Ég er ein þeirra sem strengi alltaf verulega óraunhæf áramótaheit í lok desember og ver síðan árinu í tilbúnu kapphlaupi við sjálfa mig. Þegar ég rakst á skemmtilega og krefjandi lestraráskorun fyrir árið 2017 stóðst ég að sjálfsögðu ekki mátið og setti mér það markmið að lesa fjörutíu bækur á árinu! Týpan sem les að jafnaði fjórar bækur, en horfi þess í stað á fjörutíu sjónvarpsþáttaraðir. En hugmyndin er mjög skemmtileg. Þú færð ekki lista yfir fjörutíu bækur sem einhverjir sérfræðingar hafa valið handa þér, heldur eru þetta fjörutíu atriði sem hver bók verður að uppfylla. Tilgangurinn er að fá fólk til að stíga út fyrir þægindarammann og lesa bækur sem það hefði annars ekki lesið.
Fyrsta bókin átti til dæmis að vera bók sem bókasafnsfræðingur hefði mælt með. Hér beygði ég reyndar aðeins reglurnar og valdi bók sem tilvonandi bókmenntafræðingar í vísindaferð hjá Stundinni sögðu allir sínar uppáhalds bók - Mánastein eftir Sjón. Og nú skil ég hvers vegna. Hún er dásamleg. Fimm stjörnur!
Næsta bók átti að vera bók sem var búin að vera lengi á „to-be-read“ listanum, og þar valdi ég Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason, enda búin að sitja í bunkanum á náttborðinu frá því ég keypti mér hana fyrir vandræðalega mörgum árum. En bókin á enn erindi við okkur öll. Paradís óskar eftir samningaviðræðum við helvíti og halló kísilverksmiðja. Fimm stjörnur!
Þriðja bókin átti síðan að vera bók sem innihéldi samansafn af bréfum. Eftir nokkra leit komst ég á snoðir um bók með bréfum frá sjálfu Nóbelsskáldinu. Ástarbréf frá ungum Halldóri Laxness til fyrri eiginkonu sinnar. Þvílíkur fjársjóður! Ást sem virðist heitust úr fjarlægð, afbrýðisemi, söknuður og þrá, en einnig vonir og vonbrigði ungs manns sem ætlaði að meika það í Hollywood, en tókst ekki. Fimm stjörnur!
Svona heldur listinn áfram; hljóðbók, bók eftir höfund sem er dökkur á hörund, bók þar sem árstíð kemur fyrir í titlinum, og svo framvegis. Ég held svei mér þá að ég hafi loksins fundið áramótaheit sem ég muni standa við. Kannski ég taki jafnvel þátt í Reykjavíkurmaraþoninu líka?
Eða nei, varla.
Athugasemdir