Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Framleiðsla Arnarlax hrundi um 1100 tonn vegna laxadauða

Veru­leg skakka­föll urðu í rekstri stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is lands­ins, Arn­ar­lax, vegna laxa­dauða í upp­hafi árs­ins. Tekj­ur fyr­ir­tæk­is­ins dróg­ust sam­an um nærri helm­ing milli ára og fram­leiðsl­an minnk­aði um 1.100 tonn.

Framleiðsla Arnarlax hrundi um 1100 tonn vegna laxadauða
Tekjutap upp á nærri helming milli Tekjur Arnarlax á milli annars ársfjórðungs 2019 og 2020 nærri helminguðust vegna laxadauða fyrr á árinu. Kjartan Ólafsson er stjórnarformaður Arnarlax.

Laxadauðinn sem átti sér stað hjá laxeldisfyrirtækinu Arnarlaxi í byrjun ársins setur verulegt strik í reikninginn hjá fyrirtækinu í ár.  Tekjurnar drógust saman um nærri helming á ársfjórðungnum apríl til júní vegna laxadauðans og lágs heimsmarkaðsverðs á eldislaxi. Tekjur Arnarlax voru einungis 99 milljónir norskra króna, tæplega 1,5 milljarður, á ársfjórðungnum samanborið við 177 milljónir norskra króna, 2,6 milljarðar króna,  í fyrra. Framleiðslan hjá Arnarlaxi, eldislaxi sem var slátrað og seldur, dróst saman um 1.100 tonn á ársfjórðungnum. Á öðrum ársfjórðungi í fyrra var framleiðslan 2.800 tonn en í ár var hún 1.700 tonn. 

Þetta kemur fram í árshlutahlutauppgjöri móðurfélags Arnarlax, Salmar AS, sem er skráð í kauphöllina í Noregi. Árshlutauppgjörið var gert opinbert í morgun.

Salmar AS á meirihluta hlutabréfa í Arnarlaxi eftir að hafa keypt meðal annars keypt íslenska hluthafa eins og Tryggingamiðstöðina og Fiskisund út úr félaginu. Fyrirtækið er stærsti einstaki hagsmunaðilinn í íslensku laxeldi þar sem Arnarlax er stærsta laxeldisfyrirtæki landsins. 

Laxinn drapst vegna vetrarsára

Stundin greindi frá laxadauðanum hjá Arnarlaxi, sem átti sér stað í kvíum í Hringsdal í Arnarfirði, í febrúar. Samkvæmt síðustu tölum sem blaðið greindi frá drápust alls 128.900 eldislaxar, sem vógu 774 tonn, í hremmingunum. Þessar tölur komu frá Matvælastofnun. Ástæða laxadauðans voru vetrarsár á löxunum sem voru tilkomin vegna sjávarkulda og vegna þrengsla í eldiskvíunum. Þrengslin urðu meiri en ella þar sem eldislaxinn var kominn í sláturstærð og tók því meira pláss en minni fiskur. 

Þettta tvennt gerði það að verkum að laxinn leitaði neðar í kvíarnar í Arnarfirði og nuddaðist fiskurinn í auknum mæli við netið í kvíunum sem leiddi til þess að sár mynduðust á hreistri laxanna sem svo dró þá til dauða. Þegar eldisfiskur fær sár á hreystrið aukast líkur á sjúkdómum og þar með dauða. 

„Mér virðist þetta vera svipað og í fyrra en er þó heldur fyrr á ferðinni“

Arnarlax kallaði á skip frá Vestmannaeyjum sem sigldi vestur í Arnarfjörð til að hreinsa dauðan lax upp úr kvíunum og eins fékk fyrirtækið norska sláturskipi Norwegian Gannett til landsins til að slátra upp úr kvíunum þar sem ástandið var sem verst. Þetta gerði fyrirtækið til að reyna að bjarga verðmætum með því að slátra sem mest af laxinum sem fyrst áður en hann dræpist. 

Fyrst eftir að laxadauðinn kom upp reyndi Arnarlax að gera lítið úr vandamálinu.  Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður í Arnarlaxi og hluthafi í fyrirtækinu, sagði við Stundina eftir að vandamálið kom upp að líklega væri um að ræða álíka mikinn laxadauða og hjá fyrirtækinu í fyrra. „Mér virðist þetta vera svipað og í fyrra en er þó heldur fyrr á ferðinni,“ sagði Kjartan. 

Sú upplýsingagjöf um málið sem veitt var á heimasíðu Arnarlax var einnig  önnur en þær upplýsingar sem fram koma í uppgjörum norska móðurfélagsins. Ástæðan er sú að það hvílir ekki sama upplýsingaskylda á Arnarlaxi og Salmar AS vegna þess að síðarnefnda félagið er skráð í norsku kauphöllina og verður að greina frá slíkum skakkaföllum í rekstrinum undanbragðalaust. 

Eitt stærsta vandamálið sem steðjar að laxeldi í sjókvíum við Íslandsstrendur er annars vegar sjávarkuldinn við landið og hins vegar möguleikinn á vonskuveðri yfir vetrarmánuðina sem skemmt getur kvíarnar og valdið tjóni. 

Eitt það versta á VestfjörðumGísli Jónsson, yfirmaður fiskisjúkdóma hjá Matvælastofnun, sagði í fjölmiðlum í febrúar að ástandið í sjókvíum Arnarlax væri með því versta sem hann hefði séð á Vestfjörðum.

Tjónið kom fram í apríl og maí

Í árshlutauppgjöri Salmar segir um laxadauðann: „Eins og síðasta árshlutauppgjör benti til var rekstrarniðurstaða Arnarlax mjög léleg á ársfjórðungnum. Hann einkenndist af háum kostnaði og lágum verðum á tímabilinu. Sá lax sem var framleiddur á öðrum ársfjórðungi kemur fyrst og fremst frá eldissvæðum þar sem mikill laxadauði hefur átt sér stað. Samtímis hefur lágt framleiðslumagn leitt til þess að notkunin á verksmiðju Arnarlax á Bíldudal hefur verið lítil. Þar að auki var mest af eldislaxinum slátrað og hann seldur í apríl og maí, þegar verð voru mjög lág.“

Í árshlutauppgjörinu kemur fram að nú sé að búið að tæma þau eldissvæði Arnarlax þar sem laxadauðinn átti sér stað. Þar kemur einnig fram að þrátt fyrir þetta tjón félagsins ætli Arnarlax sér að framleiða 12 þúsund tonn af eldislaxi á þessu ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.
Gagnrýni SFS leiddi til lykilbreytinga á laxeldisfrumvarpinu
SkýringLaxeldi

Gagn­rýni SFS leiddi til lyk­il­breyt­inga á lax­eld­is­frum­varp­inu

Gagn­rýni frá Sam­bandi ís­lenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja spil­aði stóra rullu í því að nýju frum­varpi um lax­eldi var breytt og við­ur­lög minnk­uð við slysaslepp­ing­um. Þetta er ann­að mest um­deilda ákvæði frum­varps­ins en hitt snýst um að gefa lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um ótíma­bund­in leyfi til sjókvía­eld­is hér við land. Mat­væla­ráð­herra vill hætta við ótíma­bundnu leyf­in í lax­eld­inu eft­ir harða um­ræðu á Al­þingi.

Mest lesið

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
3
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
„Óviðunandi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman
4
FréttirFatlað fólk beitt nauðung

„Óvið­un­andi“ að bíða í þrjú ár – Var læst­ur inni ár­um sam­an

Þriggja ára bið eft­ir ráð­gjöf frá sér­fræðiteymi um að­gerð­ir til að draga úr beit­ingu nauð­ung­ar í þjón­ustu við fatl­að fólk er óvið­un­andi að mati fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Það var hins veg­ar sá tími sem Ak­ur­eyr­ar­bær beið eft­ir ráð­gjöf­inni í máli Sveins Bjarna­son­ar sem var læst­ur inni í íbúð á veg­um bæj­ar­ins. Ráðu­neyt­ið ít­rek­ar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauð­ung.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
5
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
„Finnst ég vera að heyja dauðastríð“
7
Fréttir

„Finnst ég vera að heyja dauða­stríð“

Níg­er­ísku kon­urn­ar þrjár sem flúðu til Ís­lands und­an man­sali fyr­ir nokkr­um ár­um verða send­ar úr landi í kvöld. Þær eru í fang­els­inu á Hólms­heiði og ræddu við Heim­ild­ina í síma síð­deg­is. Ein kvenn­anna er al­var­lega veik og seg­ist líða eins og hún sé að heyja dauða­stríð. Þær segja að lækn­ir verði með í för þeg­ar þær verða flutt­ar úr landi. „Lækn­ir á að sjá til þess að hún andi út fyr­ir loft­helgi Ís­lands,“ seg­ir ís­lensk vin­kona kvenn­anna þriggja.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
8
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.
Halda Blessing á lífi svo lengi sem hún er í íslenskri lögsögu
10
Fréttir

Halda Bless­ing á lífi svo lengi sem hún er í ís­lenskri lög­sögu

Brott­vís­un þriggja kvenna var mót­mælt í Leifs­stöð í gær­kvöldi. Ein þeirra, Bless­ing, er lífs­hættu­lega veik og þol­andi man­sals. Í lækn­is­vott­orði frá sér­fræð­ingi á Land­spít­al­an­um er skrif­að að það sé lífs­nauð­syn­legt fyr­ir hana að hafa greið­an að­gang að bráða­þjón­ustu sér­hæfðra kvenna­deilda á sjúkra­húsi. „Þannig er ljóst að brott­vís­un mun stefna lífi sjúk­lings­ins í al­var­lega hættu komi hún til fram­kvæmd­ar á nú­ver­andi tíma­marki.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
3
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
9
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár