Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra og formaður Bjartrar framtíðar, ætlar að leggja fram frumvarp til laga um misnotkun vefjaaukandi efna og stera.
Þetta kemur fram í þingmálaskrá nýrrar ríkisstjórnar sem birtist á vef Alþingis í kvöld. Stefnt er að því að frumvarpið komi fram í mars á þessu ári.
Fullyrt er að nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp sem spornar við misnotkun á vefjaaukandi efnum og sterum. „Engin lög eru í gildi sem taka á misnotkun vefjaaukandi efna og stera, en óskað hefur verið eftir af ýmsum aðilum að lögfestar verði reglur á þessu sviði,“ segir í þingmálaskránni auk þess sem fram kemur að höfð verði hliðsjón af sambærilegri danskri löggjöf.
Í Danmörku eru í gildi sérstök lög um stera og er hámarksrefsing fyrir vörslu þeirra tveggja ára fangelsi. Sterar falla undir lyfjalög á Íslandi og varðar varsla á þeim fjársektum en ekki fangelsisvist. Þetta gæti breyst með nýjum lögum. Regluverkinu er m.a. ætlað að taka á hvers kyns misnotkun, framleiðslu, innflutningi og dreifingu á þessum efnum.
Athugasemdir