Hér kemur meira úr vitnisburði James Comey á morgun, en stór hluti inngangsorða hans birtist hérna.
„Að morgni 30. mars hringdi forsetinn í mig á skrifstofu FBI. Hann lýsti Rússlandsrannsókninni sem „skýi“ sem hefði neikvæð áhrif á hæfni hans við að stjórna landinu. Hann sagðist ekki hafa neitt saman við Rússland að sælda, hefði ekki verið í neinu slagtogi við rússneskar mellur [hookers] og hefði alltaf gert ráð fyrir að allt væri tekið upp þegar hann var í Rússlandi. Hann spurði hvað við gætum gert til að „lyfta skýinu“. Ég svaraði að við reyndum að flýta rannsókninni eins og við gætum og það yrði rannsókninni mjög til bóta, ef við fyndum ekkert, að hafa vandað mjög til verka. Hann samþykkti það en lagði svo aftur áherslu á vandamálin sem rannsóknin ylli honum …
Forsetinn hélt áfram og sagði að ef einhverjir „fylgihnettir“ hans hefðu gert eitthvað rangt, þá væri gott að komast að því, en að hann hefði sjálfur ekki gert neitt rangt og vonaði að ég fyndi leið til að koma því til skila að við værum ekki að rannsaka hann.
Skyndilega sneri hann við blaðinu og vék tali sínu að aðstoðarforstjóra FBI Andrew McCabe og sagðist ekki hafa vakið máls á „þessu McCabe-máli“ af því að ég hefði sagt honum að McCabe væri heiðarlegur, þótt McAuliffe væri náinn Clinton-hjónunum og hefði látið hann hafa (ég held að hann hafi meint eiginkonu McCabes aðstoðarforstjóra) framlög í kosningasjóð. Þótt ég botnaði ekki í af hverju forsetinn vekti máls á þessu endurtók ég að McCabe væri heiðarlegur maður.
Hann endaði á því að leggja áherslu á „skýið“ sem kæmi í veg fyrir að hann gæti gert díla fyrir landið og sagðist vona að ég fyndi leið til að koma til skila að hann væri ekki til rannsóknar. Ég sagði honum að við myndum sjá hvað við gætum gert og að við myndum vinna okkar rannsóknarstörf eins vel og eins fljótt og við gætum.“
Síðasta samtal þeirra Comeys og Trumps var svona:
„Að morgni 11. apríl hringdi forsetinn í mig og spurði hvað ég hefði gert í sambandi við beiðni hans um að „koma til skila“ að hann væri ekki persónulega til rannsóknar. Ég svaraði að ég hefði komið ósk hans til aðstoðardómsmálaráðherra en hefði ekki heyrt í honum. Hann svaraði að „skýið“ hindraði hann í að vinna sín störf. Hann sagði að kannski ætti hann að fá sitt fólk til að hafa samband við aðstoðardómsmálaráðherrann. Ég sagði að þannig bæri að meðhöndla ósk hans. Ég sagði að ráðgjafar í Hvíta húsinu ættu að hafa samband við æðstu menn dómsmálaráðuneytisins og leggja fram beiðnina, það væri hin hefðbundna leið.
Hann sagðist mundu gera það og bætti við: „Því ég hef verið þér mjög hollur [loyal], mjög hollur, við höfðum þetta samband þú veist.“ Ég spurði hann ekki hvað hann ætti við með „þessu sambandi“. Ég sagði bara að rétta leiðin í málinu væri að láta ráðgjafa Hvíta hússins hringja í settan aðstoðardómsmálaráðherra. Hann sagðist mundu gera það og þar með lauk símtalinu. Þetta var í síðasta sinn sem ég ræddi við Trump forseta.“
Athugasemdir