Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Forseti Namibíu þakkaði forsætisráðherra Noregs fyrir aðstoðina við rannsókn Samherjamálsins

Hage Geingob þakk­aði Ernu Sol­berg fyr­ir að Nor­eg­ur hafi hjálp­að Namib­íu að rann­saka spill­ing­ar­mál Sam­herja í Namib­íu. Ís­land og Nor­eg­ur hafa veitt Namib­íu að­stoð en lönd eins og Angóla, Dubaí og Kýp­ur hafa ekki ver­ið eins vilj­ug til þess.

Forseti Namibíu þakkaði forsætisráðherra Noregs fyrir aðstoðina við rannsókn Samherjamálsins
Þakkar aðstoðina Hage Geingob, forseti Namibíu, þakkaði Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, fyrir aðstoðina við rannsókn Samherjamálsins. Ísland hefur einnig aðstoðað yfirvöld í Namibíu við rannsóknina.

Forseti Namibíu, Hage Geingob, þakkaði forsætisráðherra Noregs, Ernu Solberg, fyrir stuðning norskra stjórnvalda við rannsókn Samherjamálsins í Namibíu. Geingob og Solberg ræddust við í síma á fimmtudaginn var, samkvæmt Facebook-síðu forsetaembættisins í Namibíu og fjölmiðlum þar í landi.

Samherjamálið í Namibíu gengur undir nafninu Fishrot á ensku og snýst rannsóknin um mútugreiðslur upp á vel á annan milljarð króna frá Samherja til ráðherra og viðskiptafélaga þeirrra í skiptum fyrir hestamakrílskvóta á árunum 2012 til 2019. Kveikur, Stundin og Al Jazeera sögðu frá málinu í fyrra á grundvelli gagna frá Wikileaks. 

Sjö Namibíumenn sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa þegið mútur frá Samherja auk fleiri brota. Tekið skal fram að engir núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Samherja hafa réttarstöðu sakborninga í namibísku rannsókninni.  Sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja eru hins vegar með réttarstöðu sakborninga á Íslandi grunaðir um aðild að mútugreiðslum og peningaþvætti. 

Samtalið á milli Geingobs og Solbergs sýnir að Samherjamálið og umræður um það eru ráðamönnum þessara þjóða ofarlega í huga þegar þeir ræða sín á milli enda standa yfir rannsóknir á málinu í báðum löndunum. Samherjmálið er stærsta spillingarmál sinnar tegundar sem komið hefur upp í Namibíu og málið er einnig stórt í Noregi þar sem ríkisbankinn DNB var notaður til að greiða hluta af mútugreiðslunum sem sjömenningarnir sitja í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið. 

„Geingo forseti þakkaði ríkisstjórn Noregs fyrir samvinnu þess í rannsóknum á spillingu í fiskveiðiiðnaðnum í Namibíu“

Efni símtalsins var hins vegar ekki eingöngu Samherjamálið heldur ræddu þau Geingob og Solberg einnig önnur mál eins og sjálfbærni í framleiðslu sjávarafurða og fleiri mál. 

Yfirvöld á Íslandi og Noregi aðstoða Namibíu

Yfirvöld á Íslandi, væntanlega embætti héraðssaksóknara ef marka má fjölmiðla í Namibíu, og í Noregi hafa veitt namibískum rannsóknaraðilum aðstoð við rannsókn málsins eins og komið hefur fram í fjölmiðlum. Ísland og Noregur tengjast rannsókn Samherjamálsins í Namibíu þannig að fyrirtækið sem sjömenningarnir sitja í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá, Samherji, er íslenskt og bankareikningarnir sem að Samherji notaði til að greiða múturnar til Namibíumannanna eru í norskum banka sem að hluta til er í eigu norska ríkisins. Samherjamálið er einnig til rannsóknar í Noregi.

Noregur og Ísland veita aðstoðEinn helsti rannsakandinn í Samherjamálinu hefur lýst því að Noregur og Ísland hafi veitt yfirvöldum í Namibíu aðstoð við rannsókn málsins. Erna Solberg er forsætisráðherra Noregs.

Orðrétt segir um samskipti Geingobs og Solbergs á Facebook-síðu forsetaembættisins: „Geingob forseti þakkaði ríkisstjórn Noregs fyrir samvinnu þess í rannsóknum á spillingu í fiskveiðiiðnaðnum í Namibíu. Eftir að málið kom upp [í nóvember í fyrra], greindi Geingob forseti forsætisráðherranum frá, hefur Namibía unnið að endurbótum á fiskveiðistjórnunarkerfi sínu til þess að takast á við þau vandamál og þá misnotkun á kerfinu sem átt hefði sér stað í gegnum tíðina.“

Fá lönd hjálpfús

Í namibíska fjölmiðlinum Neweralive er símtalið á milli Geingobs og Solberg sett í samhengi við það að fyrir viku síðan steig helsti rannsakandinn í Samherjamálinu í Namibíu, Andreas Kanyangela, og sagði frá því að afar erfiðlega hefði gengið að fá aðstoð við rannsókn málsins frá einstökum ríkjum. Af þeim níu ríkjum sem rannsóknin teygði sig til  hefðu aðeins Noregur og Ísland verið samstarfsfús og reiðubúin að veita Namibíumönnunum aðstoð.  Meðal þessara ríkja sem ekki hafa verið eins hjálpfús eru Angóla, Kýpur og Dubaí sem öll tengjast rannsókninni. 

Andreas Kanyangela nefndi sérstaklega er að erfitt hefði verið að fá aðstoð frá Angóla en rannsókn Samherjamálsins tengdist því landi sterkum böndum vegna Namgomaviðskiptanna svokölluðu sem rannsökuð eru sem samsæri af namibískum yfirvöldum þar sem grunur er á að milliríkjasamningur hafi verið gerður á milli landanna í þeim eina tilgangi að tryggja Samherja hestamakrílskvóta. 

Rannsóknarstofnunin ACC, sem sérhæfir sig í að rannsaka spillingu í Namibíu, hefur þar til 14. desember að ljúka rannsókn málsins. Ellegar er mögulegt að sjömenningunum verði sleppt úr gæsluvarðhaldi og að ACC þurfi að ljúka rannsókninni með sjömenninganna utan við fangelsismúrana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að ís­lensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Sam­herja“

Leið­togi namib­ísku stjón­ar­and­stöð­unn­ar seg­ir landa sína undr­ast þögn ís­lenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namib­íu hafi orð­ið til fyr­ir til­stilli ís­lensks fyr­ir­tæk­is. Spyr hvort hundrað millj­óna styrk­ur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og send­ir for­sæt­is­ráð­herra op­ið bréf og ósk­ar liðsinn­is henn­ar við að fá Sam­herja til að greiða bæt­ur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Sam­herji sak­að­ur um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namib­íu og framsalskrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namib­íu er enn ákveð­inn í því að óska eft­ir framsali þriggja stjórn­enda Sam­herja­fé­laga í Namib­íu og seg­ir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lög­um muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efn­in á hend­ur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herja­fé­laga sögð til rann­sókn­ar. Sam­herja­mað­ur seg­ir ís­lensk yf­ir­völd þeg­ar hafa neit­að að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Ís­lands­vin­kona svo gott sem orð­in for­seti Namib­íu

Net­um­bo Nandi-Ndaitwah, ut­an­rík­is­ráð­herra Namib­íu, sem kom hing­að til lands í júní og ræddi Sam­herja­mál­ið við ís­lenska ráð­herra og að­stoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem bú­in að tryggja sér for­seta­embætt­ið í Namib­íu. Hún var í morg­un kjör­in arftaki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helg­an stein. Flokk­ur­inn nýt­ur slíks yf­ir­burð­ar­fylg­is að inn­an­flokks­kosn­ing­in er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eft­ir því“

