Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.

Hvenær byrjar það að gleymast?

Það eru tímamót þegar minna en helmingur núlifandi einstaklinga man eftir tilteknum atburðum. Hér eru nokkur ártöl sem marka slík tímamót. Árin sem nefnd eru miða við að minna en helmingur þjóðarinnar hafi verið á lífi (eldri en 5 ára) þegar umræddur atburður átti sér stað:

Ár         Meirihluti þjóðarinnar er of ungur til að muna eftir...

2009:   Snjóflóðinu á Neskaupsstað

2011: Þorskastríðunum

2016: Gervasoni

2017: Kristjáni Eldjárn á lífi

2021: Leiðtogafundi í Höfða

2022: Sjónvarpslausum fimmtudögum

2022: Fimmtíu króna seðlum

2024: Borgarleikhúsinu í Iðnó

2026: Davíð Oddssyni sem borgarstjóra

2027: „Nei eða Já“ í Júróvisjón

2029: Lífinu án farsíma

2030: Ellý Vilhjálms á lífi

2031: Vigdísi sem forseta

2033: Kvennalistanum

2035: Aldamótum

2037: Baugsmálinu

2039: Synjun forseta á fjölmiðlalögunum

2041: Kárahnjúkum án Hálslóns

2043: Rúnna Júll á lífi

2044: Búsáhaldabyltingunni

2045: Synjun forseta á Icesave-lögunum

2048: Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra

2051: Ólafi Ragnari forseta.

 

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni