Sjálfstæðisflokkurinn fékk tæpar tuttugu milljónir króna í styrki á síðasta ári frá yfir áttatíu einkafyrirtækjum. Til samanburðar studdu 38 fyrirtæki Framsóknarflokkinn á síðasta ári fyrir tæpar 11 milljónir og tuttugu fyrirtæki Samfylkinguna fyrir tæpar tíu milljónir. Þá er Sjálfstæðisflokkurinn langríkasti stjórnmálaflokkur landsins með eigið fé upp á rúmar 352 milljónir króna.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í útdrætti ársreiknings Sjálfstæðisflokksins sem Ríkisendurskoðun hefur birt á vefsíðu sinni.
Samkvæmt rekstrarreikningi fyrir árið 2015 lækkaði beinn rekstrarkosnaður vegna flokksins um rúmar áttatíu milljónir króna á milli ára, frá 241 milljón króna í 158 milljónir króna. Lækkunina má rekja sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru árið 2014.
Athygli vekur að enginn einn einstaklingur styrkti flokkinn umfram 200 þúsund krónur en allir þeir sem styrkja stjórnmálaflokk um meira en 200 þúsund krónur þurfa að vera nafngreindir í ársreikningi flokkanna. Félagsgjöld og framlög innan þessara marka voru hinsvegar tæpar þrjátíu milljónir króna. Þá voru aðrar tekjur flokksins 69,6 milljónir króna en þar af voru 23 milljónir vegna auglýsinga og þjónustu sem flokkurinn seldi út.
Framlög lögaðila:
- 101 Reykjavík fasteignasala ehf. 30.000
- 1912 ehf. 300.000
- AKSO ehf. 200.000
- Alexander Ólafsson ehf. 250.000
- Alfa hf. 100.000
- Álftavík ehf. 200.000
- Arctica Eignarhaldsfélag ehf. 200.000
- Arctica Finance hf. 200.000
- BL ehf. 400.000
- Borgun hf. 250.000
- Brekkuhús ehf. 400.000
- Brim hf. 400.000
- Brimrún ehf. 250.000
- BSR ehf. 25.000
- Byggingarfélag Gylfa/Gunnars hf. 400.000
- Cargo flutningar ehf. 200.000
- Deloitte ehf. 100.000
- Dexta orkutæknilausnir ehf. 40.000
- Eik fasteignafélag hf. 50.000
- Ferro Zink hf. 50.000
- Gallery Viðey sf. 30.000
- GAM Management ráðgjöf ehf. 400.000
- Gjögur hf. 400.000
- Guðmundur Arason ehf. 50.000
- Gullberg ehf. 250.000
- HB Grandi hf. 400.000
- Henson Sports Europe á Ísl ehf. 30.000
- Höldur ehf. 100.000
- Hólmagil ehf. 100.000
- Hraðfrystihús Hellissands hf. 200.000
- Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. 400.000
- Húsanes Verktakar ehf. 200.000
- Hvalur hf. 400.000
- Icelandair Group hf. 400.000
- Icelandic Water Holdings hf. 400.000
- Internet á Íslandi hf. 190.000
- ÍSAM ehf. 400.000
- Ísfélag Vestmannaeyja hf. 400.000
- Íslandshótel hf. 150.000
- Juris slf. 400.000
- Kaupfélag Skagfirðinga 350.000
- KEA svf. 100.000
- KG Fiskverkun ehf. 200.000
- Kjaran ehf. 100.000
- Kjörís ehf. 50.000
- KPMG ehf. 300.000
- Krossanes eignir ehf. 200.000
- Kvika banki hf. 400.000
- Listasafnið Hótel Holt ehf. 50.000
- Lýsi hf. 400.000
- Mannvit hf. 400.000
- MD vélar ehf. 100.000
- N1 hf. 300.000
- Nordic Holding ehf. 250.000
- Oddi hf. 50.000
- Ögurvík ehf. 300.000
- Ólafur Þorsteinsson ehf. 150.000
- Öldudalur ehf. 300.000
- Örninn Hjól ehf. 50.000
- Öryggisgirðingar ehf. 10.000
- Prentsmiðjan Oddi ehf. 100.000
- Rafstjórn ehf. 25.000
- Rammi hf. 400.000
- Reginn hf. 400.000
- Reykjaprent ehf. 100.000
- Rolf Johansen & Co ehf. 400.000
- Samherji Ísland ehf. 400.000
- Samskip hf. 200.000
- Sigla ehf. 200.000
- Síldarvinnslan hf. 400.000
- Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 350.000
- Skinney-Þinganes hf. 150.000
- Skólamatur ehf. 50.000
- Snæból ehf. 200.000
- Soffanías Cecilsson hf. 25.000
- Sonja ehf. 199.999
- Steypustöðin ehf. 150.000
- SÞ ÞorláksHöfn ehf. 50.000
- Tæknivörur ehf. 250.000
- Þorbjörn hf. 300.000
- Þórsnes ehf. 100.000
- Tryggingamiðstöðin hf. 400.000
- Vélvík ehf. 250.000
- Vinnslustöðin hf. 200.000
- Vísir hf. 400.000
- Vörður tryggingar hf. 150.000
Samtals: 19.254.999
Framlög sveitarfélaga:
- Akranesbær 412.836
- Akureyrarkaupstaður 522.824
- Garðabær 2.058.576
- Hafnarfjarðarbær 60.000
- Hafnarfjarðarkaupstaður 1.578.995
- Hveragerði 204.600
- Kópavogsbær 2.524.154
- Mosfellsbær 841.679
- Reykjanesbær 1.422.907
- Reykjavík 6.575.000
- Styrkur frá Seltjarnarnesbæ 551.020
- Sveitarfélagið Ölfus 308.571
- Sveitarfélagið Hornafjörður 279.075
- Sveitarfélagið Skagafjörður 107.000
- Vestmannaeyjabær 146.400
Samtals: 17.593.637
Athugasemdir