Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Líkir Piu Kjærsgaard við Dalai Lama

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, seg­ir skoð­an­ir Piu Kjærs­ga­ard í út­lend­inga­mál­um vera „við­ur­kennd­ur hluti meg­in­sjón­ar­miða í evr­ópsk­um stjórn­mál­um“. Mót­mæli Pírata séu svip­uð og þeg­ar kín­versk­ir náms­menn mót­mæltu komu Dalai Lama.

Líkir Piu Kjærsgaard við Dalai Lama
Björn Bjarnason Fyrrverandi ráðherra segir formann danska jafnaðarmannaflokksins njóta vaxandi virðingar flokksbræðra í öðrum löndum vegna harðrar útlendingastefnu sinnar. Mynd: PressPhotos

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, líkir gagnrýni á Þingvallaræðu Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins, við gagnrýni kínverskra námsmanna í Bandaríkjunum á komu Dalai Lama. Þá segir hann skoðanir Piu í útlendingamálum vera viðurkenndar í evrópskum stjórnmálum.

Dalai Lama

Í grein í Morgunblaðinu í dag skrifar Björn að kínverskir námsmenn við háskóla í San Diego hafi mótmælt fyrirhugaðri ræðu Dalai Lama við skólann vorið 2017. Dalai Lama hefur barist fyrir mannréttindum og frjálsu Tíbet og sætt gagnrýni kínverskra stjórnvalda fyrir vikið.

Björn segir gagnrýni Pírata á hátíðarræðu Piu á Þingvöllum dæmi um „hvernig pólitísk öfl vilja ráða skoðanamyndun í landinu með því að þagga niður í erlendum einstaklingi sem þeir eru ósammála.“ Pia er þekkt fyrir útlendingaandúð og baráttu sína gegn fjölmenningu og íslam. Árið 2010 kallaði hún eftir því að stjórnvöld bönnuðu innflytjendum sem ekki væru af vestrænum uppruna að setjast í Danmörku. Hæstiréttur Danmerkur felldi árið 2003 þann dóm að réttmætt væri að kalla skoðanir Piu „rasískar“.

„Þetta er í ætt við viðhorfið hjá kínversku námsmönnunum sem gengu þeirra erinda að banna Dalai Lama að flytja ræðu sína,“ skrifar Björn. „Þetta er tilraun til útskúfunar í því skyni að hefta frjálsa skoðanamyndun.“

Samfylkingins stöðvi fylgistap sitt með harðari útlendingastefnu

Björn skrifar að „atlagan að Piu“ hafi verið dæmd til að mistakast. „Stórdeilurnar vegna komu Piu Kjærsgaard á fund Alþingis eru angi af umræðum sem setja sterkan svip á stjórnmál líðandi stundar í Evrópu,“ skrifar Björn. „Sjónarmið sem hún boðar í útlendingamálum voru fyrir nokkrum árum kennd við öfgaskoðanir. Þau eru nú viðurkenndur hluti meginsjónarmiða í evrópskum stjórnmálum.“

Þá skrifar Björn að Samfylkingin ætti að taka upp harðari útlendingastefnu til að forðast fylgistap. „Með fordæmingu sinni á viðhorfum Kjærsgaard skipar Samfylkingin sér í hóp andstæðinga danskra jafnaðarmanna í útlendingamálum. Formaður danska jafnaðarmannaflokksins nýtur á sama tíma vaxandi virðingar flokksbræðra í öðrum löndum en hér vegna harðrar útlendingastefnu sinnar. Slík fyrirstaða kunni að stöðva fylgistap jafnaðarmannaflokka um alla Evrópu.“

Píratar gangi af þingfundi á „öruggt svæði“

Í greininni notar Björn reglulega hugtakið „öruggt svæði“, sem er þýðing á enska hugtakinu „safe space“. Hugtakið á uppruna sinn í hreyfingum kvenna, samkynhneigðra og annarra hópa og táknar rými þar sem manneskja úr viðkomandi hópi getur verið viss að hún mæti ekki fordómum, mismunun, áreiti eða ofbeldi vegna hópsins sem hún tilheyrir.

Pia Kjærsgaard

„Hér á landi höfum við kynnst því undanfarna daga hvernig pólitísk öfl vilja ráða skoðanamyndun í landinu með því að þagga niður í erlendum einstaklingi sem þeir eru ósammála,“ skrifar Björn. „Umburðarlyndið gagnvart skoðunum annarra er ekkert og þess er krafist að sjálft Alþingi sé „öruggt svæði“.“

Segir Björn Pírata ekki sætta sig við „aukna gæslu á landamærum eða varðstöðu um norrænan og evrópskan menningararf.“ Þeir sem hafi nasasjón af norrænum hátíðarræðum í áranna rás þurfi ekki að láta sér bregða vegna ummæla Piu. „Þurfi þingmenn að ganga af þingfundi á „öruggan stað“ vegna ummæla af þessum toga, ættu þeir ekki að fara í framboð,“ skrifar Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Flúði vændi en verður send út í annað sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“
FréttirFlóttamenn

Flúði vændi en verð­ur send út í ann­að sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“

Níg­er­ísk­ar kon­ur sem hing­að leita eft­ir dvöl á Ítal­íu hafa í mörg­um til­vik­um ver­ið neydd­ar út í vændi þar og vilja ekki snúa aft­ur, því þær vita hvað bíð­ur þeirra. Ein kvenn­anna kom aft­ur til Ís­lands ör­fá­um dög­um eft­ir að hún fékk end­ur­komu­bann til þriggja ára, því hún sá enga aðra leið út.
Segir taugaveiklun hafa gripið um sig í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar ummæla Kristrúnar
StjórnmálFlóttamenn

Seg­ir tauga­veiklun hafa grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um í kjöl­far um­mæla Kristrún­ar

Jó­hann Páll Jó­hanns­son, þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði að tauga­veiklun hafi grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um eft­ir að Kristrún Frosta­dótt­ir steig inn í um­ræð­una um út­lend­inga­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í kjöl­far­ið ákveð­ið að kenna Sam­fylk­ing­unni um allt sem hef­ur mis­far­ist í mál­efn­um út­lend­inga. Þing­menn Við­reisn­ar og Pírata hörm­uðu í ræð­um sín­um þær breyt­ing­ar sem hafa átt sér stað á við­horfi til flótta­fólks.

Mest lesið

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
1
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
3
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
5
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
Askur Hrafn Hannesson
10
Aðsent

Askur Hrafn Hannesson

„Bant­ust­an er ekki Palestína”

Bar­áttu­mað­ur fyr­ir mann­rétt­ind­um vitn­ar í rapptexta Erps Ey­vind­ar­son­ar þar sem hann fjall­ar um „að­skiln­að­ar­stefnu að­flutta hvíta manns­ins” í Suð­ur-Afr­íku og bend­ir á að mann­rétt­inda­sam­tök á borð við Am­nesty In­ternati­onal hafi einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, í kjöl­far­ið á ára­langri rann­sókn­ar­vinnu, að Ísra­el sé að­skiln­að­ar­ríki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
8
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Þórður Snær Júlíusson
9
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu