamála getur ráðherrann allt að einu gefið út almenn leiðbeinandi tilmæli til stjórnsýslunnar hvernig fara skuli með mál mansalsfórnarlamba. Að sama skapi getur ráðherra ráðist í breytingar á reglugerð með það markmiði að tryggja betur réttindi Uhunoma Osayomore og annarra sem eru sömu stöðu og hann. Eina sem þarf er vilji.“

Áslaug vill umræðu um kerfið í heild

Áslaug Arna sagði í samtali við RÚV að verið væri að leita leiða til að gera kerfið betra, en það væri ekki í höndum ráðherra að ákveða með einstök mál. „Það hefur verið þannig þó að ráðherra taki aldrei ákvörðun um einstök mál, enda er þetta eins og önnur mál í ferli og fer til sjálfstæðrar kærunefndar útlendingamála.“

Hún sagði að útlendingalögin hefðu verið samin í mikilli sátt allra stjórnmálaflokka.

„Við erum að gera mjög vel hér á landi. Við erum að taka á móti fleirum heldur en lönd í kringum okkur, ef við miðum okkur við Norðurlöndin til dæmis. Við erum alltaf að leita úrbóta og ég lagði til að mynda [fram] skýrslu um umbætur á stöðu barna á flótta. En athyglin virðist ofast beinast að einstökum málum, í staðinn fyrir hvað við getum gert betur í kerfinu í heild sinni. En það er vissulega umræða sem við erum alltaf að reyna að taka, bæði að hraða málsmeðferð og gera betur fyrir fólk á flótta.“

„Við notum sömu mælikvarða og önnur lönd“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra

Aðspurð hvort Ísland ætti að taka á móti fleiri flóttamönnum sagði Áslaug að sömu viðmið væru notuð hér á landi og annars staðar. „Við notum sömu mælikvarða og önnur lönd. Og önnur lönd miða við skilgreiningu á því hverjir eiga rétt á alþjóðlegri vernd sem byggist á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Og við byggjum á sömu skilgreiningu og önnur lönd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
2
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
3
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
4
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
10
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
7
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
9
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
4
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár