Ekkert land í Evrópu treysti eins mikið á beinar og óbeinar tekjur af ferðamannaiðnaðinum og Ísland gerði árið 2019. Nærri þriðjungur vergrar þjóðarframleiðslu kom beint eða óbeint inn í þjóðarbúið vegna ferðamanna sem komu til Íslands, eða 32 prósent. Næsta land á listanum yfir þau lönd sem reiða sig hvað mest á ferðamennsku er Króatía, með 25 prósent, Grikkland með 21 og Portúgal með 20. Í löndum Evrópu stendur ferðamennska að meðaltali fyrir um 10 prósent af þjóðarframleiðslunni og er ferðamannaiðnaðurinn því þrefalt mikilvægari fyrir Ísland en hið almenna Evrópuland. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu frá breska greiningarfyrirtækinu Tourism Economics frá því 20. febrúar síðastliðinn. Beint framlag ferðaþjónustu til þjóðarframleiðslunnar á Íslandi var 9 prósent af vergri þjóðarframleiðslu árið 2019 á meðan óbeina framlagið nam 23 prósentum af þjóðarframleiðslunni.
Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.
Ferðaþjónustan fer í híði og bíður: „Svo kemur þetta áfall“
Flugsamgöngur til og frá landinu eru við það að leggjast af vegna Covid-veirunnar. Ferðaþjónustufyrirtæki sjá fram á tekjuleysi næstu vikur og mánuði. Framkvæmdstjórar í greininni segja að kreppan sem fylgir Covid-veirunni verði dýpri og alvarlegri en kreppan eftir bankahrunið. Tekjur fyrirtækjanna hverfa og með þeim störf fólks og lifibrauð.
Mest lesið
1
Halla Tómasdóttir hótar að endurtaka leikinn frá 2016
Halla Hrund Logadóttir er enn með forystu í kapphlaupinu á Bessastaði og Katrín Jakobsdóttir er skammt undan. Báðar hafa hins vegar verið að tapa fylgi og sömu sögu er að segja um Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Sú sem hefur verið að taka mest til sín er Halla Tómasdóttir.
2
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
Sara Sigurbjörg Guðmundsdóttir, eiginkona Precious Felix Tanimola sem var sendur úr landi til Nígeríu í nótt, segist ekki hafa fengið að kveðja hann: „Síminn var tekinn af honum og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Íslands frá Úkraínu vegna stríðsins. Honum hafði ári áður verið boðið að spila þar fótbolta með úkraínsku félagsliði.
3
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
Mikið er skeggrætt um fjárhagsstöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er á skuldastöðu þess hluta reksturs þeirra sem er fjármagnaður með skatttekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykjavík en versnar hraðast í Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar sem veltufé frá rekstri var neikvætt í fyrra. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með veltufjárhlutfall, sem segir til um getu sveitarfélags til að borga skuldir sínar, umfram það sem æskilegt er. Heimildin rýndi í ársreikninga sveitarfélaganna.
4
„Óviðunandi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman
Þriggja ára bið eftir ráðgjöf frá sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk er óviðunandi að mati félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Það var hins vegar sá tími sem Akureyrarbær beið eftir ráðgjöfinni í máli Sveins Bjarnasonar sem var læstur inni í íbúð á vegum bæjarins. Ráðuneytið ítrekar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauðung.
5
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
„Mögnuð“ breyting verður á huganum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þunglyndislyf á þau sem glíma við vægt eða miðlungs þunglyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun tilfinninga, deyfa sársauka og valda sælutilfinningu. Steinn B. Gunnarsson íþrótta- og lýðheilsufræðingur veitir innsýn í áhrifin og ráð til að fá hugann til að halda sig við hreyfinguna.
6
Lóð Sóltúns sem átti að hýsa hjúkrunarheimili var seld undir íbúðir
Aðstandendur íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni hafa lýst áhyggjum af ónæði vegna byggingaframkvæmda við stækkun þess. Forstjóri Sóltúns segir félagið hafa viljað byggja við hlið hjúkrunarheimilisins en ekki ofan á það en að samningar hafi ekki náðst við ríkið.
7
„Finnst ég vera að heyja dauðastríð“
Nígerísku konurnar þrjár sem flúðu til Íslands undan mansali fyrir nokkrum árum verða sendar úr landi í kvöld. Þær eru í fangelsinu á Hólmsheiði og ræddu við Heimildina í síma síðdegis. Ein kvennanna er alvarlega veik og segist líða eins og hún sé að heyja dauðastríð. Þær segja að læknir verði með í för þegar þær verða fluttar úr landi. „Læknir á að sjá til þess að hún andi út fyrir lofthelgi Íslands,“ segir íslensk vinkona kvennanna þriggja.
8
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
Bæði Bjarkey Gunnarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir hafa lýst því yfir að þær vilji tímabinda rekstrarleyfin í sjókvíaeldinu. Eini matvælaráðherra VG á síðasta og yfirstandandi kjörtímabili sem ekki hefur gert slíkt hið sama er Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi. Hún vann talsvert að frumvarpinu, fundaði með hagaðilum um það og lét breyta einstaka greinum þess.
9
Reyndi á fæðingarorlofslöggjöfina þegar hún varð barnshafandi – fyrst ráðherra
Þegar Katrín Jakobsdóttir varð ófrísk á sama tíma og hún gegndi ráðherraembætti þurfti að láta á fæðingarorlofslöggjöfina reyna. Nokkuð var þrýst á Katrínu að víkja, en í ljós kom að ráðherrar eiga rétt á fæðingarorlofi líkt og aðrir.
10
Halda Blessing á lífi svo lengi sem hún er í íslenskri lögsögu
Brottvísun þriggja kvenna var mótmælt í Leifsstöð í gærkvöldi. Ein þeirra, Blessing, er lífshættulega veik og þolandi mansals. Í læknisvottorði frá sérfræðingi á Landspítalanum er skrifað að það sé lífsnauðsynlegt fyrir hana að hafa greiðan aðgang að bráðaþjónustu sérhæfðra kvennadeilda á sjúkrahúsi.
„Þannig er ljóst að brottvísun mun stefna lífi sjúklingsins í alvarlega hættu komi hún til framkvæmdar á núverandi tímamarki.“
Mest lesið í vikunni
1
Mistök, hamingja og væntingar Katrínar
Þegar Katrín Jakobsdóttir missti föður sinn ung að árum lærði hún að lífið er mikilvægara en dauðinn, stundin er núna og ekki eftir neinu að bíða. Hún ólst upp við öryggi sem gerir henni kleift að taka áhættur, en lítur svo á að hún hafi ekki neinu að tapa varðandi framboð sitt til forseta.
2
Jón Trausti Reynisson
Ástþór Magnússon hefur rétt fyrir sér
Ísland hefur hlutverki að gegna í heiminum vegna sérstöðu sinnar. Við höfum vanrækt þetta hlutverk.
3
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
Samsæriskenningar um frambjóðendur til forseta Íslands hafa látið á sér kræla, sérstaklega hvað varðar tengsl við Alþjóðaefnahagsráðið og meintar fyrirætlanir þess um heimsyfirráð. Stjórnmálasálfræðingur segir kenningarnar ekki eiga við rök að styðjast þótt vissulega sitji valdamikið fólk í ráðinu.
4
Sif Sigmarsdóttir
Samfélag til sölu
Hin raunverulega ógn við lýðræðissamfélagið er fólkið sem telur sig geta keypt það.
5
Halla Tómasdóttir hótar að endurtaka leikinn frá 2016
Halla Hrund Logadóttir er enn með forystu í kapphlaupinu á Bessastaði og Katrín Jakobsdóttir er skammt undan. Báðar hafa hins vegar verið að tapa fylgi og sömu sögu er að segja um Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Sú sem hefur verið að taka mest til sín er Halla Tómasdóttir.
6
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
Sara Sigurbjörg Guðmundsdóttir, eiginkona Precious Felix Tanimola sem var sendur úr landi til Nígeríu í nótt, segist ekki hafa fengið að kveðja hann: „Síminn var tekinn af honum og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Íslands frá Úkraínu vegna stríðsins. Honum hafði ári áður verið boðið að spila þar fótbolta með úkraínsku félagsliði.
7
1.600 blaðsíður af óviðeigandi smáskilaboðum
Jóhannes Kr. Kristjánsson fékk að fylgja Birgi Erni Guðjónssyni, eða Bigga löggu, eftir við rannsókn á máli einu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Á vettvangi. Þar hafði fullorðinn karlmaður verið í miklum óviðeigandi samskiptum við 12 ára stúlku.
8
Lögfræðingur komst að annarri niðurstöðu en Bjarkey
Í lögfræðiáliti um frumvarp um lagareldi sem unnið var fyrir ráðuneytið er komist að annarri niðurstöðu um rekstrarleyfi í laxeldi en Bjarkey Gunnarsdóttir matvælaráðherra lýsti á Alþingi. Bjarkey vísaði til lögfræðinnar í rökstuðningi fyrir því að gera leyfin ótímabundin.
9
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
Mikið er skeggrætt um fjárhagsstöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er á skuldastöðu þess hluta reksturs þeirra sem er fjármagnaður með skatttekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykjavík en versnar hraðast í Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar sem veltufé frá rekstri var neikvætt í fyrra. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með veltufjárhlutfall, sem segir til um getu sveitarfélags til að borga skuldir sínar, umfram það sem æskilegt er. Heimildin rýndi í ársreikninga sveitarfélaganna.
10
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Að gefa landið úr landi
Rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar um vistmorð, landráð og annað hættulegt sem hún og mamma hennar ræða.
Mest lesið í mánuðinum
1
Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
Móðir á Kirkjubæjarklaustri ætlar að flytja með börnin sín úr bænum þar sem hún telur ástandið í Kirkjubæjarskóla óviðunandi. Sonur hennar hefur lítið mætt í skólann í á annað ár eftir atvik í skólanum sem foreldrarnir kærðu til lögreglu. Málið var látið niður falla. Skólastjórinn er nú á förum en sveitarstjórinn segir það „engum einum að kenna þegar tveir deila“.
2
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Starfsmenn Alvotech lýsa vinnuálaginu sem ómanneskjulegu og hafa leitað til stéttarfélaga út af ógreiddri yfirvinnu og fleiri málum. Vinnuaðstæðurnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá markaðsleyfi fyrir samheitalyf Humira í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dregist saman og samheitalyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Bandaríkjunum og reiknað var með.
3
Sóltún keypti jeppa fyrir forstjórann í uppsagnarhrinu
Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur verið í hagræðingaraðgerðum og sagt upp starfsfólki á síðustu mánuðum.
4
Mistök, hamingja og væntingar Katrínar
Þegar Katrín Jakobsdóttir missti föður sinn ung að árum lærði hún að lífið er mikilvægara en dauðinn, stundin er núna og ekki eftir neinu að bíða. Hún ólst upp við öryggi sem gerir henni kleift að taka áhættur, en lítur svo á að hún hafi ekki neinu að tapa varðandi framboð sitt til forseta.
5
Hefur gengið á eftir Ástþóri í 19 ár vegna ógreidds reiknings
Árið 2005 sendi Steinþór Grímsson athafnamanninum Ástþóri Magnússyni reikning upp á rúmar 30 þúsund krónur á þávirði. Hann hefur ekki enn fengist greiddur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í áranna rás. Ástþór þvertekur fyrir að skulda manninum, sem og öðrum, nokkuð.
6
Sif Sigmarsdóttir
Það sem ég á Bjarna Ben að þakka
Í fullkomnum heimi væri pistlahöfundur atvinnulaus.
7
Sif Sigmarsdóttir
Litla Gunna í Kristjaníu, litli Jón á Kvíabryggju
Væri tíma nútímaforeldra betur varið við að valda börnum sínum vonbrigðum en að keyra þau í ballettíma eða mauka fyrir þau avókadó?
8
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
Sama dag og Geir H. Haarde flutti ræðu til þjóðarinnar þar sem hann bað guð um að blessa Ísland veitti Kaupþing aflandsfélagi lán sem notað var til að kaupa verðlítil skuldabréf af starfsmönnum og vildarviðskiptavini bankans. Nú, 15 og hálfu ári eftir að lánið var veitt, stendur til að saksækja þrjá einstaklinga í Lúxemborg vegna þess.
9
Ole Anton Bieltvedt
Af hverju er Halla Hrund Logadóttir kjörin og rétt í forsetaembættið?
Ole Anton Bieltvedt segir að forsetinn verði að vera þjóðlegur og alþjóðlegur í senn. Umhverfis- og náttúruverndarsinni. Með tandurhreinan bakgrunn, flekklaust einkalíf, mikla og góða menntun og reynslu að sama skapi.
10
Þolendur sæmdarkúgunar eru allt niður í sjö ára gamlir
Sæmdarkúgun hefur færst í aukana síðastliðin ár, en lögreglan telur aðeins hluta slíkra brota rata inn á borð til sín. Þolendur eru oft mjög ungir, jafnvel á grunnskólaaldri. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Á vettvangi í umsjón Jóhannesar Kr. Kristjánssonar.
Athugasemdir