Þessi grein birtist fyrir rúmlega 12 mánuðum.

Fá hreyfingu og náttúrufegurð í golfi

Meiri­hluti ís­lenskra kylf­inga eru karl­ar og mið­að við póst­núm­er búa flest­ir þeirra í Garða­bæ. Tals­mað­ur Golf­sam­bands Ís­lands og fram­kvæmda­stjóri GKG segja það mik­il­vægt að fá kon­ur inn í íþrótt­ina. Ferða­menn skila golf­klúbb­un­um allt að hundrað millj­ón­um á hverju ári.

Fá hreyfingu og náttúrufegurð í golfi
Golf Kylfingar þurfa að mörgu að huga áður en haldið er á völlinn en mikilvægt er að eiga góða kylfu til að slá með. Mynd: Shutterstock

„Ef það er eitthvað sem er þjóðaríþrótt þá er það golfið,“ segir Arnar Geirsson, kerfis- og skrifstofustjóri hjá Golfsambandi Íslands, í samtali við Heimildina. Rúmlega 23.300 kylfingar eru skráðir á Íslandi. Það eru 6 prósent af þjóðinni, en talsmaður GSÍ gerir ráð fyrir að á fimmta tug þúsunda Íslendinga spili golf í einhverjum mæli. Flestir kylfingar miðað við póstnúmer búa í Garðabæ.

Vantar konur í golf

Golf er aldagömul íþrótt sem á rætur sínar að rekja til Skotlands. Hér áður fyrr var golf gjarnan álitið svokallað hefðarmannasport og vísar það til þess að íþróttin var stíluð inn á efnað fólk í efri stéttum.

Íslenskir kylfingar eru í miklum mæli karlmenn en golfhreyfingin hefur lagt mikið upp úr því að auka þátttöku kvenna undanfarin ár. Af skráðum kylfingum eru 67% þeirra karlar en aðeins 33% konur. Arnar segir það markvisst í stefnu og markaðssetningu golfsambandsins að fá fleiri konur í íþróttina og ná hlutfallinu upp í 40% á næstu árum. Það er meðal annars gert með því að halda sérstök kvennamót og kvennadaga í golfklúbbunum. 

Arnar GeirssonSegir GSÍ leggja mikið upp úr því að auka þátttöku kvenna í golfi.

„Menn vilja náttúrlega bara hafa jafnt aðgengi og telja að þessi íþrótt henti konum alveg jafn vel og körlum.“ Hann bætir síðar við: „Þannig að það er markmiðið að kynna íþróttina fyrir konum og fá fleiri konur í íþróttina.“ Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, Agnar Már Jónsson, slær á sama streng og segir halla á konur í golfi. „Það vantar konur í íþróttina, þess vegna leggjum við mikla áherslu á að taka vel á móti konum og vera með virkt og öflugt kvennastarf.“

Kostnaður við föt og golfsett

Eins og almennt gengur og gerist í íþróttum hafa skapast ákveðnir siðir og venjur í kringum golf. Eitt af því sem einkennir kylfinga frá öðrum íþróttaiðkendum er klæðnaðurinn. Kylfingar klæðast yfirleitt fatnaði sérstaklega hönnuðum fyrir golf en misjafnt er hve alvarlega fólk tekur klæðaburðinum.

Verð á nýjum golf fatnaði.

Fyrir þau sem vilja klæða sig í viðurkenndum golffatnaði frá toppi til táar hleypur kostnaður á tugum eða hundruðum þúsunda. Á Íslandi eru þónokkrar golfbúðir sem selja slík föt. Heimildin bað starfsmann Golfskálans á Höfðabakka að finna fyrir sig flíkur sem hinn hefðbundni kvenkyns kylfingur myndi nota í golfi. Samtals kostar fatnaðurinn á myndunum 87.400 krónur en starfsmaðurinn tók fram að notagildi þessa fatnaðar væri til margra ára.

Auk fatnaðar þarf golfkylfur, tösku undir kylfurnar, tí og bolta. Aðgangur að golfklúbbi kostar líka sitt. Á höfuðborgarsvæðinu eru það að minnsta kosti 100.000 krónur en upphæðin er breytileg eftir klúbbi og aldri kylfings. 

Einfalt að byrja

Agnar Már hjá GKG bendir á að hægt sé að spila golf í hefðbundnum fötum og kaupa ódýrt golfsett með notuðum kylfum. „Svo náttúrlega er það árgjaldið í klúbbana, það er í kringum 140 þúsund krónur. Fyrir það ertu að fá ótakmarkað aðgengi að flottustu golfvöllum landsins þannig að ég held að golfíþróttin per se sé ekki þannig að hún kosti hvítuna úr augunum. Þvert á móti, ég held að miðað við aðrar íþróttagreinar þá sé golfíþróttin hreint og beint ódýr.“

Agnar Már JónssonFramkvæmdastjóri GKG.

Aðspurður hvort golf sé efri stéttar sport segir Agnar Már svo ekki vera. „Sérstaklega ekki hérna á Íslandi. Allir golfklúbbarnir eru með mjög virkt nýliðastarf. Það er mjög einfalt að byrja í golfi. Að vísu er áhuginn svo mikill núna að það er biðlisti í nánast alla golfklúbba á Reykjavíkursvæðinu, en það er tekið mjög vel á móti öllum í golfklúbbunum.“ Agnar Már segir öfluga nýliðafræðslu vera til staðar og nefnir kvennastarf GKG þar sem lengra komnar konur í golfi aðstoða nýjar konur við að taka sín fyrstu skref. 

