Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er snúinn aftur og aftur byrjaður að snappa. Við endurkomu sína segir hann að það þurfi ekki að standa við að flýta kosningum, eins og flokkurinn hans lofaði þegar fólk mótmælti honum og ríkisstjórninni.
Hér er brot af því besta frá Sigmundi fram að þessu:
1. Eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði ákveðið nauðugur að segja af sér sem forsætisráðherra, í kjölfar þess að hafa sagt ósatt um leynda hagsmuni sína, sendi hann yfirlýsingu á erlenda fjölmiðla um að hann hefði í raun ekki sagt af sér. „The prime minister has not resigned,“ stóð í yfirlýsingunni. En hann var samt hættur, þótt hann ætti formlega eftir að ganga frá einhverju tæknilegu atriði. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu um málið út frá því hversu undarlegt ástandið væri á Íslandi, en íslenskir fjölmiðlar föttuðu fljótt að þetta var bara Sigmundur aftur að missa það.
2. Eftir að Sigmundur fór á fund með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta, til að ræða hvort hann fengi umboð til að rjúfa þing og boða þingkosningar, og Ólafur Ragnar sagði nei - sagðist hann ekki hafa ætlað að rjúfa þing og boða kosningar. Bara viljað fá heimildina til þess ef ske kynni, eins og reyndar leit út fyrir. Hann hafði skrifað á Facebook fyrir fundinn að hann væri tilbúinn að slíta stjórnarsamstarfinu ef sjálfstæðismenn styddu hann ekki sem forsætisráðherra. En í gær var hann í flestum fréttatímum að útskýra fyrir okkur hvers vegna hann ætlaði bara að fá heimildina, en ekki nota hana. Eins og að setja eignir í skattaskjól, ekki til að nýta sér leyndina, heldur bara af því að það er hægt.
3. Eftir að Sigmundur hafði ítrekað sagt að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fyrir alþingiskosningarnar 2013, ákvað hann eftir kosningar að sleppa því. „Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði hann áður. Svo hætti hann við að standa við það því það hentaði honum og það var hægt.
4. Áður en flokkurinn hans komst í ríkisstjórn krafðist hann þess að stjórnlagaþing yrði haldið til að móta nýja stjórnarskrá, sem þjóðin myndi síðan kjósa um. Eftir að þetta var gert, þjóðin samþykkti nýju stjórnarskrána og hann komst í ríkisstjórn, ákvað hann að stoppa þetta af.
Sigurður Ingi Jóhannsson staðfestir loforð um kosningar í haust.
5. Eftir að tugþúsundir mótmæltu ósannindum og sérhagsmunum Sigmundar Davíðs og fleiri félaga hans í ríkisstjórn landsins ákváðu framsóknarmenn og sjálfstæðismenn að lofa að þingkosningum yrði flýtt til næsta hausts. „Með öllum fyrirvörum um eðlilegan framgang þingstarfanna, þá vorum við að ræða um það að síðari hluti október gæti verið ágætlega ákjósanlegur tími,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra. Við svo búið hættu flestir að mótmæla.
„Þeir lýstu því yfir að þeir væru reiðubúnir til þess að ræða það að kosningar færu fram“
Nú segir Sigmundur, sem er ennþá formaður Framsóknarflokksins, að það sé allt í lagi að svíkja þetta bara. Það liggi ekkert á að halda kosningar. „Það er rétt að þeir lýstu því yfir að þeir væru reiðubúnir til þess að ræða það að kosningar færu fram snemma, í haust. Ef að, og þeir létu það alltaf fylgja sögunni, ef að öll þau mál sem þyrftu að klárast væru búin,“ sagði Sigmundur á Bylgjunni í gær og hélt áfram að undirbyggja að loforðið yrði svikið. „Það sem ég heyri á fólki, ekki bara í mínum flokki heldur líka þingmönnum annarra flokka og á almenningi er að menn telji ekki liggja á kosningum í haust. Það er mjög margt bagalegt við það að fara í kosningar á þeim tímapunkti.“
Til hvers að standa við loforð ef það hentar manni ekki?
Á Snapchat hefur Sigmundur Davíð fundið rétta miðilinn. Því hann er sérhannaður til þess að skilaboðin sem send eru með honum hverfi eftir að tekið hefur verið við þeim.
Þannig er hægt að lofa og svíkja og rugla, og segja síðan: „Hvað? Hélduð þið að ég væri hættur?“
Athugasemdir