Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Sonur Þorsteins Más kemur fram sem talsmaður Samherja

Bald­vin Þor­steins­son, son­ur Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, kem­ur fram sem tals­mað­ur fyr­ir­tæk­is­ins í grein þar sem rætt er um mark­aðs­setn­ingu á ís­lensk­um fiski. Fyrr á ár­inu, í kjöl­far Namib­íu­máls Sam­herja, var sagt frá því að Þor­steinn Már hefði selt hluta­bréf sín í Sam­herja til barna sinna.

Sonur Þorsteins Más kemur  fram sem talsmaður Samherja
Átti að verða forstjóri Eimskips Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Samherja og sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, kemur fram sem talsmaður Samherja í nýrri grein í Viðskiptablaðinu. Hann var nefndur sem næsti forstjóri Eimskipa en ekki var samstaða um hann meðal hluthafa. Mynd: Fréttablaðið

Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá útgerðarfélaginu Samherja, kemur fram í áramótaútgáfu Viðskiptablaðsins sem talsmaður fyrirtækisins jafnvel þó þar séu starfandi tveir forstjórar. Baldvin er sonur annars forstjórans, Þorsteins Más Baldvinssonar, og skrifar hann grein um íslenskan sjávarútveg undir fyrirsögninni „Byggjum upp sterkt íslenskt vörumerki“ sem birt er með mörgum öðrum eftir stjórnendur í íslensku viðskiptalífi.  Aðrir sem skrifa sambærilegar greinar í Viðskiptablaðið eru yfirleitt æðstu stjórnendur tiltekinna fyrirtækja og stofnana  eins og Landsbankans, Seðlabanka Íslands,  Símans og Landsvirkjunar. 

Alltaf Þorsteinn MárÞorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherjja, hefur verið sá sem komið hefur fram opinberlega fyrir hönd félagsins í gegnum árin. Sonur hans gerir það nú í grein í áramótablaði Viðskiptablaðsins.

Í gegnum tíðina hefur forstjóri Samherja, það er að segja Þorsteinn Már Baldvinsson, verið sá sem talað hefur máli fyrirtækisins. Þetta var svo allt þar til í nóvermber í fyrra, þegar greint var frá máli Samherja í Namibíu í Kveik, Stundinni og af Wikileaks.

Þá steig Þorsteinn Már til hliðar tímabundið og Björgólfur Jóhannsson var gerður að starfandi forstjóra.  Björgólfur var talsmaður  fyrirtækisins í kjölfarið og hefur hann haldið því áfram að stóru leyti síðan þrátt fyrir að Þorsteinn Már hafi snúið til baka sem forstjóri við hlið Björgólfs í lok mars á þessu ári. 

Eins og kunnugt er þá er mál Samherja í Namibíu til rannsóknar í að minnsta kosti þremur löndum, Íslandi, Namibíu og Noregi. Á Íslandi eru  sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja með réttarstöðu sakborninga í málinu, grunaðir um aðkomu að mútugreiðslum og peningaþvætti. Samherjamálið í Namibíu hefur vakið talsverða athygli alþjóðlega og leiddi það meðal annars til þess að norski DNB bankinn ákvað að Samherji ætti ekki ekki lengur að vera viðskiptavinur bankans. 

Samherji hefur gert lítið úr þessari aðgerð bankans. 

 „Uppbygging vörumerkja skiptir máli enda halda viðskiptavinir tryggð við vörumerki ef þeir tengja þau við gæði.“

Baldvin ekki komið fram sem talsmaður

Baldvin Þorsteinsson hefur hins vegar ekki áður verið í því hlutverki að koma fram opinberlega sem talsmaður eða andlit Samherja í fjölmiðlum. Raunar hefur það ekki oft gerst í gegnum árin að einhver annar en Þorsteinn Már hafi verið í þessu hlutverki, að undanskildum Björgólfi í kjölfar Samherjamálsins í Namibíu. Samherji hefur auk þess aldrei verið með upplýsingafulltrúa, þrátt fyrir að vera eitt stærsta fyrirtæki á Íslandi. Þorsteinn Már hefur alfarið séð um þetta upplýsinga- og miðlunarhlutverk. 

Baldvin hefur hins vegar verið nefndur opinberlega sem hugsanlegur arftaki Þorsteins Más Baldvinssonar á forstjórastóli Samherja og hefur hann verið settur í ábyrgðarstöður á vegum félaga Samherja, eins og til dæmis forstjórastól Jarðborana og í stól stjórnarformanns Eimskipafélags Íslands. Út á við lítur út  eins og verið sé að búa hann undir framtíðarhlutverk í fjölskyldufyrirtækinu. Baldvin hefur starfað hjá Samherja í ýmsum hlutverkum, með hléum, í meira en áratug og komið að rekstrinum í Afríku meðal annars. 

Athygli vakti þegar til stóð að hann yrði næsti forstjóri Eimskipafélagsins, þar sem Samherji er stærsti hluthafinn, en ekki náðist samstaða um meðal allra hluthafa. Þá vakti það einnig athygli fyrir nokkrum árum þegar Þorsteinn Már íhugaði að kaupa sig inn í MP Banka sáluga en strandaði fjárfestingin á því að hann vildi fá mann frá Samherja í stjórn bankans, Baldvin Þorsteinsson. 

Fyrr á þessu ári var greint frá því að Þorsteinn Már og fyrrverandi eiginkona han, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, hefðu selt börnum sínum, Baldvini og Kötlu, hlutabréf sín í Samherja. Kristján Vilhelmsson, hinn stóri hluthafi Samherja, gerði hið sama gagnvart sínum börnum samhliða. Þeir Kristján og Þorsteinn eru því ekki lengur stærstu eigendur Samherja heldur börn þeirra, meðal annars Baldvin. Á heimasíðu Samherja var talað um viðskiptin með hlutabréfin sem kynslóðaskipti í eignarhaldi Samherja. 

Sonur Þorsteins Más sem talsmaður SamherjaBaldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Samherja og sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, hefur ekki oft áður komið fram sem talsmaður fyrirtækisins, líkt og í áramótagreininni í Viðskiptablaðinu.

Mikilvægi „sterka vörumerkja“

Í grein sinni ræðir Baldvin um mikilvægi þess að íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki taki sig saman um að búa til sterk íslenskt vörumerki í kringum íslenskan fisk til að hámarka arðsemi í útflutningi. 

Hann ræðir um það hversu mikið vatn hafi runnið til sjávar frá því að faðir hans og frændur, Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir, hófu útgerð saman undir merkjum Samherja árið 1983: „Sjávarútvegur hefur verið órjúfanlegur hluti af mínu lífi frá blautu barnsbeini. Faðir minn og frændur okkar keyptu Samherja hf. árið sem ég fæddist á tímum mikillar ólgu og óvissu í atvinnugreininni. Í dag eru breyttir tímar enda hefur sjávarútvegurinn verið ein helsta grunnstoð efnahagslífsins um margra ára skeið og átt stærstu hlutdeildina í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins.“

Í greininni segir Baldvin svo enn fremur og meðal annars, og vísar til auglýsinga með Agli Ólafssyni, tónlistarmanni og leikara, sem vakið hefur nokkra athygli: „Nú er í gangi auglýsingaherferðin „Fishmas“ eftir að íslensk útvegsfyrirtæki sameinuðust undir slagorðinu „Seafood from Iceland“ í því skyni að auka útflutningsverðmæti íslenskra sjávarafurða. Herferðin er afrakstur samstarfs SFS og Íslandsstofu og það verður áhugavert að sjá hvort hún skilar árangri. Sameiginleg markaðssetning á upprunalandi sjávarafurða og uppbygging vörumerkja fyrir afurðirnar sjálfar er hins vegar sitt hvor hluturinn. Uppbygging vörumerkja skiptir máli enda halda viðskiptavinir tryggð við vörumerki ef þeir tengja þau við gæði.“

Þorsteinn Már skrifaði síðustu greinÞorsteinn Már Baldvinsson skrifaði síðustu grein frá Samherja sem birt var í áramótaútgáfu Viðskiptablaðsins árið 2018. Síðan hefur Namibíumálið komið upp og eignaskipti á Samherja.

Stundin sendi spurningar til forstjóra Samherja, Þorsteins Más Baldvinssonar og Björgólfs Jóhannssonar, um ástæðu þess að Baldvin kemur fram fyrir hönd Samherja í viðkomandi grein. Blaðið hafði ekki fengið svar þegar fréttin var birt.

Þorsteinn Már Baldvinsson skrifaði sjálfur síðustu sambærilegu áramótagrein  frá Samherja sem birt var í viðhafnarútgáfu Viðskiptablaðsins í lok árs 2018. Enda var það alltaf Þorsteinn Már sjálfur sem talaði máli og var andlit Samherja fram að birtingu frétta um Namibíumálið í nóvember 2019. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

„Sam­herji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Op­ið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namib­íu

Slétt­um fjór­um ár­um eft­ir að ljóstr­að var upp um fram­ferði Sam­herja í Namib­íu kall­ar leið­togi namib­ísku stjórn­ar­and­stöð­unn­ar eft­ir því að ís­lensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands. Hundrað millj­óna rík­is­styrk­ur til Sam­herja vek­ur reiði í Namib­íu.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lög­mað­ur namib­ískra sjó­manna við Sam­herja: „Borg­ið það sem þið skuld­ið þeim“

Lög­mað­ur skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmd­ar voru bæt­ur vegna ólög­legr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, kall­ar eft­ir því að Ís­lend­ing­ar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namib­íu. Það stand­ist enga skoð­un að Sam­herji hafi ekki vit­að af mál­inu. For­stjóri Sam­herja lof­aði því að fyr­ir­tæk­ið myndi sjá til þess að stað­ið yrði við all­ar skuld­bind­ing­ar og sér­stak­lega hug­að að sjó­mönn­um sem starf­að hefðu fyr­ir fé­lag­ið.
Namibískir sjómenn stefna Samherjamanni eftir tveggja ára bið eftir bótum
FréttirSamherjaskjölin

Namib­ísk­ir sjó­menn stefna Sam­herja­manni eft­ir tveggja ára bið eft­ir bót­um

Á þriðja tug namib­ískra sjó­manna sem voru dæmd­ar bæt­ur vegna ólög­mætr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, hafa enn ekki feng­ið þær greidd­ar. Lög­mað­ur þeirra gagn­rýn­ir for­svars­menn Sam­herja fyr­ir að gang­ast ekki við ábyrgð sinni og hef­ur nú stefnt ein­um stjórn­anda Sam­herja og dótt­ur­fé­lagi þess, fyr­ir dóm í Namib­íu.
Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn
FréttirSamherjaskjölin

Inga þakk­ar Sam­herja fyr­ir en tel­ur að kvóta­kerf­ið hafi lagt land­ið í auðn

Inga Sæ­land, formað­ur Flokks fólks­ins, seg­ist hafa slíðr­að sitt póli­tíska sverð þeg­ar hún söng á Fiski­deg­in­um mikla á Dal­vík um helg­ina. Hún skrif­ar þakk­ar­grein í Mogg­ann í dag og þakk­ar Sam­herja fyr­ir Fiski­dag­inn. Sam­kvæmt Ingu kom hún ekki fram á Fiski­deg­in­um sem stjórn­mála­mað­ur held­ur sem mann­eskja í sum­ar­fríi.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár