Sko.
Menn geta haft hvaða skoðun sem þeir vilja á Ólafi Ragnari Grímssyni.
Að hann sé hetja, stjórnvitringur, spámaður ... hvað sem er.
Menn mega líka hafa hvaða skoðun sem þeir vilja á aflandsfélögum og skattaskjólum.
Þar á meðal - eins og Sigurður Ingi forsætisráðherra - að þetta séu í alla staði eðlileg fyrirbæri, því einhvers staðar verði elsku krúttin ríka fólkið að geyma alla peningana sína.
Menn mega vera þeirrar trúar, ef þeir hafa geð til - þótt ég geri það ekki.
Og menn mega líka reyna að trúa því að Ólafur Ragnar Grímsson hafi aldrei svo mikið sem ámálgað peningamál við konu sína.
Ekki einu sinni eftir að hún flutti til Bretlands til að þurfa ekki að borga skatta hér á landi.
Og heldur ekki eftir að Panamaskjölin komu fram í dagsljósið og það var sjálfsagðasta ályktun í heimi að Moussaieff-fjölskyldan gæti vel átt þar einhverja reikninga.
En ef menn vilja trúa því að jafnvel þá hafi Ólafur Ragnar ekki spurt sína góðu frú hvort hún eða fjölskylda kynnu að dúkka upp í þessum pappírum - ja, ef menn vilja og geta trúað því, þá þeir um það.
En jafnvel þeir sem trúa þessu öllu saman, þeir geta varla sætt við að vera boðið upp á þvætting eins og þann sem Ólafur Ragnar Grímsson ætlar okkur nú að trúa.
Að hann hafi MISSKILIÐ Christiane Amenapour fréttakonu CNN þegar hún spurði skýrt og greinilega:
„Átt þú einhverja aflandsreikninga? Á konan þín einhverja aflandsreikninga? Mun eitthvað koma í ljós um þig og þína fjölskyldu?"
Að þá hafi hann MISSKILIÐ spurninguna þannig að hún ætti einmitt alls ekki við hina forríku eiginkonu hans, heldur hafi Amenapour einungis verið að forvitnast um fjárhag fjölskyldu hans á Íslandi - væntanlega um fjárhag dætranna og eiginmanna þeirra?
Auðvitað misskildi Ólafur Ragnar ekki spurninguna.
Annaðhvort vissi hann ekki betur - en taldi sig samt þess umkominn að svara afdráttarlaust: „Nei nei nei nei nei, það mun ekki verða.“
Sem sýnir þá vægast sagt tröllslegt dómgreindarleysi.
Eða þá hann var bara að ljúga.
En ekki bjóða okkur upp á að þykjast hafa MISSKILIÐ spurninguna.
Ef Ólafur Ragnar ætlar að standa fastur á því að halda áfram í framboði, þá hann um það.
Menn kjósa hann bara sem vilja, allt í lagi með það.
En með þessari aumu misskilningsvörn sinni hefur hann sett afar, afar mikið ofan.
Því þetta er svo augljóslega rangt. Og það er frekar dapurlegt að horfa upp á stjórnmálamann reyna alveg augljóslega að hafa rangt við.
Það er lítillækkandi fyrir þig, Ólafur Ragnar Grímsson, að bjóða upp á svona bull.
Og það er lítillækkandi fyrir þjóð þína ef þú telur að það sé hægt að bjóða okkur upp á svona firru.
Athugasemdir