Brátt munu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur byrja að dæla út kosningaloforðum. Verður þá fagurt um að litast.
En í þessu sambandi er rétt að hafa eitt í huga.
Fyrir síðustu kosningar dældu flokkarnir líka úr kosningaloforðum.
Þau voru um hitt og þetta en meðal þeirra var EKKI að lækka veiðigjöld á sægreifana. Á það var ekki minnst í kosningabaráttunni.
Strax og stjórnin hafði verið mynduð, þá var þing kallað saman.
Átti nú að fara að efna strax öll þau loforð sem veitt höfðu verið þjóðinni?
Nei.
Fyrsta og brýnasta verkefni Bjarna Benediktssonar og Sigmundar var að lækka veiðigjöld sægreifanna. Og koma í veg fyrir að auðlegðarskattur yrði framlengdur.
Svo fór þing heim og allir slöppuðu af bæði vel og lengi.
Af þessu má draga einn augljósan lærdóm.
Brýnustu og mest aðkallandi kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins eru ekki veitt okkur almenningi.
Það er ekki frá þeim greint opinberlega í blaðagreinum eða í Kastljósinu kvöldið fyrir kjördag.
Svoleiðis er bara snakk.
Nei - þau kosningaloforð sem flokkarnir ætla VIRKILEGA að efna, þau eru gefið á „leyndófundum“ með sægreifunum - eins og Gunnar Bragi Sveinsson orðaði það svo eftirminnilega.
Kosningaloforðin sem skipta máli eru gefin auðkýfingunum.
Það gæti því farið svo - ef ríkisstjórnin heldur velli - að fyrsta verk hennar eftir kosningar verði að kalla þing saman og einkavæða heilbrigðiskerfið.
Eða einkavinavæða það, öllu heldur.
Gætum að þessu.
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn munu þræta fyrir að nokkuð slíkt sé í bígerð.
En þeir sögðu okkur heldur ekki frá því að þeir ætluðu að lækka veiðigjöldin á sægreifana.
Það er ekki hægt að treysta Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum.
Þeir eru þjónar ríka fólksins og sægreifana - og hin eiginlegu kosningaloforð flokka eru veitt þeim.
Ekki okkur.
Við erum bara til að ljúga að.
Athugasemdir