Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hefur ekki mætt í eina einustu atkvæðagreiðslu á haustþingi. Þetta sýna upplýsingar á vef þingsins.
Sigmundur situr ekki í neinni fastanefnd á vegum Alþingis og hefur því ekki þurft að mæta á nefndarfundi eða sinna nefndarstörfum af neinu tagi. Engu að síður hefur hann þegið fullt þingfararkaup auk 50 prósenta álags sem formaður stjórnmálaflokks. Jafnframt átti hann rétt á biðlaunum sem fyrrverandi ráðherra í sex mánuði eftir að hann sagði af sér. Stundin hefur sent forsætisráðuneytinu fyrirspurn um hvort Sigmundur hafi þegið þau.
Fréttastofa RÚV fjallaði um mætingu þingmanna í gær og fékk skýringar frá Sigmundi á fjarveru hans. „Sigmundur segist í skilaboðum til fréttamanns hafa verið nokkuð upptekinn við að verjast ítrekuðum tilraunum til að fella hann sem formann flokksins,“ segir í frétt RÚV.
Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, gerði mætingu Sigmundar Davíðs að umtalsefni á Alþingi um daginn. „Það er einn óbreyttur þingmaður á meðal okkar sem situr ekki í neinni þingnefnd. Það er háttvirtur þingmaður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem var áður forsætisráðherra en er núna þingmaður. Hann er á fullu þingfararkaupi og í raun og veru með 50% álagi vegna flokksformennsku og hann er með aðstoðarmann líka. Eru fordæmi fyrir því að óbreyttir þingmenn sitji ekki í neinni þingnefnd og taki þar með ekki þátt í nefndastörfum svo ekki sé talað um að mæta ekki í atkvæðagreiðslur og taka ekki til máls í pontu Alþingis?“ spurði hann.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sagðist ekki treysta sér til að svara því hvort söguleg fordæmi væru fyrir því að einstakir þingmenn hefðu ekki setið í þingnefndum um lengri eða skemmri tíma. „Þetta er mál sem er fyrst og fremst í höndum þeirra þingflokka sem í hlut eiga. Það eru, eins og við vitum, þingflokkarnir sem taka ákvörðun um skipan í nefndir í krafti þess þingstyrks sem viðkomandi þingflokkar hafa,“ sagði þingforseti og bætti við: „Það hefur aldrei verið svo þannig að forseta sé kunnugt um að forseti hafi haft afskipti af slíku enda mundi slíkt væntanlega vera talin óeðlileg afskipti af hálfu forseta varðandi þá skipan. Forseti treystir sér hins vegar ekki til þess að svara því hvort þau dæmi sem háttivrtur þingmaður vísar til hafi þekkst í fortíðinni.“
Samkvæmt samantekt RÚV hafa Björt Ólafsdóttir úr Bjartri framtíð, Höskuldur Þórhallsson úr Framsóknarflokknum og Ögmundur Jónasson úr Vinstri grænum mætt verst í atkvæðagreiðslur á eftir Sigmundi Davíð.
Með bestu mætinguna eru Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona Vinstri grænna, Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokknsins, Ásta Guðrún Helgadóttir Pírati, Þórunn Egilsdóttir úr Framsókn og Vilhjálmur Bjarnason úr Sjálfstæðisflokknum.
Athugasemdir