Jó­hann­es Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herja­mál­inu, er sátt­ur við gang rann­sókn­ar­inn­ar hér á landi og seg­ir að fátt geti kom­ið í veg fyr­ir að mál­ið endi með dómi. Hann gagn­rýn­ir þó að­gerð­ar­leysi yf­ir­valda við því þeg­ar Sam­herja­menn hafa áreitt, njósn­að um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögð­um Sam­herja­fólks hafi þó kom­ið hon­um á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðr­um lið­ist.
Færeyskur ráðherra krafinn svara um Samherjarannsókn
FréttirSamherjaskjölin

Fær­eysk­ur ráð­herra kraf­inn svara um Sam­herj­a­rann­sókn

Högni Hoy­dal, formað­ur Þjóð­veld­is­flokks­ins fær­eyska, hef­ur í fær­eyska þing­inu ósk­að eft­ir svör­um við því hvað líði rann­sókn lög­reglu á meint­um skatta­laga­brot­um Sam­herja í Fær­eyj­um. Sam­herji end­ur­greiddi 340 millj­ón­ir króna til fær­eyska Skatts­ins, sem vís­aði mál­inu til lög­reglu. Síð­an hef­ur lít­ið af því frést.
Fjármálastjóri hjá Samherja segir mútugreiðslur í Afríku nauðsynlegar
FréttirSamherjaskjölin

Fjár­mála­stjóri hjá Sam­herja seg­ir mútu­greiðsl­ur í Afr­íku nauð­syn­leg­ar

Brynj­ar Þórs­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kana­ríeyj­um, sem með­al ann­ars kom að greiðsl­um til namib­ískra ráða­manna, seg­ir að „svo­kall­að­ar mútu­greiðsl­ur“ séu „stand­ard“ í Afr­íku. Þetta kom fram í yf­ir­heyrsl­um yf­ir Brynj­ari sem hef­ur stöðu vitn­is í rann­sókn Sam­herja­máls­ins hjá hér­aðssak­sókn­ara. Brynj­ar sagði Sam­herja hafa beitt sömu að­ferð­um til að kom­ast yf­ir kvóta í Mar­okkó og Má­rit­an­íu, áð­ur en fyr­ir­tæk­ið hóf út­gerð í Namib­íu.

Mest lesið

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
1
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
2
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
5
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.
„Finnst ég vera að heyja dauðastríð“
6
Fréttir

„Finnst ég vera að heyja dauða­stríð“

Níg­er­ísku kon­urn­ar þrjár sem flúðu til Ís­lands und­an man­sali fyr­ir nokkr­um ár­um verða send­ar úr landi í kvöld. Þær eru í fang­els­inu á Hólms­heiði og ræddu við Heim­ild­ina í síma síð­deg­is. Ein kvenn­anna er al­var­lega veik og seg­ist líða eins og hún sé að heyja dauða­stríð. Þær segja að lækn­ir verði með í för þeg­ar þær verða flutt­ar úr landi. „Lækn­ir á að sjá til þess að hún andi út fyr­ir loft­helgi Ís­lands,“ seg­ir ís­lensk vin­kona kvenn­anna þriggja.
Halda Blessing á lífi svo lengi sem hún er í íslenskri lögsögu
7
Fréttir

Halda Bless­ing á lífi svo lengi sem hún er í ís­lenskri lög­sögu

Brott­vís­un þriggja kvenna var mót­mælt í Leifs­stöð í gær­kvöldi. Ein þeirra, Bless­ing, er lífs­hættu­lega veik og þol­andi man­sals. Í lækn­is­vott­orði frá sér­fræð­ingi á Land­spít­al­an­um er skrif­að að það sé lífs­nauð­syn­legt fyr­ir hana að hafa greið­an að­gang að bráða­þjón­ustu sér­hæfðra kvenna­deilda á sjúkra­húsi. „Þannig er ljóst að brott­vís­un mun stefna lífi sjúk­lings­ins í al­var­lega hættu komi hún til fram­kvæmd­ar á nú­ver­andi tíma­marki.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
4
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
7
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
7
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
9
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár