Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Þriðji orkupakkinn breytir engu um hvort þjóðin eigi auðlindirnar

Norð­menn brutu gegn EES-samn­ingn­um ár­ið 2007 með því að hygla orku­fyr­ir­tækj­um í op­in­berri eigu á kostn­að einka­fjár­festa og er­lendra fyr­ir­tækja. Ís­lend­ing­ar eru bundn­ir af sömu regl­um um frjálst flæði fjár­magns og stofn­setn­ing­ar­rétt og hafa þeg­ar mark­aðsvætt raf­orku­kerf­ið. Þriðji orkupakk­inn breyt­ir engu um þetta.

Þriðji orkupakkinn breytir engu um hvort þjóðin eigi auðlindirnar
Lítil breyting á regluverkinu Engin ákvæði í þriðja orkupakkanum hafa áhrif á eignarréttinn yfir orkuauðlindum og engin eðlisbreyting verður á því regluverki sem þegar er í gildi um viðskipti með raforku.

Í umræðum um þriðja orkupakkann hafa stjórnarliðar ítrekað vísað til 125. gr. EES-samningsins sem kveður á um að samningurinn hafi „engin áhrif á reglur samningsaðila um skipan eignarréttar“. 

Utanríkisráðuneytið leggur áherslu á þetta í fræðsluefni á vef sínum undir yfirskriftinni Spurningar og svör um þriðja orkupakkann. „Þetta kemur skýrt fram í 125. gr. samningsins. Af því leiðir að EES-samningurinn haggar ekki forræði íslenska ríkisins á náttúruauðlindum í þeim skilningi að Ísland hefur heimild til þess að ákveða hvort náttúruauðlindir skuli vera í eigu ríkisins eður ei.“

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, áréttaði þetta sérstaklega í umræðu um þriðja orkupakkann á Alþingi þann 8. apríl síðastliðinn. „Í 125. gr. EES-samningsins kemur skýrt fram að samningurinn hafi engin áhrif á reglur samningsaðila um skipan eignarréttar,“ sagði hann. 

En hversu áreiðanleg er 125. greinin þegar kemur að því að verja opinbert eignarhald og opinbera stýringu á orkuauðlindum og nýtingu þeirra? Á þetta hefur reynt fyrir EFTA-dómstólnum, meðal annars árið 2007 þegar kveðinn var upp dómur í máli ESA gegn Noregi er varðaði vatnsréttindamál og eignarhald raforkufyrirtækja.

Frjálst flæði fjármagns hafði betur

Norðmenn höfðu ráðist í lagabreytingar til að bregðast við sívaxandi áhuga erlendra fjárfesta á kaupum á vatnsföllum og sett reglur um að leyfi opinberra fyrirtækja í Noregi til kaupa á vatnsréttindum til raforkuframleiðslu væru ótímabundin en að slík leyfi væru tímabundin ef einkafyrirtæki og erlend fyrirtæki sæktust eftir þeim.

EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu árið 2007 að þessar ráðstafanir Norðmanna til að koma á ákveðinni eignarréttarskipan yrði að meta með tilliti til reglna EES-samningsins um stofnsetningarrétt og frjálst flæði fjármagns. 

„Í dóminum segir að sá greinarmunur sem gerður er í norskri löggjöf á opinberum aðilum annars vegar og einkaaðilum og erlendum aðilum hins vegar, í tengslum við veitingu leyfa til kaupa á vatnsföllum til raforkuframleiðslu, hafi neikvæð áhrif á fjárfestingu síðarnefnda hópsins,“ segir í reifun EFTA-dómstólsins „Ástæðan sé sú að þessir aðilar hafi styttri tíma til að fá arð af fjárfestingu sinni en opinberir aðilar. Greinarmunurinn feli í sér óbeina mismunun gegn erlendum aðilum sem hindri bæði frjálst flæði fjármagns og réttinn til staðfestu.“

„Greinarmunurinn feli í sér óbeina mismunun gegn erlendum aðilum sem hindri bæði frjálst flæði fjármagns og réttinn til staðfestu“

EFTA-dómstóllinn taldi norska fyrirkomulagið fremur stefna að opinberri stýringu á vatnsaflsauðlindum en opinberu eignarhaldi og að norsk stjórnvöld hefðu ekki sýnt fram á að eignaryfirráð væru nauðsynleg til að ná yfirlýstum markmiðum um umhverfisvernd og almannaöryggi. Fyrir vikið hefði Noregur brotið gegn 31. og 40. gr. EES-samningsins um stofnsetningarrétt (réttinn til að stofna til ótímabundinnar atvinnustarfsemi í öðru aðildarríki) og frjálst flæði fjármagns. 

Töldu valdaframsalið varasamtLögfræðingarnir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst lýstu efasemdum um hvort valdaframsalið sem fælist í innleiðingu þriðja orkupakkans stæðist stjórnarskrá.

