Við þurfum fleiri byssur í umferð. Skammbyssur það er að segja, og hríðskotabyssur. Afsagaðar haglabyssur sleppa til. Við þurfum nauðsynlega vélbyssur, úff já og handsprengjur og hvað um sprengjuvörpur? Líka stórskotaliðsvopn og almennileg loftskeyti – sænsk til dæmis. Að sjálfsögðu líka eldvörpur, árásarþyrlur, byssustingi og jarðsprengjur. Vopnaleitarhlið, bönkera, brynvarin ökutæki og skriðdreka. Já og eldflaugar með sprengjuoddum, Maginot-línudansflokka, sprengjuflugvélar með ámáluðum rándýrsskoltum og vopnaða kafbáta í hverja vík (og fleiri í alla byggða firði, jú og óbyggða líka). Herskip – ekki sissí gæsluskip með björgunartól og bleikum þyrlum heldur próper tundurspilla, beiti-, orrustu- og flugmóðurskip með bölvandi hrúðurkörlum. Leisergeislasúperbyssur, geimvarnarkerfi, radarstýrð vélbyssu- og napalmúðabelti og hreyfistýrðar teppasprengjusturtur, kjarnaodda, drullubombur, kínverja og hundaskítslorta í logandi pokum; kláðaduft, tóm slökkvitæki, rispaðar Metallica-plötur, prumpublöðrur, vasahnífagreiður, spillta endurskoðendur og brjóstvasatrúðablóm sem sprauta menguðu grunnvatni. Rauðskinnu Galdra-Lofts ljósritaða í almenna umferð, batteríslausa reykskynjara, ormétin epli, skáldverk Helga Jónssonar í heitavatnstanka, grófan klósettpappír, mygluð jarðarber á þúsundkall og gluggaumslög full af útreikningum fjármálastofnana sem hata okkur sem erum krónískt blönk. Svikamiðla, árunuddara og sjálfumglaða reikaheilara með óskilyrtar forvirkar rannsóknarheimildir og vottorð í leikfimi, teygjubyssur í ruslabílana, megna líkamslykt og klósettvatnsblöðrur í strætóana, sem ávallt skulu vera á undan áætlun. Nammi með gráðaostabragði í lobbýin og á nammibarina, vannærðan búfénað í alla fréttatíma og andfúla hunda með spilafíkn og ólæknandi sjálfseyðingarhvöt í hverja hverfissjoppu, á hvern fund borgarstjórnar og palla Alþingis. Þetta er heimurinn í dag, þetta er nútíminn, núið, núvitundin, presensið, geimtíminn, mómentið og allar okkar fjúkandi tjúlluðu grillur. Heill þjóðaröryggisráði og piparúðandi lögregluþjónum í klossum með stáltám. Lifi öfgamennirnir, hvort sem er með bindi, krossa eða keffiyeh. Hestafólk líka. Fleiri vopn, einkum fyrir börnin. Þetta er uppspuni frá rótum, með útúrdúrum og afleggjurum, allt samanfléttað í rauntíma. Ég vil fleiri byssur, meiri skít, fullkominn fölskva. Förgum okkur.
Kött Grá Pje vill ekki bara fleiri byssur heldur alvöru herskip og skítabombur.
Mest lesið
1
Brosir gegnum sárin
Andrea Kolbeinsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í hlaupum, gerir hlé á læknisfræði til að reyna að verða atvinnuhlaupari. Hún deilir lærdómi sínum eftir hindranir og sigra síðustu ára. Fjölskyldumeðlimir hafa áhyggjur af hlaupunum, en sjálf ætlar hún að læra meira á mannslíkamann til að bæta sig og hjálpa öðrum. Hlaupin snúast um sigur hugans og stundum brosir hún til að plata heilann.
2
Sendur í heilaskönnun 2400 árum eftir fæðingu
Að næturlagi í lok apríl sl. var litlum fólksbíl ekið frá Silkeborg á Jótlandi til Árósa, um 40 kílómetra leið. Tveir farþegar voru í bílnum, annar á miðjum aldri en hinn mun eldri, kom í heiminn löngu fyrir Krists burð. Það var þó einungis höfuð þess gamla sem var með í ökuferðinni.
3
Jón Trausti Reynisson
Uggur og ótti í maraþoninu í Köben
Jón Trausti Reynisson var haldinn maranoju, sem rættist úr.
4
Vill að NATO greiði fyrir nýjan flugvöll
Eiríkur Ingi Jóhannsson forsetaframbjóðandi telur að aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu (NATO), sem samþykkt var á Alþingi árið 1949, hefði átt að vera sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í nýjasta þætti Pressu sagði Eiríkur að Ísland ætti ekki að leggja til fjármuni í varnarbandalagið. Þvert á móti ætti NATO, að hans mati, að fjármagna uppbyggingu á mikilvægum innviðum hér á landi.
5
Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun
Læknir á Landspítala segir að það sé óforsvaranlegt með öllu út frá læknisfræðilegu sjónarmiði að Blessing Newton frá Nígeríu verði vísað úr landi á morgun. Hún sé með sex æxli í legi og lífsnauðsynlegt að hún hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu. Blessing er nú í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði að sögn lögmanns hennar. Hann segir læknisvottorðið þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta framkvæmd brottvísunar.
6
Vilja byggja risavaxin gróðurhús við Patterson-svæðið
Um 123 þúsund fermetra gróðurhús, um átta metrar á hæð, yrðu byggð við Patterson-flugvöll til þörungaræktunar gangi áform fyrirtækis þar um eftir.
7
Natasha S.
Nostalgía
Natasha hugsar með nostalgíu til þeirra tíma þegar við héldum að stríð hefðu takmörk.
8
Óskar Hallgrímsson
Fólkið á bak við tölurnar
„Það er auðvelt að líta á þessa tölfræði sem einfaldar tölur á blaði, en því miður á bak við hverja einustu tölu er fjölskylda í sárum og þjóðfélag sem holast hægt og rólega út.“
9
Karókí, fyrirmyndir og slökunaraðferðir frambjóðenda
Einn segir ágætt að horfa á „froðu“ til að slaka á. Tveir syngja helst Abba í karókí. Fleiri en einn telja höfund Njálu merkastan Íslendinga. Þau líta upp til foreldra sinna, forfeðra og maka en líka fyrrverandi forseta. Heimildin lagði nokkrar léttar spurningar fyrir forsetaframbjóðendurna.
10
Menning mótmæla í Bandaríkjunum gleymd og grafin
Nútímasaga Bandaríkjanna er mótuð af kröftugum mótmælahreyfingum. Mótmæli gegn Víetnamstríðinu og fyrir réttindabaráttu þeldökkra og annarra minnihlutahópa höfðu áhrif á stjórnmálavitund heilla kynslóða. Mótmæli háskólanema þessa dagana gegn fjárhagslegum tengslum háskóla sinna við Ísrael og gegn stríðinu á Gaza mæta þó harkalegri valdbeitingu yfirvalda. Sögulegi baksýnisspegillinn dæmir slíkar aðgerðir hart.
Mest lesið í vikunni
1
Mistök, hamingja og væntingar Katrínar
Þegar Katrín Jakobsdóttir missti föður sinn ung að árum lærði hún að lífið er mikilvægara en dauðinn, stundin er núna og ekki eftir neinu að bíða. Hún ólst upp við öryggi sem gerir henni kleift að taka áhættur, en lítur svo á að hún hafi ekki neinu að tapa varðandi framboð sitt til forseta.
2
Þolendur sæmdarkúgunar eru allt niður í sjö ára gamlir
Sæmdarkúgun hefur færst í aukana síðastliðin ár, en lögreglan telur aðeins hluta slíkra brota rata inn á borð til sín. Þolendur eru oft mjög ungir, jafnvel á grunnskólaaldri. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Á vettvangi í umsjón Jóhannesar Kr. Kristjánssonar.
3
Stöðugleiki í fylgi frambjóðenda – Halla Hrund enn með mælanlegt forskot
Nær engar breytingar hafa orðið á fylgi efstu frambjóðenda á allra síðustu dögum samkvæmt kosningaspánni. Ef horft er til síðustu kosninga þar sem nýr forseti var kosinn þurfa frambjóðendur þó ekki að örvænta. Fylgið fór þá á fleygiferð á síðustu vikunum.
4
Jón Trausti Reynisson
Ástþór Magnússon hefur rétt fyrir sér
Ísland hefur hlutverki að gegna í heiminum vegna sérstöðu sinnar. Við höfum vanrækt þetta hlutverk.
5
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
Samsæriskenningar um frambjóðendur til forseta Íslands hafa látið á sér kræla, sérstaklega hvað varðar tengsl við Alþjóðaefnahagsráðið og meintar fyrirætlanir þess um heimsyfirráð. Stjórnmálasálfræðingur segir kenningarnar ekki eiga við rök að styðjast þótt vissulega sitji valdamikið fólk í ráðinu.
6
Sif Sigmarsdóttir
Samfélag til sölu
Hin raunverulega ógn við lýðræðissamfélagið er fólkið sem telur sig geta keypt það.
7
1.600 blaðsíður af óviðeigandi smáskilaboðum
Jóhannes Kr. Kristjánsson fékk að fylgja Birgi Erni Guðjónssyni, eða Bigga löggu, eftir við rannsókn á máli einu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Á vettvangi. Þar hafði fullorðinn karlmaður verið í miklum óviðeigandi samskiptum við 12 ára stúlku.
8
Lögfræðingur komst að annarri niðurstöðu en Bjarkey
Í lögfræðiáliti um frumvarp um lagareldi sem unnið var fyrir ráðuneytið er komist að annarri niðurstöðu um rekstrarleyfi í laxeldi en Bjarkey Gunnarsdóttir matvælaráðherra lýsti á Alþingi. Bjarkey vísaði til lögfræðinnar í rökstuðningi fyrir því að gera leyfin ótímabundin.
9
Ráðuneyti Willums þrýsti á Persónuvernd
Ráðuneyti Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra bað Persónuvernd, undir stjórn Helgu Þórisdóttur, að endurskoða umsögn um breytingar á lögum um vísindi og rannsóknir á heilbrigðissviði í vetur. Helga varð ekki við beiðninni.
10
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Að gefa landið úr landi
Rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar um vistmorð, landráð og annað hættulegt sem hún og mamma hennar ræða.
Mest lesið í mánuðinum
1
Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
Móðir á Kirkjubæjarklaustri ætlar að flytja með börnin sín úr bænum þar sem hún telur ástandið í Kirkjubæjarskóla óviðunandi. Sonur hennar hefur lítið mætt í skólann í á annað ár eftir atvik í skólanum sem foreldrarnir kærðu til lögreglu. Málið var látið niður falla. Skólastjórinn er nú á förum en sveitarstjórinn segir það „engum einum að kenna þegar tveir deila“.
2
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Starfsmenn Alvotech lýsa vinnuálaginu sem ómanneskjulegu og hafa leitað til stéttarfélaga út af ógreiddri yfirvinnu og fleiri málum. Vinnuaðstæðurnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá markaðsleyfi fyrir samheitalyf Humira í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dregist saman og samheitalyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Bandaríkjunum og reiknað var með.
3
Sóltún keypti jeppa fyrir forstjórann í uppsagnarhrinu
Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur verið í hagræðingaraðgerðum og sagt upp starfsfólki á síðustu mánuðum.
4
Mistök, hamingja og væntingar Katrínar
Þegar Katrín Jakobsdóttir missti föður sinn ung að árum lærði hún að lífið er mikilvægara en dauðinn, stundin er núna og ekki eftir neinu að bíða. Hún ólst upp við öryggi sem gerir henni kleift að taka áhættur, en lítur svo á að hún hafi ekki neinu að tapa varðandi framboð sitt til forseta.
5
Hefur gengið á eftir Ástþóri í 19 ár vegna ógreidds reiknings
Árið 2005 sendi Steinþór Grímsson athafnamanninum Ástþóri Magnússyni reikning upp á rúmar 30 þúsund krónur á þávirði. Hann hefur ekki enn fengist greiddur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í áranna rás. Ástþór þvertekur fyrir að skulda manninum, sem og öðrum, nokkuð.
6
Sif Sigmarsdóttir
Það sem ég á Bjarna Ben að þakka
Í fullkomnum heimi væri pistlahöfundur atvinnulaus.
7
Sif Sigmarsdóttir
Litla Gunna í Kristjaníu, litli Jón á Kvíabryggju
Væri tíma nútímaforeldra betur varið við að valda börnum sínum vonbrigðum en að keyra þau í ballettíma eða mauka fyrir þau avókadó?
8
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
Sama dag og Geir H. Haarde flutti ræðu til þjóðarinnar þar sem hann bað guð um að blessa Ísland veitti Kaupþing aflandsfélagi lán sem notað var til að kaupa verðlítil skuldabréf af starfsmönnum og vildarviðskiptavini bankans. Nú, 15 og hálfu ári eftir að lánið var veitt, stendur til að saksækja þrjá einstaklinga í Lúxemborg vegna þess.
9
Ole Anton Bieltvedt
Af hverju er Halla Hrund Logadóttir kjörin og rétt í forsetaembættið?
Ole Anton Bieltvedt segir að forsetinn verði að vera þjóðlegur og alþjóðlegur í senn. Umhverfis- og náttúruverndarsinni. Með tandurhreinan bakgrunn, flekklaust einkalíf, mikla og góða menntun og reynslu að sama skapi.
10
Þolendur sæmdarkúgunar eru allt niður í sjö ára gamlir
Sæmdarkúgun hefur færst í aukana síðastliðin ár, en lögreglan telur aðeins hluta slíkra brota rata inn á borð til sín. Þolendur eru oft mjög ungir, jafnvel á grunnskólaaldri. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Á vettvangi í umsjón Jóhannesar Kr. Kristjánssonar.
Athugasemdir