Í september komst ég að því að það býr maður undir rúminu mínu. Ég lá uppi í rúmi og var að horfa á Louis C.K uppistand á Netflix þegar ég heyrði lágan slepjulegan hlátur. Fyrst hélt ég að hann kæmi að utan og ég reif gardínuna frá glugganum en það var enginn fyrir utan. Hláturinn virtist nánast koma innan úr mér og í smá stund hélt ég að þetta væri garnagaul. Ég ýtti aftur á play en stuttu síðar heyrði ég aftur í hlátrinum: bældur hlátur, næstum eins og einhver væri að hafa sig allan við að gefa ekki frá sér hljóð. Ég fríkaði út. Fraus gjörsamlega og án þess að hreyfa mig skimaði ég um íbúðina. Ýtti á spacebar. Það virtist ekkert vera í eldhúsinu né frammi á gangi en skyndilega heyrði ég greinilega einhvern ræskja sig. Ég heyrði að röddin kom undan rúminu mínu. „Halló! Hver er þarna?“ kallaði ég og beindi röddinni niður á rúmið. Ég hoppaði á fjórar fætur og lagði eyrað að dýnunni. Ekkert hljóð. „Er einhver þarna?“ og ég heyrði í einhverju mjakast hægt og rólega lengra undir rúmið. Alveg kjurr þarna á fjórum fótum rann á mig einhver heiftarleg reiði. Hvaða ímyndunarveiki var þetta í mér? Það gat ekki verið að einhver væri þarna, það væri fáránlegt. Ég ýtti aftur á play á Louis C.K. til að róa taugarnar, færði mig síðan hægt og rólega að rúmgaflinum og beygði mig til að kíkja undir rúmið. Og þarna var hann bara! Maður, eða öllu heldur hálfur maður. Hann var ekki nema höfuð, axlir og hendur: skorinn rétt fyrir neðan geirvörtur. Hann starði á mig og ég starði á móti. Ég trúði varla mínum eigin augum! Maður undir rúminu mínu búinn að koma sér vel fyrir á milli einstæðra sokka, sælgætisbréfa og tómra dósa. Það fyrsta sem rann upp fyrir mér var hversu skelfilega langt var liðið síðan ég ryksugaði eða skúraði íbúðina. Ég hafði ekki litið undir rúmið svo mánuðum skipti. En fljótlega fylltist ég skelfingu. Hversu lengi hafði hann verið þarna? Öll kvöldin sem ég lá uppi í rúmi fram á nótt að horfa á einhverja ömurlega þætti? Eða öll skiptin sem ég stundaði sjálfsfróun, hafði hann heyrt í þessu öllu? Vissi hann að ég var búin með allar Vampire Diaries-seríurnar og hafði sofið yfir mig fimm daga í röð? Ég ræskti mig og spurði kurteisislega: „Afsakið, mætti ég spyrja hversu lengi þú hefur verið hérna undir rúminu mínu?“ Maðurinn var skelfingu lostinn og virtist ekki koma upp orði, kannski mállaus? Ætli maður geti talað hafi maður engan líkama? Ég hafði ekki hugmynd. „Ertu búinn að vera hérna lengi?“ sagði ég hægar og skýrar, eins og ég væri að tala við barn. Maðurinn kinkaði kolli. Ég vissi það! Hann vissi þá allt um það hvernig ég eyddi hálfum deginum uppi í rúmi að horfa á þætti og vorkenna sjálfri mér. Og hvað það var langt síðan ég stundaði kynlíf. „Þú afsakar draslið hérna undir rúminu, ég bý ein þannig ég þríf miklu minna en ég ætti að gera, fer alveg vel um þig og allt?“ Maðurinn kinkaði varlega kolli og ég er ekki frá því að hann hafi brosað örlítið. Ég gaf honum thumps up, en fattaði að ég hafði óvart gefið honum thumbs down vegna þess að ég var að tala við hann á hvolfi. Mér fannst þetta svo óþægilegt að ég veifaði honum eins og til að kveðja þó að ég væri auðvitað ekki að fara neitt. Síðan lagðist ég aftur upp í rúm. Ýtti á spacebar. Ég stökk fram í eldhús og byrjaði að tannbursta mig. Passaði mig á að vera létt á fæti til að maðurinn sæi ekki hvað ég get verið trukkaleg í umgangi. Ég er gjörn á að rekast í allt og er svo oft svo þungstíg að það mætti halda að ég væri hundrað kílóum þyngri en ég er. Ég trítlaði þarna um eldhúsið með tannburstann í munninum, valhoppaði yfir í svefnherbergið og leitaði að hreinum náttfötum. Neðst í skúffunni var náttkjóll sem ég hafði ekki farið í síðan ég var tólf ára. Bleikur kjóll úr einhverju gerviefni sem var alveg skelfilegt að sofa í. Ég lét eins og ég hefði aldrei sofið í öðru og smeygði mér í kjólinn með tannburstann í munninum. Dansandi flýtti ég mér síðan inn í eldhús til að spýta, hreinsaði tannburstann og kom mér aftur upp í rúm. „Góða nótt“ sagði ég við manninn sem var ekkert líklegri til að svara núna frekar en fyrr. Ég pírði augun yfir Louis C.K., eiginlega nær svefni en vöku. Mig langaði að lækka svo ég gæti sofnað en var svo hrædd um maðurinn myndi ekki heyra neitt ef ég gerði það. Stundum heyrði ég mannin hlæja undir koddanum og dýnunni þegar Louis sagði eitthvað sérstaklega fyndið. Síðan sofnaði ég.
„Hann var ekki nema höfuð, axlir og hendur: skorinn rétt fyrir neðan geirvörtur. Hann starði á mig og ég starði á móti. Ég trúði varla mínum eigin augum!“ Salka Valsdóttir skrifar um manninn sem hún fann undir rúminu sínu.
Mest lesið
1
Erla María Markúsdóttir
Hjúkkan sem reyndi að bjarga mér á bráðamóttökunni – og sagði svo upp
Fyrir tveimur árum, upp á dag, dvaldi ég á biðstofu á bráðamóttökunni í rúmar fimm klukkustundir án þess að hitta lækni. Hjúkrunarfræðingurinn sem reyndi að koma mér inn í kerfið gat það ekki. Hún gaf sjálf upp vonina og sagði upp.
2
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vill ekki kalla þá lífverði, öryggisverðina sem fylgja honum hvert fótmál. „Þeir eru nokkuð góðir í að vera ósýnilegir þannig að ég geti sinnt mínum störfum,“ segir hann. Áhættumat vegna öryggis ráðherra ríkisstjórnar Íslands er í sífelldri endurskoðun, samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra.
3
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún léttist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleypur væntanlega sitt tíunda ofurmaraþon á Laugaveginum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrjaði að hlaupa um sjötugt eftir hjartaáfall. Hann er orðinn fræg fyrirmynd í íslenska hlaupaheiminum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barnabörnin.
4
Að njóta lífsins ein og kostaði hana eina evru
Ólafur Þórhallsson rifjar upp atvik sem kenndi honum núvitund í sinni skýrustu mynd.
5
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar telur efni til að víkka aðeins skilyrði til fjölskyldusameiningar í umdeildu útlendingafrumvarpi. Skilyrði til undanþágu eru þó fremur ströng: Flóttamaðurinn sem sækir um fjölskyldusameiningu gæti fengið undanþágu ef hann hefur á einu ári lært íslensku, verið virkur á vinnumarkaði í átta mánuði, hefur tiltækt íbúðarhúsnæði fyrir fjölskylduna og getur framfleytt sér.
6
Þórður Snær Júlíusson
Er það að gefa að minnsta kosti hálfan milljarð góð meðferð opinbers fjár?
Fyrrverandi ríkislögreglustjóri með sterk flokkspólitísk tengsl tók ákvörðun um að gera vel við nána samstarfsmenn sína rétt áður en þeir fóru á eftirlaun og rétt áður en hann þurfti að semja um starfslok. Kostnaðurinn við þessa ákvörðun er að minnsta kosti rúmlega 500 milljónir króna og skattgreiðendur bera hann. Tveir núverandi ráðherrar voru kolrangstæðir í yfirlýsingum sínum um málið að mati Hæstaréttar og núverandi dómsmálaráðherra getur ekki fengið sig til að biðja um rannsókn á því.
7
Algjör stemning að láta heilaþvo sig til að hætta að taka í vörina
Nikótínfíkn hefur reynst mörgum erfið. Á síðustu öld hlustuðu margir á kassettur af bók Allen Carr til að hætta að reykja sígarettur. Í dag gengur sú meðferð, reyndar á stafrænu formi, í endurnýjun lífdaga á meðal Íslendinga sem vilja bæta líf sitt með því að hætta að nota nikótínpúða.
8
Halla Hrund og Katrín hnífjafnar en með undir fjórðungs fylgi hvor
Halla Tómasdóttir er sá frambjóðandi sem er að bæta hraðast við sig fylgi. Nú, 15 dögum fyrir kosningar, er hún komin á sama stað og hún var níu dögum fyrir kosningar 2016. Þá endaði hún með 27,9 prósent atkvæða sem myndi duga til sigurs eins og sakir standa.
9
Bjarni segir þetta ár það sterkasta í íslenskri efnahagssögu
„Þetta er sterkasta ár Íslands í efnahagssögunni,“ fullyrti Bjarni Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi forsætisráðherra, á Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, bað ráðherra að „girða sig í brók“, skoða stóru myndina og taka utan um alla hópa, ekki bara sína eigin.
10
Ása Dýradóttir
Atvik eru vörður á slóða
Lærdómur felur ekki í sér svör, heldur hreinlega dyr að fleiri spurningum. Maður verður alveg ruglaður. En það er á okkar ábyrgð að halda áfram að læra þar til við liggjum kyrr í skauti jarðar, skrifar Ása Dýradóttir tónlistarkona.
Mest lesið í vikunni
1
Erla María Markúsdóttir
Hjúkkan sem reyndi að bjarga mér á bráðamóttökunni – og sagði svo upp
Fyrir tveimur árum, upp á dag, dvaldi ég á biðstofu á bráðamóttökunni í rúmar fimm klukkustundir án þess að hitta lækni. Hjúkrunarfræðingurinn sem reyndi að koma mér inn í kerfið gat það ekki. Hún gaf sjálf upp vonina og sagði upp.
2
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
Sara Sigurbjörg Guðmundsdóttir, eiginkona Precious Felix Tanimola sem var sendur úr landi til Nígeríu í nótt, segist ekki hafa fengið að kveðja hann: „Síminn var tekinn af honum og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Íslands frá Úkraínu vegna stríðsins. Honum hafði ári áður verið boðið að spila þar fótbolta með úkraínsku félagsliði.
3
Greindist ungur með Alzheimer og hleypur í fylgd fjölskyldunnar
Hugbúnaðarverkfræðingurinn Stefán Hrafnkelsson er kominn á hjúkrunarheimili eftir að hafa greinst aðeins 58 ára gamall með Alzheimer fyrir sjö árum. Það hefur hjálpað heilsu hans að hlaupa með fjölskyldunni.
4
Halla Tómasdóttir hótar að endurtaka leikinn frá 2016
Halla Hrund Logadóttir er enn með forystu í kapphlaupinu á Bessastaði og Katrín Jakobsdóttir er skammt undan. Báðar hafa hins vegar verið að tapa fylgi og sömu sögu er að segja um Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Sú sem hefur verið að taka mest til sín er Halla Tómasdóttir.
5
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
Samsæriskenningar um frambjóðendur til forseta Íslands hafa látið á sér kræla, sérstaklega hvað varðar tengsl við Alþjóðaefnahagsráðið og meintar fyrirætlanir þess um heimsyfirráð. Stjórnmálasálfræðingur segir kenningarnar ekki eiga við rök að styðjast þótt vissulega sitji valdamikið fólk í ráðinu.
6
Sif Sigmarsdóttir
Samfélag til sölu
Hin raunverulega ógn við lýðræðissamfélagið er fólkið sem telur sig geta keypt það.
7
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
Mikið er skeggrætt um fjárhagsstöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er á skuldastöðu þess hluta reksturs þeirra sem er fjármagnaður með skatttekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykjavík en versnar hraðast í Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar sem veltufé frá rekstri var neikvætt í fyrra. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með veltufjárhlutfall, sem segir til um getu sveitarfélags til að borga skuldir sínar, umfram það sem æskilegt er. Heimildin rýndi í ársreikninga sveitarfélaganna.
8
Kveikti í húsinu og hugsaði: „Þetta er of mikið fyrir eina litla konu, nú er ég hætt“
Katrín Jakobsdóttir var undir gríðarlegu álagi árið 2012. Svo miklu að hún gleymdi að hún væri að sjóða snuð með þeim afleiðingum að slökkviliðið var kallað út. „Þá settist ég á tröppurnar fyrir utan með alla strákana og hugsaði með mér að þetta væri of mikið.“
9
Svona breytist líkaminn við hlaup
Hjartalæknirinn Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir lýsir góðum og síðri áhrifum hlaups á mannslíkamann, allt frá hjarta niður í frumustig. Hún þekkir þau á eigin skinni, verandi langhlaupari til margra ára. „Í gegnum tíðina hefur þetta verið mjög góð leið til þess að takast kannski mest á við álag í vinnunni,“ segir hún.
10
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
„Mögnuð“ breyting verður á huganum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þunglyndislyf á þau sem glíma við vægt eða miðlungs þunglyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun tilfinninga, deyfa sársauka og valda sælutilfinningu. Steinn B. Gunnarsson íþrótta- og lýðheilsufræðingur veitir innsýn í áhrifin og ráð til að fá hugann til að halda sig við hreyfinguna.
Mest lesið í mánuðinum
1
Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
Móðir á Kirkjubæjarklaustri ætlar að flytja með börnin sín úr bænum þar sem hún telur ástandið í Kirkjubæjarskóla óviðunandi. Sonur hennar hefur lítið mætt í skólann í á annað ár eftir atvik í skólanum sem foreldrarnir kærðu til lögreglu. Málið var látið niður falla. Skólastjórinn er nú á förum en sveitarstjórinn segir það „engum einum að kenna þegar tveir deila“.
2
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Starfsmenn Alvotech lýsa vinnuálaginu sem ómanneskjulegu og hafa leitað til stéttarfélaga út af ógreiddri yfirvinnu og fleiri málum. Vinnuaðstæðurnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá markaðsleyfi fyrir samheitalyf Humira í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dregist saman og samheitalyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Bandaríkjunum og reiknað var með.
3
Sóltún keypti jeppa fyrir forstjórann í uppsagnarhrinu
Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur verið í hagræðingaraðgerðum og sagt upp starfsfólki á síðustu mánuðum.
4
Mistök, hamingja og væntingar Katrínar
Þegar Katrín Jakobsdóttir missti föður sinn ung að árum lærði hún að lífið er mikilvægara en dauðinn, stundin er núna og ekki eftir neinu að bíða. Hún ólst upp við öryggi sem gerir henni kleift að taka áhættur, en lítur svo á að hún hafi ekki neinu að tapa varðandi framboð sitt til forseta.
5
Erla María Markúsdóttir
Hjúkkan sem reyndi að bjarga mér á bráðamóttökunni – og sagði svo upp
Fyrir tveimur árum, upp á dag, dvaldi ég á biðstofu á bráðamóttökunni í rúmar fimm klukkustundir án þess að hitta lækni. Hjúkrunarfræðingurinn sem reyndi að koma mér inn í kerfið gat það ekki. Hún gaf sjálf upp vonina og sagði upp.
6
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
Sara Sigurbjörg Guðmundsdóttir, eiginkona Precious Felix Tanimola sem var sendur úr landi til Nígeríu í nótt, segist ekki hafa fengið að kveðja hann: „Síminn var tekinn af honum og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Íslands frá Úkraínu vegna stríðsins. Honum hafði ári áður verið boðið að spila þar fótbolta með úkraínsku félagsliði.
7
Sif Sigmarsdóttir
Það sem ég á Bjarna Ben að þakka
Í fullkomnum heimi væri pistlahöfundur atvinnulaus.
8
Sif Sigmarsdóttir
Litla Gunna í Kristjaníu, litli Jón á Kvíabryggju
Væri tíma nútímaforeldra betur varið við að valda börnum sínum vonbrigðum en að keyra þau í ballettíma eða mauka fyrir þau avókadó?
9
Greindist ungur með Alzheimer og hleypur í fylgd fjölskyldunnar
Hugbúnaðarverkfræðingurinn Stefán Hrafnkelsson er kominn á hjúkrunarheimili eftir að hafa greinst aðeins 58 ára gamall með Alzheimer fyrir sjö árum. Það hefur hjálpað heilsu hans að hlaupa með fjölskyldunni.
10
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
Sama dag og Geir H. Haarde flutti ræðu til þjóðarinnar þar sem hann bað guð um að blessa Ísland veitti Kaupþing aflandsfélagi lán sem notað var til að kaupa verðlítil skuldabréf af starfsmönnum og vildarviðskiptavini bankans. Nú, 15 og hálfu ári eftir að lánið var veitt, stendur til að saksækja þrjá einstaklinga í Lúxemborg vegna þess.
Athugasemdir