Lögfræðingarnir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst víkja að umræddu máli í álitsgerð sinni um stjórnskipuleg álitamál vegna þriðja orkupakkans. Benda þeir á að þrátt fyrir niðurstöðu EFTA-dómstólsins megi vel halda því fram að í norska fyrirkomulaginu hafi falist „tiltekin skipan eignarréttar sem gerði norska ríkinu kleift að halda auðlindinni innan vébanda þess“. Í sambandsrétti sé ekki „ljóst hvað felist í orðasambandinu skipan eignarréttar né hverrar verndar hann njóti“ og EFTA-dómstóllinn hafi skýrt orðasambandið afar þröngt. 

Þriðji orkupakkinn breytir engu um eignarréttinn

Mál ESA gegn Noregi er athyglisvert dæmi um árekstur milli hagsmuna einkafyrirtækja og sjónarmiða um þjóðareign og opinbera stýringu auðlinda. Með því að hygla eigin opinberu raforkufyrirtækjum voru Norðmenn taldir hafa brotið gegn ákvæðum EES-samningsins um frelsi fyrirtækja- og fjármagnseigenda. Eftir að dómurinn féll var lögum og lagaframkvæmd í Noregi breytt á þann veg að hætt var að veita einkafyrirtækjum leyfi til kaupa á vatnsréttindum til raforkuframleiðslu en um leið tryggt að einkafjárfestar fengju að eiga allt að þriðjungshlut í opinberum raforkufyrirtækjum. 

Í málinu reyndi á reglur sem Íslendingar eru nú þegar bundnir af sem aðilar að EES-samningnum. Þriðji orkupakkinn hefur hins vegar ekkert með eignarrétt á orkuauðlindum að gera og felur ekki sér neinar grundvallarbreytingar á því regluverki sem gildir nú þegar um viðskipti með raforku á Íslandi. Í gerðunum er ekki að finna eitt einasta ákvæði sem gengur gegn því að aðildarríki reki kerfi sem byggist á því að orkuauðlindir séu í þjóðareigu. 

Eins og Henrik Bjørnebye, prófessor í orkurétti við Oslóarháskóla, bendir á í nýlegri skýrslu fyrir Energi Norge, samtök norskra orkufyrirtækja, gilda allar meginreglur EES-samningsins áfram um orkugeirann óháð því hvort þriðji orkupakkinn verði tekinn upp í samninginn og öðlist gildi. Sem aðili að samningnum er Ísland þegar bundið af reglum um frjálst flæði vöru og fjármagns, samkeppni, neytendavernd, skorður við ríkisaðstoð og bann við magntakmörkunum á innflutningi og útflutningi. Sumar reglnanna hafa litla eða enga þýðingu fyrir orkugeirann meðan íslenska raforkukerfið er ótengt því evrópska en myndu öðlast verulega þýðingu við lagningu sæstrengs.

Ákvæðin eru hins vegar óviðkomandi þriðja orkupakkanum og hvergi í gerðum pakkans er að finna nein ákvæði sem skylda aðildarríki til að leggja sæstreng eða leyfa hann. Af álitsgerðum lögfræðinga um þriðja orkupakkann má ráða að ef svo sérkennilega vildi til einn daginn að EFTA-dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að íslenskum stjórnvöldum bæri skylda til að leyfa einkaaðilum að leggja sæstreng, þá væri það ekki vegna ákvæða þriðja orkupakkans heldur vegna meginreglna EES-samningsins um frjálst flæði vöru. Þannig segir til að mynda Skúli Magnússon, dósent við lagadeild HÍ og héraðsdómari, að það sé „hafið yfir vafa að afleiddur réttur sambandsins, þ.á m. umræddrar gerðir þriðja orkapakkans, fela ekki í sér skyldu til slíkrar framkvæmdar eða til skyldu til að leyfa þær“ auk þess sem „heimildir Eftirlitsstofnunar EFTA/Samstarfsstofnunarinnar beinast ekki að ákvörðunum um slíkar framkvæmdir“. 

Henrik Bjørnebyeprófessor í orkurétti við Oslóarháskóla. 

„Þriðji orkupakkinn byggir á öðrum orkupakkanum sem þegar hefur verið felldur inn í EES-samninginn. Þar af leiðandi er ákvörðun um að innleiða þriðja orkupakkann ekki spurning um að gerast aðili að innri orkumarkaði ESB, heldur frekar spurning um að halda áfram og auka samvinnu sem þegar er komin á,“ segir í skýrslu Henriks Bjørnebye. „Samkvæmt 125. gr. EES-samningsins er hverjum samningsaðila heimilt að setja sér stefnu um að orkuauðlindir séu almannaeign svo framarlega sem stefnan brjóti ekki í bága við grundvallarreglur meginmáls EES-samningsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki ver­ið bor­inn und­ir Al­þingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönn­um Ork­unn­ar okk­ar, tel­ur það stjórn­ar­skrár­brot að Ís­land hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ing­ar ECT-samn­ings­ins án að­komu Al­þing­is. Gunn­ar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mund­ar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Að­stoð­ar­mað­ur Sig­mund­ar rétt­læt­ir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stund­um er hlut­um bland­að inn í um­ræð­una“

Hinn um­deildi samn­ing­ur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyr­ir Ís­land fyrr en rík­is­stjórn Sig­mund­ar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar full­gilti hann ár­ið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­rit­un samn­ings­ins 20 ár­um áð­ur var full­gild­ing­in ekki bor­in und­ir Al­þingi. Að­stoð­ar­mað­ur Sig­mund­ar Dav­íðs gef­ur lít­ið fyr­ir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önn­ur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yf­ir­lýs­ingu um for­ræði yf­ir sæ­strengj­um og olíu­leiðsl­um. Með und­ir­rit­un Gunn­ars Braga Sveins­son­ar og Ól­afs Ragn­ars Gríms­son­ar ár­ið 2015 skuld­bundu ís­lensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingn­um í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mund­ar full­gilti um­deild­an samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa ís­lensk stjórn­völd skuld­bund­ið sig til að liðka fyr­ir frjáls­um við­skipt­um með orku­auð­lind­ir og að beita sér fyr­ir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deil­ur um lagn­ingu sæ­strengs, en fjár­fest­ar hafa með­al ann­ars not­að samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerð­um sem er ætl­að að halda niðri raf­orku­verði til al­menn­ings.

Mest lesið

Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
2
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
„Óviðunandi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman
3
FréttirFatlað fólk beitt nauðung

„Óvið­un­andi“ að bíða í þrjú ár – Var læst­ur inni ár­um sam­an

Þriggja ára bið eft­ir ráð­gjöf frá sér­fræðiteymi um að­gerð­ir til að draga úr beit­ingu nauð­ung­ar í þjón­ustu við fatl­að fólk er óvið­un­andi að mati fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Það var hins veg­ar sá tími sem Ak­ur­eyr­ar­bær beið eft­ir ráð­gjöf­inni í máli Sveins Bjarna­son­ar sem var læst­ur inni í íbúð á veg­um bæj­ar­ins. Ráðu­neyt­ið ít­rek­ar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauð­ung.
Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun
5
Fréttir

Lækn­ir seg­ir lífi Bless­ing ógn­að með brott­vís­un

Lækn­ir á Land­spít­ala seg­ir að það sé ófor­svar­an­legt með öllu út frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­miði að Bless­ing Newt­on frá Níg­er­íu verði vís­að úr landi á morg­un. Hún sé með sex æxli í legi og lífs­nauð­syn­legt að hún hafi greið­an að­gang að bráða­þjón­ustu. Bless­ing er nú í gæslu­varð­haldi á Hólms­heiði að sögn lög­manns henn­ar. Hann seg­ir lækn­is­vott­orð­ið þess eðl­is að ekki sé ann­að hægt en að fresta fram­kvæmd brott­vís­un­ar.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
6
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Menning mótmæla í Bandaríkjunum gleymd og grafin
7
GreiningÁrásir á Gaza

Menn­ing mót­mæla í Banda­ríkj­un­um gleymd og graf­in

Nú­tíma­saga Banda­ríkj­anna er mót­uð af kröft­ug­um mót­mæla­hreyf­ing­um. Mót­mæli gegn Víet­nam­stríð­inu og fyr­ir rétt­inda­bar­áttu þeldökkra og annarra minni­hluta­hópa höfðu áhrif á stjórn­mála­vit­und heilla kyn­slóða. Mót­mæli há­skóla­nema þessa dag­ana gegn fjár­hags­leg­um tengsl­um há­skóla sinna við Ísra­el og gegn stríð­inu á Gaza mæta þó harka­legri vald­beit­ingu yf­ir­valda. Sögu­legi bak­sýn­is­speg­ill­inn dæm­ir slík­ar að­gerð­ir hart.
„Finnst ég vera að heyja dauðastríð“
10
Fréttir

„Finnst ég vera að heyja dauða­stríð“

Níg­er­ísku kon­urn­ar þrjár sem flúðu til Ís­lands und­an man­sali fyr­ir nokkr­um ár­um verða send­ar úr landi í kvöld. Þær eru í fang­els­inu á Hólms­heiði og ræddu við Heim­ild­ina í síma síð­deg­is. Ein kvenn­anna er al­var­lega veik og seg­ist líða eins og hún sé að heyja dauða­stríð. Þær segja að lækn­ir verði með í för þeg­ar þær verða flutt­ar úr landi. „Lækn­ir á að sjá til þess að hún andi út fyr­ir loft­helgi Ís­lands,“ seg­ir ís­lensk vin­kona kvenn­anna þriggja.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
3
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
10
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu