Í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum er nú greinilega sú furðulega staða uppi að enginn þorir að vekja forsetann. Í gærkvöldi sat Donald Trump uppi og var að tvíta eins og endranær og virðist hafa sofnað í miðju kafi.
Úr varð furðuorðið „covfefe“ eins og frægt er orðið.
Þegar þetta tvít barst út um heiminn leið ekki á löngu uns ljóst var að Trump var orðinn að aðhlátursefni um veröld víða. Það er mjög alvarlegt mál fyrir mann sem er eins hörundsár og Trump, og maður skyldi því hafa ætlað að einhver ráðgjafi hans vogaði sér að vekja hann til að benda honum á að lagfæra eitthvað tvít þetta.
En það var ekki gert. Tvítið var ekki tekið út fyrr en morgnaði í Hvíta húsinu og Trump vaknaði. Enginn af ráðgjöfum hans þorði að ýta við honum.
Svo getur farið þegar aðsópsmiklir karakterar safna um sig smámennum sem þora ekki að anda á foringjann, ekki einu sinni þegar foringinn er að gera sig að fífli, eins og Trump í þessu tilfelli.
Frægt svipað dæmi úr sögunni snýst um Konstantínus mikla keisara í Rómaveldi.
Hann dó árið 337 eftir skammvinn veikindi. Þá var Konstantínus 65 ára og hafði ríkt með öðrum en síðan einn í 30 ár. Hann var einn af mestu keisurum Rómverja, frægur fyrir að leyfa kristindóm en líka fyrir að hafa endurskipulagt helstil trénað ríkið og stofnaði nýja höfuðborg í stað Rómar, Konstantínópel sem við þekkjum nú sem Istanbúl.
Þegar Konstantínus dó hann búinn að ríkja svo lengi og safna kringum sig svo undirgefnum já-mönnum að þeir virðast ekki hafa getað höndlað lífið án herra síns.
Lík Konstantínusar var þess vegna dubbað upp í sitt fínasta púss og látið sitja upp við dogg í svefnherbergi keisarans í Konstantínópel. Líkið var bæði í hinni purpuralitu keisarakápu og með veldissprota og á hverjum degi komu embættismenn, aðstoðarmenn, herforingjar og ráðherrar og vottuðu keisara virðingu sína, og fluttu honum síðan skýrslur sínar um ástand mála í ríkinu.
Svo var Konstantínus spurður hátíðlega hvað hann vildi láta gera í hinum ýmsu málum.
Verð á hveiti, mikli keisari? Landstjóra vantar í Egiftalandi? Innrás á austurlandamærunum, hvað ber að gera?
Sem von var, þá svaraði keisarinn engu en þessari furðulegu leiksýningu með lík Konstantínusar var haldið áfram þangað til meira að segja viðsmjör og ilmkerti förðunarmeistara keisarahallarinnar gátu ekki breitt yfir þá staðreynd að það var orðin mjög skrýtin lykt í svefnherberginu.
Þá loksins höfðu hinir undirgefnu ráðgjafar Konstantínusar hugrekki til að pota í keisara sinn og benda honum á að hann væri dauður.
Af „covfefe“ að dæma eru ráðgjafar Trumps ekki öllu meiri bógar. Ef Trump skyldi nú andast í embætti, skyldu þeir fara eins að og ráðgjafar Konstantínusar og enginn frétta af neinu fyrr en verulega verið farið að slá í skrokkinn?
Athugasemdir