Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.

Abraham í jakkafötum. Bág staða ungmenna.

Margir lesenda kannast við lag Leonards Cohen "The Story of Isaac, kvæði

 um Abraham Biblíunnar sem ætlaði að fórna syni sínum Ísak  að  boði Guðs.  Á tónleikaplötunni  Live Songs segir Cohen er hann kynnir lagið að textinn fjalli um það þegar eldri kynslóðin fórnar ungu kynslóðinni. Svo syngur Cohen:

 „You who build these altars now 

   To sacrifice these children,

   You must not do it anymore

    A scheme is not a vision

    And you never have been tempted

    By a demon or a god.“

 

Hafði Cohen Víetnamstríðið í huga? Miðaldra bandarískir ráðamenn sendu nítján ára unglinga til að berjast fyrir vafasaman  málstað.  Eða fólskuverk Stalíns sem  fórnaði heilu kynslóðunum á altari „hugsjóna“ sinna? Á Íslandi og víða á Vesturlöndum er verið að fórna ungu fólki, ekki á altari hátimbraðra kennikerfa, heldur Mammons. Abraham er kominn í skraddarasaumuð jakkaföt og dansar kringum gullkálfinn, sveiflandi blóðugum fórnarhnífnum. Stundin hefur birt prýðilega en napra úttekt Jóns Trausta um bága stöðu íslenskra ungmenna í því sem hann kallar „landi jakkafatanna“. Margt í þeirri leiðu stöðu á sér séríslenskar rætur, m.a. í háum vöxtum og ferðamannaflaumi sem veldur  stórhækkun á húsnæðisverði. Annað er líklega liður í alþjóðlegri vanþróun.

Slæm staða unga fólksins vestanhafs og austan

Velþekkt er sú staðreynd að ungt fólk vestanhafs berst í bökkum.  Árið 2013 átti þrítugi meðalkaninn 20% minni auð en jafnaldri hans þrjátíu árum fyrr.  Fræðimaður við Stanford háskóla,  Raj Chetty, rannsakaði efnahagsstöðu kynslóða og segir að  79% líkur hafi verið   á því að Bandaríkjamaður  fæddur  1950 þénaði meir en foreldrar sínir. En þeir sem fæddir voru 1980 eiga bara 50% líkur á því sama. Háskólamenntun vestanhafs hefur orðið mun dýrari á undanförnum áratugum og nýútskrifað  fólk skuldum vafið. Um leið getur það tæpast  bætt kjör sín nema menntast. Þau eru í vítahring því menntun leiðir til þess að þau sökkva í skuldafen. Í Evrópu er ástandið engu skárra, alla vega sunnarlega í álfunni. Vandamálið þar er  aðallega mikið atvinnuleysi ungmenna. Tölur frá ESB í  október 2016 sýna að  tæpur helmingur ungra Grikkja (25 ára og yngri) atvinnulaus, litlu færri á Spáni. Meira að segja í Svíþjóð er um 18% ungmenna án atvinnu enda streyma ungir Svíar til Noregs í atvinnuleit. Portúgölsk ungmenni  flytja í hrönnum til Brasilíu og hinna fornu nýlendna Portúgals í Afríku í atvinuleit. Ungir Spánverjar flykkjast til Suður-Ameríku. Landflótti ungmenna er ekki séríslenskt vandamál. 

Mögulegar lausnir

Hvað er  til ráða? Í Suður-Evrópu þyrfti líklega að gera vinnumarkaðinn þjálli, gera atvinnurekendum  auðveldar um vik að reka menn og ráða. En um leið  verður að efla endurmenntun og starfsþjálfun svo þeir sem vinnu missa geti haslað sér völl á nýjum sviðum. Vestanhafs þyrfti að fara að ráðum Bernie Sanders, efla velferðaríkið og endurmenntun, auk þess að  gera ríkisháskólana ódýrari, jafnvel ókeypis. Á Íslandi væri kannski ráð að afnema ýmsar íþyngjandi reglugerðir um stærð íbúða, það gæti leitt til aukins framboðs á húsnæði, ungu fólki til heilla. Einnig verður að koma böndum yfir húsnæðisauðvaldið sem mergsýgur leigjendur. Námslánakerfinu verður líka að breyta svo dragi úr greiðslubyrði og efla hvers kyns velferðarþjónustu við ungmenni.

Lokaorð

En fyrst og fremst þarf að mölva gullkálfinn illa. Koma verður böndum á Abraham, klæða hann úr jakkafötunum fínu, og velta  altari Mammons.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu