Alveg burtséð frá því hvaða skoðun maður hefur á ESB og útgöngu Breta, þá er nú ljóst að útgöngumenn unnu sinn nauma sigur með því að beita miskunnarlaust bæði lygum og blekkingum.
Hérna er til dæmis farið yfir átta mestu og grófustu lygarnar og blekkingarnar.
Ósvífnust var sú staðhæfing - sem skreytti meira að segja fræga rútu útgöngumanna - að í viku hverri sendu Bretar 350 milljónir punda til Evrópusambandsins, sem nota mætti til að styrkja heilbrigðiskerfið á Bretlandi (NHS) ef landsmenn gengju úr ESB.
Nánast um leið og kjörstöðum var lokað viðurkenndu útgöngumenn að þetta væri bara þvaður og bull.
En í kosningabaráttunni sjálfri tókst ekki að reka þetta ofan í þá.
Lærdómurinn fyrir okkur, eins og Breta sjálfa, er sá að upplýsingabyltinguna má ekki aðeins nota til að breiða út sannleikann, heldur líka lygar.
Við vissum þetta svo sem fyrir, en þetta er samt dýrmæt lexía - þótt Bretum verði hún að líkindum ansi dýr.
En við skulum læra af þessu. Verum viðbúin fyrir kosningarnar í haust.
Fólk þarf sjálft að hafa varan á, og fjölmiðlar þurfa að vera viðbúnir hinu versta. Þeir þurfa að vera eldsnöggir á loft með lygamæla sína og rannsaka hverja einustu staðhæfingu stjórnmálamanna - hver sem hann er.
Og alveg sérstaklega: Ríkisútvarpið - sem enn er mikilvægasti fjölmiðillinn þegar pólitík er annars vegar - þarf að hafa bein í nefinu til að segja blákalt við ljúgandi stjórnmálamenn:
Þú ert að ljúga.
Aðeins þannig gegnir Ríkisútvarpið skyldu sinni.
Athugasemdir