Ég held að þessi mýta um að golf sé svona efri stéttar íþrótt, að hún heyri sögunni til hérna á Íslandi,“ segir Agnar Már. 

Golfsamband Íslands heldur úti tölfræði yfir fjölda kylfinga eftir póstnúmerum. Flestir kylfingar eru í þeim póstnúmerum þar sem aðgengi að golfvöllum er greitt en algengast er að kylfingar búi í Garðabæ. „Það eru fleiri vellir í Garðabæ heldur en fyrir allt Reykjavíkursvæðið,“ segir Agnar Már. 

Ferðamenn sækja í vellina

Golfferðir erlendis eru vinsælar hjá sólþyrstum Íslendingum en sérstaða íslensku náttúrunnar heillar líka erlenda kylfinga. Magnús Oddsson, stjórnarformaður Golf Iceland, segist vonast eftir metfjölda af ferðamönnum á golfvöllunum núna. Gróflega áætlað telur Magnús að ferðamenn skili golfklúbbum í kringum 120 milljónir í viðbótartekjum á ári. 

Síðustu 14 ár hefur Golf Iceland unnið að því að kynna íslenska golfvelli fyrir erlendum kylfingum og fjölmiðlum. Fyrir heimsfaraldurinn Covid-19 voru 8.000 leiknir hringir á sumrin af erlendum kylfingum. „Svo kom Covid og þá datt þetta eðlilega niður. Síðan sýnist okkur að þetta hafi farið í svona um 9.000 erlenda gesti 2021 og líklega milli 11 og 12 þúsund í fyrrasumar.“

Magnús OddssonSegir samfélagsmiðla hafa hjálpað íslensku golfhreyfingunni að sækja erlenda kylfinga hingað í frí.

Magnús segir flesta ferðamenn koma frá meginlandi Evrópu. „Ferðaskrifstofur á meginlandinu eru áhugasamar. Síðan dreifist þetta jafnt á milli Bandaríkjamanna, Breta og Norðurlandabúa.“ Golf Iceland hefur markvisst reynt að ná þessum hópum, til dæmis með því að taka þátt í erlendum ferðasýningum og bjóða fjölmiðlafólki frá sérhæfðum fjölmiðlum hingað. 

„Annað sem hefur auðvitað hjálpað okkur, eins og allri annarri afþreyingu og ferðamennsku, eru samfélagsmiðlarnir. Það er bara þannig.“

Náttúrufegurð er helsta markaðstæki Íslands. „Við höfum lagt áherslu á, fyrst og fremst, þessa einstæðu velli í íslenskri náttúru. Hér getur þú spilað inni í gömlu eldfjalli í Vestmannaeyjum eða á bökkum Hvítár austur í Kiðjabergi. Eða þú getur verið á ólíkum stöðum eða bara í hrauninu í Garðabænum. Það sem vinsælast er af öllu er miðnætursólin.“ Hann bætir við: Við erum að selja öðruvísi vöru. Þú ferð ekki í golfferð til Íslands á sömu forsendum og til Spánar eða Flórída.

„Við erum að selja öðruvísi vöru. Þú ferð ekki í golfferð til Íslands á sömu forsendum og til Spánar eða Flórída.“

Áhrif samfélagsmiðla eru augljós að mati Magnúsar. „Þegar samfélagsmiðlarnir tóku sterkt við sér þá sáum við það mjög að menn voru að senda myndir af sér standandi í miðnætursólinni einhvers staðar. Ég tala nú ekki um þegar þeir stóðu á golfvellinum á Geysi með goshverinn fyrir aftan sig. Svona myndir gjörbreyta öllu og bara ein svona mynd hefur oft dregið ótrúlega að.“

Íslenska ungliðahreyfingin

Ísland stendur framarlega þegar kemur að barna- og unglingastarfi í Evrópu. Agnar Már segir golfklúbbana hafa verið duglega síðustu árin að halda námskeið og að ungt fólk hafi gott aðgengi að völlum. Agnar Már segir GKG hafa lagt mikla áherslu á uppeldisstarfið allt frá stofnun klúbbsins sem átti að minna á íþróttafélag frekar en hefðbundinn golfklúbb. „Við höfum viðhaldið þessu í gegnum þessi 30 ár og fyrir vikið þá hefur barna- og unglingastarfið okkar styrkst alveg rosalega og við erum með 800 krakka hjá okkur núna.“

Sumir foreldrar hafa elt börnin sín í golfið, en það gerði Agnar Már sjálfur. „Strákurinn minn var í golfi og okkur fannst kennslan ekki nógu góð, við færðum hann yfir í GKG og ég færði mig þar af leiðandi líka og endaði svo sem framkvæmdastjóri.“ Þau börn sem ekki koma úr golffjölskyldum hafa virkað sem hvatning fyrir foreldra sína. „Svo þegar þau fylgjast með krökkunum sínum þá kannski fara þau að stíga fyrstu skrefin sín líka.“ Hann bætir við: Það er ótrúlega gaman að sjá jafnvel þrjá ættliði fara út saman og spila golf.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár