Sérfræðingar bráðadeildar Landspítalans hafa áhyggjur af öryggi sjúklinga. Þeir segja starfsfólk vera þreytt, en hjúkrunarfræðingar sækja í auknum mæli í að starfa sem flugfreyjur í stað þess að vinna á Landspítalanum.
Hjúkrunarfræðingar færa sig meðal annars yfir í störf hjá Wow Air og Icelandair til þess að fá betri vinnutíma og betri laun. Þá þyki hjúkrunarfræðingum fjölskylduvænna að starfa í flugi heldur en við það sem þeir menntuðu sig til.
Flugið hvíld frá álagi
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, segir þá hjúkrunarfræðinga sem fara í flug gefa mismunandi skýringar. „Sumir segja að þetta sé mjög góð hvíld frá miklu starfsálagi á Landspítala. Tilbreyting, spennandi, gaman að finna að hjúkrunarfræðingar eru sérstaklega eftirsóttir starfskraftar í önnur störf, eins og flugið, betri laun en þó ekki allir hundrað prósent sammála um það. Þetta eru stundum lengri vaktir og langur tími að heiman en í færri skipti yfir mánuðinn og því getur það verið þægilegra og fjölskylduvænna. Færri vinnuklukkustundir fyrir betri laun. Miklu meiri öryggismenning í fluginu.“
Árið 2014 fór fimmti hver nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur í starf sem flugfreyja í stað þess að vinna við hjúkrun. Guðbjörg segist telja að hjúkrunarfræðingar hafi sóst meira í flufreyjustörf í ár en áður. Fyrirspurn hennar til flugfélaganna Wow Air og Icelandair um það hafi hins vegar ekki verið svarað.
Athugasemdir